11.02.2026 22:44Sjávarútvegsskólinn Gró-GTPFóru yfir árangur SjávarútvegsskólansÞorgerður Katrín utanríkisráðherra og Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti, sjást hér með helstu framsögumönnum fundarins og Dr. Áslaugu Ásgeirsdóttur, rektor Háskólans á Akureyri. mbl.is/Þorgeir Árangur af tæplega þriggja áratuga starfi Sjávarútvegsskóla GRÓ var til umfjöllunar á sérstökum fundi, sem haldinn var í Háskólanum á Akureyri í morgun. Á fundinum, sem bar yfirskriftina „Frá þekkingu til áhrifa: mannauðsuppbygging til sjálfbærrar þróunar í sjávarútvegi“, sögðu nemendur sjávarútvegsskólans frá því hvernig námið við skólann hefði nýst þeim til að stuðla að sjálfbærum fiskveiðum og uppbyggingu fiskeldis. Í tilkynningu frá skólanum um viðburðinn kemur fram að nemendur skólans séu allir sérfræðingar og tilnefndir til þátttöku vegna mikilvægra starfa sinna við að stuðla að sjálfbærum sjávarútvegi í heimalöndum sínum. Fundurinn þótti vel sóttur. mbl.is/Þorgeir Alls hafa 512 nemendur frá 68 mismunandi löndum útskrifast frá Sjávarútvegsskóla GRÓ frá því að skólinn var settur á fót árið 1997. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra flutti ávarp og Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, bauð gesti velkomna. Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti lýðveldisins, sótti einnig fundinn. Einn fjögurra skóla og lykilstoð í þróunarsamvinnuÍ tilkynningunni kemur einnig fram að Sjávarútvegsskólinn sé einn fjögurra skóla sem starfræktir eru á vegum GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, en í gegnum þá er íslenskri sérþekkingu sem nýtist þróunarlöndunum til að stuðla að sjálfbærri þróun komið á framfæri. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra (t.h.) hlýðir á fundinn með aðstoðarmanni sínum, Ingileif Friðriksdóttur. mbl.is/Þorgeir Hinir skólarnir þrír starfa á sviði jafnréttis, jarðhita og landgræðslu. Skólarnir hafa um áratugabil verið ein af lykilstoðum í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands. Hinn 5. nóvember var haldinn svipaður viðburður í Háskóla Íslands um Jarðhitaskóla GRÓ. Þá verða tveir viðburðir til viðbótar, sá fyrri fjallar um Jafnréttisskóla GRÓ og verður haldinn hinn 3. mars, og sá næsti fjallar um Landgræðsluskóla GRÓ þann 7. maí, en þeir munu báðir fara fram í Háskóla Íslands. Heimild mbl.is / 200 milur Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 205 Gestir í dag: 1 Flettingar í gær: 2765 Gestir í gær: 9 Samtals flettingar: 2577391 Samtals gestir: 71421 Tölur uppfærðar: 12.2.2026 01:51:07 |
© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is