14.03.2026 13:19

Flotkvíin á Akureyri sé sú eina með klassavottun

                         Þýski frystitogarinn Cuxhaven NC100 i flotkvinni mynd þorgeir Baldursson 

 

Klassavottun flotkvíar Slippins Akureyri frá alþjóðlega flokkunarfélaginu Bureau Veritas hefur verið endurnýjuð.

Þetta kemur fram á vef fyrirtækisins þar sem segir að með endurnýjuninni sé staðfest að kvíin uppfylli áfram strangar kröfur um öryggi, ástand og rekstur.

„Vottunin staðfestir að flotkvíin sé í góðu ástandi og tryggi örugga þjónustu fyrir skip sem tekin eru í kví. Hún styrkir jafnframt getu Slippins Akureyri til að þjónusta fjölbreyttan flota skipa, þar á meðal skip í eigu Íslendinga á borð við varðskip, ferjur og rannsóknarskip,“ segir á slippurinndng.is.

 

Eykur möguleika á verkefnum fyrir erlenda aðila

Þá segir að endurnýjun klassavottunarinnar auki einnig möguleika fyrirtækisins á að taka að sér verkefni fyrir erlenda aðila, þar sem vottun frá viðurkenndu flokkunarfélagi sé mikilvæg forsenda fyrir því að skipaeigendur og rekstraraðilar geti treyst aðstöðu til viðhalds og viðgerða.

„Flotkví Slippins Akureyri er eina flotkvíin á Íslandi með slíka vottun. Hún endurspeglar þann gæðastaðal sem fyrirtækið leggur áherslu á í starfsemi sinni og það traust sem flokkunarfélög bera til þeirrar fagmennsku sem þar fer fram,“ segir á slippurinndng.is.

 

 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1591
Gestir í dag: 21
Flettingar í gær: 2164
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 2700532
Samtals gestir: 72051
Tölur uppfærðar: 14.3.2026 16:07:18
www.mbl.is