|
snekkjan La Datcha, við bryggju i Krossanesi mynd þorgeir Baldursson 27 mars 2026
frétt mbl.is frá þvi i dag um snekkjuna
Snekkja auðmannsins Oleg Tinkov, La Datcha, liggur nú við bryggju á Akureyri þar sem hún tekur olíu og vistir.
Athygli vakti um liðna helgi þegar snekkjunni var meinaður aðgangur að höfninni vegna þvingunaraðgerða gegn Rússum.
Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni stendur hafnarbannið áfram. Þrátt fyrir það var snekkjunni veitt undanþága til að leggjast að bryggju af öryggisástæðum.

Best hægt að tryggja öryggi
„Af öryggisástæðum var samþykkt að snekkjan fengi að taka olíu og vistir. Með þeim hætti var best hægt að tryggja að hún gæti haldið frá Íslandi með öruggum hætti,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.


La Datcha við bryggju á Krossanesi. mbl.is/Þorgeir
Fer frá Íslandi á næstum dögum
Gert er ráð fyrir að snekkjan fari út fyrir 12 mílna landhelgi Íslands fyrir 30. mars. Þangað til þarf hún þó að leita skjóls vegna veðurs.
Landhelgisgæslan veitti heimild fyrir komu snekkjunnar til hafnar, en lögregla og tollayfirvöld höfðu umsjón með framkvæmd olíutöku og vistunar.
Fréttaritari mbl.is tók myndir af snekkjunni síðdegis í dag.
|