19.03.2026 21:11

Hætta útgerð Gullvers NS og Jóhönnu Gísladóttur GK

Kaflaskil hjá Síldarvinnslunni

Gullver NS var tekið í notkun árið 1983.

Gullver NS var tekið í notkun árið 1983. mbl.is/Þorgeir Baldursson

 

Síldarvinnslan hefur ákveðið að hætta útgerð togarans Gullvers NS, sem lauk sinni síðustu veiðiferð í gær þegar skipið landaði 110 tonnum í Hafnarfirði. Skipið hefur verið í notkun í rúm 40 ár. 

Fram kemur í tilkynningu frá Síldarvinnslunni að ákvörðunin sé hluti af breytingum á útgerð ísfisktogara fyrirtækisins.

Birtingur tekur við 

Samhliða því verður einnig hætt útgerð Jóhönnu Gísladóttur GK um næstu mánaðamót, en í staðinn mun nýr togari, Birtingur NK, taka við hlutverki þeirra í flotanum.

Gullver hefur þegar verið auglýstur til sölu og verður Jóhanna Gísladóttir sett á söluskrá síðar. Óvíst er hver framtíð beggja skipa verður.

Kom til landsins 1983

Gullver NS var smíðaður í Flekkefjord í Noregi og kom nýr til Seyðisfjarðar í júlí 1983. Skipið var upphaflega í eigu Gullbergs hf., en Síldarvinnslan eignaðist það árið 2014 þegar félagið keypti Gullberg. Eftir sameiningu félaganna um áramótin 2016–2017 hélt útgerð skipsins áfram frá Seyðisfirði.

Uppfyllir ekki lengur kröfur

Í tilkynningu segir að togarinn, sé 674 tonn að stærð og búinn 1770 hestafla vél. Hann hafi hins vegar nú náð þeim aldri að hann uppfyllir ekki lengur þær kröfur sem gerðar eru til nútíma fiskiskipa.

 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 126
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 5154
Gestir í gær: 46
Samtals flettingar: 2718357
Samtals gestir: 72253
Tölur uppfærðar: 20.3.2026 00:38:15
www.mbl.is