08.06.2026 22:25

Merkileg saga sem við megum ekki gleyma

Merkileg saga sem við megum ekki gleyma

Birt með Leyfi Akureyri.net 

Skapti Hallgrímsson - skapti@akureyri.net  08.06.2026 kl. 06:00

Mynd: Þorgeir Baldursson

Minnisvarði um síðutogara og síðutogarasjómenn var afhjúpaður við hátíðlega athöfn í gær, á sjómannadaginn, á Höepfnerssvæðinu, skammt norðan bækistöðvar siglingaklúbbsins Nökkva. Minnisvarðinn er „fyrir margt mjög merkilegur og í honum er sögð svo merkileg saga, saga sem við Íslendingar megum ekki gleyma,“ sagði Sigfús Ólafur Helgason í ávarpi í gær, en hann hefur farið fyrir hópi gamalla sjómanna sem stóð að verkefninu.

„Það væri hægt að halda hér langa tölu um árin öll í sögu síðutogara, í gleði og sorg og sannarlega var lífið ekki alltaf dans á rósum, og við Íslendingar guldum stundum með lífi sjómanna gjaldið fyrir að sækja sjóinn dýpra og lengra vegna þess að skipin urðu stærri og betri. En eins og allir vita hefur ekki en þann dag í dag verið byggt það skip að stórsjór og ofviðri geti ekki grandað því,“ sagði Sigfús.

Söguskilti er við minnisvarðann. Sæmundur Pálsson, sem Sigfús kallaði guðföður verksins var fenginn til að losa borða og svipta dúk af skiltinu. Mynd: Þorgeir Baldursson

Hann sagði sögu síðutogara samofna „þroska og vaxtaferli okkar Íslendinga og því er það svo ánægjulegt að einmitt nú, kannski 50 árum og seint, sem við stöndum hér við minnisvarða um þessa mjög svo merku sögu.“

Sigfús rifjaði upp að fyrir um það bil 15 árum hafi verið rætt manna á meðal að reisa yrði myndarlegan minnisvarða um sögu síðutogara og síðutogarasjómanna á Íslandi, „og því segi ég, loksins, loksins blasir þetta fallega verk við ...“

Sigfús sagði: „Ryðhrúgu kalla þetta sumir, en við sem vitum um þessa sögu, vitum alveg hvað þetta fallega verk er að segja okkur.“

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Jón Þórisson hannaði verkið

„Fyrir okkur sem teljumst sjómenn fyrr og síð er þetta minnismerki samnefnari yfir þá sögu sem honum er ætlað að faðma og umvefja, og ég segi það hiklaust að Jóni Þórissyni leikmyndateiknara sem hannaði þetta verk, blessuð sé minning hans, tókst það svo sannarlega, og það er mín trú að þetta verk og þessi staður eigi eftir að verða viðkomustaður margra sjómanna og aðstandenda þeirra til að minnast áranna, mannanna og lífsins um borð í þessum svokölluðu síðutogurum.“

Sigfús sagði frá því að hann og hópur annarra eldri sjómanna á Akureyri, og reyndar víðar að, hafi á tveimur síðastliðnum árum farið í heimsóknir „til vina okkar í Hull og Grimsby í Bretlandi og Bremenhaven og Cuxhaven í Þýskalandi og séð þar hvað þessar þjóðir, báðar miklu fiskveiðiþjóðir, eins og við, vernda og virða með væntumþykju þá sögu þeirra sem kallast „togarasaga“ og sú elska og væntumþykja þeirra er sýnileg gestum og gangandi í öllum þessum borgum og er sterkur segull m.a. fyrir ferðamenn að sjá og kynnast þeirra sögu.“

Mynd: Þorgeir Baldursson

Sigfús spurði: Hvar erum við Íslendingar, sennilega mesta fiskveiðiþjóð í heimi, staddir í verndun togarasögu okkar? Og var fljótur að svara sjálfur, á þann veg að Íslendingar stæðu langt að baki kærum vinum, Bretum og Þjóðverjum, „en við getum þó lært af þeim hvernig á að gera þetta,“ sagði hann.

„Fyrir um það bil þremur árum varð til hreyfing hér á Akureyri sem samanstóð og stendur enn að verndun útgerðarsögu okkar og er þessi minnisvarði kannski skýrasta dæmið um atorkuna sem þessi hópur getur og hefur sýnt. Eftir hann liggja auk þessa verks 5 skipslíkön af togurum.“

Mynd: Þorgeir Baldursson

Sigfús hefur oft hvatt bæjaryfirvöld á Akureyri til að gera betur á þessu sviði og beindi orðum sínum að nýrri bæjarstjórn: „Enn er tími fyrir ykkur að fá hjá okkur sjómönnum hjálp við að koma þessari sögu fyrir á þeim stalli sem henni sannarlega ber, og þessi fjöldahreyfing sjómanna er meira en til í að koma til samstarfs við ykkur. Við megum samt ekki bíða lengi því á hverju ári erum við að missa hluta af sögunni þar sem maðurinn með ljáinn heggur.“

Sigfús sagði að endingu, fyrir hönd vinnuhópsins sem stýrði framkvæmdinni: „Við sáum það í Bretlandi og Þýskalandi hvað minnismerki þeirra um sjómenn eru þeim mikilvæg og vart líði sá dagur að ekki sé einhver minning haldin við minnismerkin, blóm lögð við þau í minningu einhvers og þessi minnismerki í öllum þessum borgum eru samkomustaðir sjómanna og fjölskyldna þeirra í sorg og í gleði.“

Hann sagði það einlæga ósk hópsins að svo verði einnig með þennan stað og þetta minnismerki. „Kertakrossin er einmitt tilvalinn til að tendra ljós í minningu, einnig bekkirnir til að íhuga, hugsa og njóta.“

Séra Magnús Gunnarsson blessaði minnismerkið í gær. Mynd: Þorgeir Baldursson

Sigfús Ólafur Helgason ávarpar viðstadda í gær. Mynd: Þorgeir Baldursson

Mynd: Þorgeir Baldursson

Mynd: Þorgeir Baldursson

Mynd: Þorgeir Baldursson

Margir komu að verkefninu og Sigfús Ólafur kvaðst vilja nefna nokkra. Hann sagði:

  • Slippurinn á Akureyri smíðaði verkið fyrir okkur.
  • Röskir rafvirkjar sáu um og gáfu alla vinnu við lýsinguna sem mun þegar fer að rökkva í haust nýtast og þá mun minnismerkið fá nýjan blæ.
  • Prentsmiðjan ehf á Akureyri sá um prentun söguskiltisins sem er minnisvarðann.
  • Steinsmiðjan lét okkur í té marmarabekkina er hér standa við verkið og gaf einn þeirra í minningu sjómanna.
  • Auk þess gaf fjölskylda Vilhelms Þorsteinssonar og Önnu Kristjánsdóttur einn bekk.
  • Það gerðu einnig Sjómannafélag Eyjafjarðar og Félag skipstjórnarmanna.
  • Kertakrossinn smíðaði og gaf HD iðn- og tækniþjónustan og Akureyrarbær sá um frágang á svæðinu hér um kring.

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 95
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 1161
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 3018633
Samtals gestir: 73466
Tölur uppfærðar: 9.6.2026 00:57:31
www.mbl.is