|
3011 Varðskipið Freyja á Eyjafirði i gær 22 mars mynd þorgeir Baldursson
Varðskipið Freyja stefnir nú í átt að Austfjörðum þar sem óvissustig er í gildi vegna snjóflóðahættu. Á Seyðisfirði er hættustig í gildi og hafa fimm svæði í bænum verið rýmd.
Í svari Ásgeirs Erlendssonar upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar segir að á þriðja tímanum í dag hafi lögreglan óskað eftir því að skipið yrði til taks á Austfjörðum vegna snjóflóðahættu.
Skipið var þá í Eyjafirði og hélt strax af stað. Gert er ráð fyrir að það verði komið á Seyðisfjörð um hádegi á morgun.
 |
|
3011 Varðskipið Freyja mynd þorgeir Baldursson
 |
| Varskipið Freyja á fullri ferð á Eyjafirði mynd þorgeir Baldursson |
|
|