 |
|
Franska Herskipið Le Monge við bryggju á Akureyri i kvöld mynd þorgeir Baldursson
|
|
|
Franska Herskipið Le Monge við bryggju á Akureyri i kvöld mynd þorgeir Baldursson
 |
Franska Herskipið Le Monge við bryggju á Akureyri i kvöld mynd þorgeir Baldursson |
|
|
Franskt herskip lagðist við bryggju á Akureyri í gær.Skipið er í hefðbundinni heimsókn þar sem áhöfnin hvílir sig og tekur vistir.
Pétur Ólafsson, hafnarstjóri á Akureyri, segir að skipið fari úr höfn eftir helgi. Það er hér með leyfi yfirvalda.
Skipið heitir Le Monge og er hannað til að fylgjast með og mæla feril eldflauga.
Áhöfn skipsins telur 115 sjóliða og 90 tæknimenn úr hernum og almenna borgara.
Skipið var fyrst tekið í notkun árið 1992 og hefur heimahöfn í Brest í Frakklandi.
Skipið hefur áður komið til Íslands, m.a. í Reykjavíkurhöfn árið 2012.
Heimild mbl.is
Myndir Þorgeir Baldursson
Skipið er engin smásmíði