11.02.2026 22:41Vill að Jamaíka læri af íslensku kerfiGet lært mikið af stjórnun fiskveiða á Íslandi11. febrúar 2026
Í dag er alþjóðlegur dagur kvenna og stúlkna í vísindum (IDWGIS) en hann er haldinn hátíðlegur víðsvegar um heim 11. febrúar ár hvert. Þema dagsins í ár er: Samþætting gervigreindar, félagsvísinda, STEM greina* og fjármála: Framtíð inngildingar fyrir konur og stúlkur. Það er því viðeigandi að beina kastljósinu að fiskifræðingnum Annakay Crawford, sem er þátttakandi í Sjávarútvegsskóla GRÓ um þessar mundir. Sjávarútvegsskólinn var stofnaður árið 1998 með þríhliða samkomulagi milli utanríkisráðuneytis Íslands, Háskóla Sameinuðu þjóðanna (UNU) og Hafrannsóknastofnunar (MFRI). Meginhluti dagskrár þátttakenda fer fram í starfsstöð Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum í Hafnarfirði en þeir taka einnig þátt í fjölbreyttum verkefnum tengdum fiskveiðum víða um land.
Veik gagnastjórnun stærsta áskoruninAð mati Annakay er veik gagnastjórnun ein helsta hindrun bættrar fiskveiðistjórnunar á Jamaíku. Óáreiðanleg skráning og úrvinnsla gagna gerir það erfitt að byggja ákvarðanir á traustum gögnum, sem dregur úr virkri stjórnun, eftirliti og langtímaáætlun. Veik gagnakerfi gera einnig erfiðara að fylgjast með ólöglegum og óskráðum veiðum og draga úr áreiðanleika stofnmats. „Þess vegna tel ég styrkingu gagnastjórnunar lykilatriði ef Jamaíka vill byggja upp sjálfbærar fiskveiðar til framtíðar.“ „Þátttaka mín í Sjávarútvegsskóla GRÓ hefur verið gríðarlega dýrmæt,“ segir Annakay. Auk námsins í Hafnarfirði hefur hún heimsótt Matís, fiskvinnslur, löndunarstaði og stofnanir víða um land. „Að sjá hvernig íslenskt fiskveiðikerfi virkar sem heild, frá gagnasöfnun til vinnslu og verðmætasköpunar, hefur opnað augun mín fyrir því hvað er mögulegt heima á Jamaíku.“ Hún vonast til að nýta nýfengna þekkingu til að efla gagnastjórnun, styðja við stefnumótun og hvetja sjómenn til nýsköpunar og til að efla þátttöku þeirra í virðiskeðjunni. Líkt og ólíkt á Íslandi og JamaíkuHún segir að stærsti munurinn á löndunum tveimur varðandi fiskveiðistjórnun sé hvernig stjórnsýslan og fiskveiðiauðlindin er metin. „Á Íslandi er er litið á fiskveiðar sem þjóðarauðlind sem þarf stöðuga vernd og eftirlit. Lög, stofnanir, skráning og gagnaúrvinnsla, allt vinnur þetta saman. Ákvarðanir eru byggðar á vísindum og atvinnugreinin sjálf styður sjálf strangt eftirlit.“ „Á Jamaíku er atvinnugreinin einnig bundin reglum, en stjórnsýslan er sundurleitari og byggir oft á hefðum og persónulegum tengslum. Tengsl milli lagagreina, stofnana, eftirlits og gagna eru veikari enda gera margir sér ekki grein fyrir langtímavirði fiskveiða,“ segir Annakay. Það er því ljóst að metnaðarfullt verkefni bíður Annakay þegar hún snýr heim með nýja þekkingu og hugmyndir um hvernig megi bæta má gagnastjórnun í þágu sjálfbærra fiskveiða Jamaíka.
*STEM stendur fyrir Science, Technology, Engineering and Mathematics **IUU - Illegal, Unreported and Unregulated Fishing Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 205 Gestir í dag: 1 Flettingar í gær: 2765 Gestir í gær: 9 Samtals flettingar: 2577391 Samtals gestir: 71421 Tölur uppfærðar: 12.2.2026 01:51:07 |
||
© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is