29.05.2009 21:58

Ögnin hans Svenna rakara






Gunnar Th. hefur verið iðinn við kolann, að færa okkur öðruvísi frásagnir úr heimi bátaútgerðar og hér bregst honum ekki bogalistin, frekar en áður og birtum við nú myndasyrpu og skemmtilega frásögn sem fylgdi með:

Svenna rakara langaði í bát, enda gamall sjómaður frá fyrri tíð og alla tíð í anda. Nokkrir bátar komu til greina, en enginn féll þó fullkomlega að hugmyndum Svenna.
Ég frétti af leitinni og fékk að taka þátt í henni. Vestur á Ísafirði vissi ég af Ögninni. Ögnin er einn af gömlu léttabátunum af síldinni, norsksmíðaður súðbyrðingur, brjóstamikill og sterkbyggður gaflbátur með hoggin bönd. Það eru ekki ýkja mörg ár síðan völundurinn Óli á Árbæ endurbyggði bátinn og breytti honum úr opnu leikfangi í fullbúinn fiskibát. Allt handbragð á bátnum var með merkjum Óla og bæði skrokkur og vélbúnaður í prýðis ásigkomulagi. Óli seldi bátinn þegar hann lauk endurbyggingu GUÐNA 'IS , frá Ingjaldssandi, og nú var Ögnin aftur föl fyrir skikkanlegan pening en staðsetningin var böggullinn sem fylgdi skammrifinu. Strandferðaskip heyra sögunni til og flutningur báts með venjulegum flutningabíl milli landshluta er illyfirstíganlegur venjulegu fólki vegna kostnaðar.
Svenna rakara leist hins vegar strax afskaplega vel á Ögnina þegar hann sá hana á mynd, og það leið ekki á löngu þar til kaup voru gerð. Þetta mun hafa verið uppúr síðustu áramótum og strax var farið að kanna mögulegar flutningsleiðir suður.
 
Ég var á ferð á Ísafirði undir lok febrúar og myndaði þá bátinn í bak og fyrir. Myndunum var svo komið til rakarans á tölvuformi. Þær yrðu svo að duga þar til flutningur fengist. Á rakarastofunni við Laugaveg 168 hefur mikið verið skrafað, skeggrætt og skipulagt þennan vetur.........
 
Nú fyrir skömmu gengu greiðviknir menn í verkið, og fóru vestur á stórum pallbíl með enn stærri kerru. Á hana var svo Ögninni snarað í vagninum og munaði lítið um. Ferðin suður gekk framar vonum, og nú stendur Ögnin í hlaðinu hjá Svenna rakara, sem notar hvern sólargeisla til að skrapa og mála. Sá sem þetta ritar fær þann heiður að leggja hönd á vélbúnaðinn, og 1. stýrimaður hefur verið ráðinn Sverrir Guðmundsson, fyrrum skipstjóri, útgerðarmaður, fiskverkandi og verslunarmaður. Ég get aðeins sagt fyrir sjálfan mig, en þykist þó vita að það sama eigi við um fleiri,  að það er bæði heiður og ánægja að fá að taka þátt í svona verkefni frá upphafi, og fylgjast með framvindunni.
 
Þrátt fyrir kreppu, mótbyr og dýrtíð ríkir allavega hamingja á einu heimili í Mosó.......
 
(myndir af sjósetningu koma síðar)
 
Kv. Gunnar Th.





 Ég gleymdi að nefna að Ögnin er aðeins 5.70 að lengd og því undir skráningarstærð. Óli á Árbæ skráði hana hins vegar sem fiskibát, með skipaskrárnúmerinu 9809, og ÍS 164. 
 
Kv. Gunnar Th.




        9809. Ögnin ÍS 164 © myndir Gunnar Th. 2009 (síðustu tvær myndirnar eru símamyndir í gegnum kapal en hinar eru ljósmyndir).

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1078
Gestir í dag: 97
Flettingar í gær: 1506
Gestir í gær: 141
Samtals flettingar: 606788
Samtals gestir: 25674
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 16:54:17
www.mbl.is