30.11.2010 20:01

Ný 15tonna Cleopatra 38 afgreidd á Rif


                             2800-Tryggvi Eðvarðs SH 2 © mynd Trefjar.is 

Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Tryggvi Eðvarðs SH - 2 og leysir af hólmi eldri bát með sama nafni.  Báturinn mælist 15brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu.  Tryggvi Eðvarðs er af gerðinni Cleopatra 38.

Útgerðarfélagið Nesver ehf á Rifi fékk nú á dögunum afhentann nýjan Cleopatra bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.

Að útgerðinni stendur Ásbjörn Óttarsson og fjölskylda.  Arnar Laxdal Jóhannsson verður skipstjóri á bátnum.

 Aðalvél bátsins er af gerðinni Cummins QSM 11610hp tengd ZF gír.

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno.

Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.  Báturinn er útbúinn til línuveiða.  Línuspil og færaspil er frá Beiti.

Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

 

Rými er fyrir 12stk 660lítra kör í lest.  Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla.  Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta.  Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.

 

 

                             

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1321
Gestir í dag: 105
Flettingar í gær: 1506
Gestir í gær: 141
Samtals flettingar: 607031
Samtals gestir: 25682
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 19:57:05
www.mbl.is