29.06.2008 08:50

Keilir seldur til Danmerkur

Fréttablaðið, 29. jún. 2008 06:30

Ekkert olíuskip lengur í eigu þjóðarinnar

mynd
Síðasta olíuflutningaskip Íslendinga er nú komið til Dana. Ekkert olíuflutningaskip kemst því til fjölmargra dreifingaraðila á landsbyggðinni eins og staðan er í dag.

Olíuflutningaskipið Keilir, sem var eina slíka skipið í eigu Íslendinga, var í sinni síðustu ferð umhverfis landið í liðinni viku og er komið til Danmerkur þar sem nýir eigendur hafa tekið við því. ,,Þar með lauk þeim hluta í íslenskri skipasögu," segir Hörður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Olíudreifingar sem átti skipið, sem var selt fyrir um mánuði. ,,Það er mjög erfitt að vera að gera út eitt skip og þurfa að reyna að afla vinnu fyrir það 200 daga á ári þar sem verkefnin hérlendis taka ekki nema 110 til 120 daga á ári," segir hann. ,,Einnig hefur dregið úr verkefnum síðan olíuverð fór að hækka og hafa sífellt fleiri útgerðarfyrirtæki byrjað að nota svartolíu en við fluttum lítið af svartolíu með Keili."  Keilir hefur bæði flutt olíu til fjölmargra staða á landsbyggðinni en einnig flutt olíu hingað til lands frá Noregi og Svíþjóð. Þau erlendu skip sem flytja olíu hingað eru of stór til að koma til hafnar á fjölda þessara staða á landsbyggðinni svo ekkert skip fer með olíu þangað eins og staðan er nú. ,,Við munum hugsanlega leigja skip í staðinn fyrir Keili. Við munum taka ákvörðun um það á næstu tíu dögum," segir Hörður. ,,Þetta er dapurlegt," segir Kristján Möller samgönguráðherra. Hann lýsti því yfir fyrir nokkrum árum að honum væri umhugað um að koma strandflutningum á þar sem þeir séu þjóðhagslega hagkvæmir. ,,Ég er ennþá áhugamaður um strandsiglingar en helst hefði ég viljað að þær gengju á markaðslegum forsendum en ef svo er ekki verður að skoða aðrar leiðir," segir hann. Kristján segir að ekki sé að vænta útboðs á ríkisstyrktum strandflutningum.  ,,Það var gerð tilraun í fyrra til að koma hér á alþjóðlegri skipaskrá og að koma til móts við skipafélög með skattaafslætti og slíku en það var ekki hljómgrunnur fyrir því hjá fyrirtækjunum þar sem þetta gengi of skammt og kæmi of seint. Mér er hins vegar spurn hvort vandi strandsiglinga hérlendis sé sá að sömu aðilarnir skuli flytja vöruna til og frá landinu og eiga jafnframt tvö stærstu landsflutningafyrirtækin." Þar á hann við Samskip og Eimskip.

- Meira um skipasöluna og núverandi nafn skipsins í skoðunum (álitum) hér undir.


 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 544
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 7696
Gestir í gær: 1224
Samtals flettingar: 592979
Samtals gestir: 24625
Tölur uppfærðar: 18.4.2024 07:32:03
www.mbl.is