30.05.2026 09:01Vestmannaeyjarhöfn fær nýjan LéttirLéttir tekinn í notkun í EyjumStefna að og telja sig þurfa einnig aflmeiri lóðsbát vegna sífellt stærri skipa sem koma til Vestmannaeyjahafnar
Ekki gafst tími til að klára að mála Létti fyrir fyrstu verkefni hans. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
Vestmannaeyjahöfn keypti í byrjun árs notaðan dráttarbát frá Kanada. Voru þetta fyrstu bátakaup hafnarinnar frá því Lóðsinn var afhentur 1998.
Til stóð að mála bátinn og er reyndar búið að grunna hann allan. Ekki vannst tími til þess klára málningarvinnuna vegna þess að Léttir var strax kominn í verkefni að aðstoða við dælingu á laxaseiðum úr Viðlagahöfn í flutningaskip. Nýr Léttir er smíðaður 2017 og er í Bureau Veritas klassa. Hann er af gerðinni StanTug 1205 frá Damen, 13 metra langur og 5,3 metrar á breidd, með 9 tonna dráttargetu og tvær skrúfur sem auka stjórnhæfni við erfiðar aðstæður. Í honum eru tvær Volvo Penta vélar, sem saman skila 700 hestöflum. Báturinn er keyptur á rétt rúmar 110 milljónir króna.
Njáll Kolbeinsson hjá Vestmannaeyjahöfn segir að höfnin þurfi einn minni bát samhliða Lóðsinum. Léttir er þægilegur í notkun innan hafnar. „Við erum að fá skip núna sem sækja lifandi lax út í Viðlagafjöru. Við notuðum nýja bátinn fyrir helgi til að tengja rör úr seiðatönkunum yfir í skipið. Lóðsinn kæmist ekki þarna alveg upp í fjöru, hann er það stór og djúpristur. Nýi báturinn er fín viðbót. Það voru lengst af til tveir bátar hérna við höfnina. Hér var annar Léttir en hann fór úr rekstri fyrir um það bil tíu árum fyrir aldursakir,“ segir Njáll.
Í Vestmannaeyjahöfn er skylduhafnsaga sem þýðir að hafnsögumaður fer í öll skip sem þangað koma og þegar þau fara. Fram til þessa hefur verið farið með hafnsögumanninn í Lóðsinum en nú sjá menn fram á að fara mun frekar á Létti til að sinna þessum erindum sem mun skila sér í olíusparnaði og minni fyrirhöfn. Stöðugt stærri skipÞegar gámaskip, skemmtiferðaskip og önnur stærri skip koma til Eyja hefur Lóðsinn nýst til þess að snúa þeim inni í höfninni. Staðreyndin er hins vegar sú að skipin sem koma til Eyja verða stöðugt stærri og aðkallandi sé að fá stærri dráttarbát í stað Lóðsins. „Við viljum kaupa nýjan bát helst frá Damen. Ef það verður byggð hér stórskipahöfn úti á Eiði, sem fer vonandi að gerast, þá munu koma hingað enn stærri skip. Þá verðum við að hafa öflugri bát en Lóðsinn,“ segir Njáll.
Lóðsinn var smíðaður í Vestmannaeyjum árið 1998. Hann er því 28 ára gamall á árinu. Hann er með rúmlega 2.000 hestafla Mitsubishi vél. Toggeta hans er 28 tonn en til samanburðar er Magni sem Faxaflóahafnir eiga, með 6.900 hestafla Caterpillar vél og 85 tonna dráttargetu áfram og 84 tonna aftur á bak. Njáll segir að draumurinn sé að Vestmannaeyjahöfn fái í stað Lóðsins dráttarbát að svipaðri stærð en mun öflugri og með 50-60 tonna dráttargetu. Ljóst er að nýr bátur af þessu tagi kostar mörg hundruð milljónir króna og þyrftu að koma til samningar milli ríkisins og Vestmannaeyjabæjar um kaup á slíku tæki. Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1120 Gestir í dag: 4 Flettingar í gær: 1354 Gestir í gær: 4 Samtals flettingar: 2998275 Samtals gestir: 73401 Tölur uppfærðar: 30.5.2026 12:21:06 |
© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is