29.03.2026 09:34

Árni Friðriksson HF 200 i slippnum

                       Árni Friðriksson HF200 i Slippnum 28 mars 2026 mynd þorgeir Baldursson 

Klassavottun flotkvíar Slippins Akureyri frá alþjóðlega flokkunarfélaginu Bureau Veritas hefur verið endurnýjuð.

Með endurnýjuninni er staðfest að kvíin uppfylli áfram strangar kröfur um öryggi, ástand og rekstur.

Vottunin staðfestir að flotkvíin sé í góðu ástandi og tryggi örugga þjónustu fyrir skip sem tekin eru í kví.

Hún styrkir jafnframt getu Slippins Akureyri til að þjónusta fjölbreyttan flota skipa, þar á meðal skip í eigu Íslendinga á borð við varðskip, ferjur og rannsóknarskip.

                       Árni Friðriksson HF200 i Slippnum 28 mars 2026 mynd þorgeir Baldursson 

 

Endurnýjun klassavottunarinnar eykur einnig möguleika fyrirtækisins á að taka að sér verkefni fyrir erlenda aðila,

þar sem vottun frá viðurkenndu flokkunarfélagi er mikilvæg forsenda fyrir því að skipaeigendur og rekstraraðilar

geti treyst aðstöðu til viðhalds og viðgerða.

Flotkví Slippins Akureyri er eina flotkvíin á Íslandi með slíka vottun.

Hún endurspeglar þann gæðastaðal sem fyrirtækið leggur áherslu á í starfsemi sinni og það traust sem flokkunarfélög

bera til þeirrar fagmennsku sem þar fer fram.

Heimild slippurinn dng 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1186
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 2914
Gestir í gær: 3
Samtals flettingar: 2749514
Samtals gestir: 72426
Tölur uppfærðar: 29.3.2026 13:43:13
www.mbl.is