|
Lúxushótelið á höfðanum við Grenivik Mynd þorgeir Baldursson 2026
Verktakar eru nú að störfum við lúxushótelið Höfða Lodge við Grenivík. Greint var frá því á dögunum að breski auðmaðurinn Russ DeLeon hefði eignast hótelið að fullu eftir að Íslendingar seldu hlut sinn í félaginu. Menn á hans vegum eru væntanlegir til landsins í næstu viku og þá má búast við að framkvæmdir fari á fullt á ný.
„Herbergin komu tilbúin en það er eftir vinna við sameiginlegu rýmin, eldhús, anddyri og fleira. Þá á eftir að koma upp kerfum og vinna að tengingum. Ég tel að það séu svona 10-20% af verkinu eftir,“ segir Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps.
„Þetta er stór og mikil bygging og allt tekur sinn tíma. Ég held þó að planið sé að klára á þessu ári,
hvort sem þeir ná að opna í haust eða síðar,“ segir hann enn fremur.
 |
| útsýnið yfir Eyjafjörðinn er frábært þegar allt verður tilbúið mynd þorgeir Baldursson |
Miklar tafir síðustu ár
Eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu hafa miklar tafir verið við byggingu hótelsins, en upphaflega var stefnt að opnun árið 2023. Kostnaður fór langt fram úr áætlunum fyrri eigenda.
Hótelið er byggt á Þengilhöfða skammt frá Grenivík. Útsýni er yfir Eyjafjörðinn frá herbergjum hótelsins, sem verður 6.000 fermetrar að flatarmáli, með 42 herbergjum og 28 starfsmannaherbergjum.
 |
|
Hótelið er byggt á Þenglahöfða með stórbrotnu útsýni yfir Eyjafjörðinn mynd þorgeir Baldursson
|
„Staðurinn er alveg magnaður. Ég hef farið upp eftir með fólki frá mörgum löndum, á öllum tímum árs og í öllum veðrum, og það verða allir jafn dolfallnir yfir staðnum. Ég held að þetta hótel geti orðið vinsælt,“ segir sveitarstjórinn.
 |
|
Hótelið er samsett út fullbúnum einingum mynd þorgeir Baldursson
 |
| Þorpið á Grenivik en þar búa um 300 manns mynd þorgeir Baldursson |
|
|