21.03.2026 23:22

Snekkjunni LA DATCHA bannað að leggjast að bryggju

Erlendri snekkju var meinað að leggjast að bryggju á Akureyri í dag, laugardag, á grundvelli þvingunaraðgerða gegn Rússlandi

sem íslensk stjórnvöld framfylgja, vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Ríkisútvarpið greinir frá þessu í kvöld.

Í svari Landhelgisgæslunnar eftir fyrirspurn fréttastofu RÚV kemur fram að ákvörðunin um að snekkjunni var „meinuð hafnarkoma“

eins og það er kallað, hafi byggt á þeim hluta þvingunaraðgerðanna sem kveður á um að skip sem siglir undir rússneskum fána

og hefur skipt um fánaríki eftir 24. febrúar 2022 er óheimill aðgangur að höfn í ríki á EES-svæðinu.

                                                                         Snekkjan  LA DATCHA á Pollinum í dag. Mynd: Þorgeir Baldursson

Í ljós hafi komið að skipið sigldi undir rússneskum fána frá því í apríl 2021 fram í september 2022 og „á þeim

grundvelli tilkynnti Landhelgisgæsla Íslands skipstjóra snekkjunnar að henni væri meinuð hafnarkoma á Akureyri,“

segir í frétt RÚV. „Landhelgisgæslan og utanríkisráðuneytið hafa verið í samskiptum vegna málsins og er það enn í vinnslu.

Snekkjan er enn staðsett í Eyjafirði og er varðskipið Freyja einnig staðsett þar“

                               3011 Varðskipið Freyja á siglingu á Eyjafirði mynd þorgeir Baldursson 
 
 
                                                   Snekkjan. LA DATCHA Á Eyjafirði i dag mynd þorgeir Baldursson 

Snekkjan vakti athygli margra á Pollinum í morgun. Vísir greindi frá því að hún væri í eigu fyrrverandi milljarðamærings frá Rússlandi, Olegs Tinkovs, stofnanda netbankans Tinkoff. 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1366
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 4328
Gestir í gær: 45
Samtals flettingar: 2727721
Samtals gestir: 72339
Tölur uppfærðar: 22.3.2026 03:04:50
www.mbl.is