Færslur: 2016 Apríl

21.04.2016 13:13

Rækjuveiðar við Svalbarða

 

 

Grænlenski togarinn Timmiarmiut á rækjuveiðum

Vaxandi rækjuveiði á Svalbarðasvæðinu

Sigurður Þórðarson og áhöfn hans á grænlenska togaranum Timmiarmiut komu til Tromsö í Norður-Noregi í síðustu viku

eftir 58 daga túr á Svalbarðasvæðið. Afraksturinn var 330 tonn af rækju að verðmæti 170-190 milljónir íslenskra króna.

 

GUÐJÓN EINARSSON

gudjon@fiskifrettir.is

Grænlenski togarinn Timmiarmiut er meðal um það bil tíu togara sem stundað hafa rækjuveiðar í Barentshafi að undanförnu,

annars vegar í Smugunni og hins vegar á Svalbarðasvæðinu.

„Við lögðu af stað frá Tromsö 12. febrúar síðastliðinn og vorum að veiðum á Svalbarðasvæðinu norðaustan við Hopen-dýpið,

nánar tiltekið norðan við 76. gráðuna og við 36. gráðu austur,“ segir Sigurður Þórðarson skipstjóri í samtali við Fiskifréttir.

„Fiskiríið var frekar dapurt fyrstu vikurnar en síðan fór það batnandi og undir það síðasta var komin góð veiði, alveg upp í 16-17 tonn á sólarhring þegar best lét.

Við höfum ekki leyfi grænlenskra stjórnvalda til þess að veiða í Smugunni en önnur skip voru þar í ágætri veiði framan af.

Undir það síðasta komu þau samt vestur á okkar svæði því bæði var veiðin farin að dala í Smugunni

og eins hafa þau þurft að kljást við snjókrabbabátana sem eiga það til að leggja gildrur sínar á veiðislóð rækjutogaranna.

Krabbabátar eru reyndar einnig hér á Hopen-svæðinu en við hörfum ekki lent í neinum árekstrum við þá,

enda gefa þeir okkur alltaf upp staðsetningar á línum sínum sem við setjum inn á plotterana okkar.“

Sæmileg afkoma af veiðunum

Að sögn Sigurðar eru Grænlendingar með 400-500 sóknardaga á Svalbarðasvæðinu.

Alls verður fjórum grænlenskum skipum beitt á þessar veiðar í ár þannig að búast má við að sóknardagarnir klárist í júní.

„Ég held að það sé vaxandi rækjuveiði í Barentshafi í ár. Mér finnst vera meiri kraftur í veiðinni enda er þorskurinn aðeins á undanhaldi.

Þetta fer allt saman. Það er sæmileg afkoma af veiðunum núna miðað við að meðalafli á sólarhring sé kannski 10 tonn.

Rækjuverð er tiltölulega hátt þótt það hafi reyndar lækkað nokkuð frá því í fyrra þegar það var í sögulegu hámarki.

Stór hluti norska togaraflotans var á rækjuveiðum á síðasta ári og var sókn þeirra meiri en árin á undan.

Hins vegar skilst mér að færri Norðmenn ætli á þessar veiðar í ár vegna þess að afli á þorskveiðum í Barentshafi hefur dregist saman

og því tekur það skipin lengri tíma að ná þorskkvótum sínum en fyrr.

Núna eru 3-4 norsk skip byrjuð á rækju en fleiri fara að drífa sig af stað þegar spurst hefur að veiðin sé að glæðast.“

Auk norsku skipanna og þeirra grænlensku eru skip frá Eystrasaltslöndunum á rækjuveiðum í Barentshafi og eitt íslenskt skip,

Brimnes RE, hefur verið þar einnig.

Fram kom í máli Sigurðar að rækjan sem þeir veiddu hafi verið á stærðarbilinu 220-265 stykki í kílóinu.

Um það bil helmingurinn af afla skipsins fór í suðu um borð en hinn helmingurinn var iðnaðarrækja.

Makrílvertíðin olli vonbrigðum

Togarinn Timmiarmiut hét áður Atlantic Viking og var keyptur notaður frá Noregi fyrir tæpum þremur árum,

ekki síst til þess að taka þátt í makrílveiðunum við Austur-Grænland auk rækjuveiða. Skipið er 56 metra langt og mælist 1700 brúttótonn.

Í áhöfn eru Grænlendingar, Íslendingar og Færeyingar.

„Skipið fer núna einn túr í viðbót á rækjuveiðar á Svalbarðasvæðinu og í sumar taka við  makrílveiðar í Grænlandssundi.

Makrílvertíðin í fyrra í grænlenskri lögsögu olli miklum vonbrigðum en árin tvö á undan voru tiltölulega góð.

Það verður spennandi að sjá hvað árið í ár ber í skauti sér. Frystitogarar eins og okkar skip áttu í erfiðleikum

í fyrra þegar veiðin var svona gloppótt en skip á partollveiðum með rúmgóða kælitanka náðu góðum árangri,“ segir Sigurður. 

Langt úthald

Sigurður hefur verið skipstjóri á Timmiarmiut frá því að togarinn var keyptur til Grænlands í maí 2013.

Hann var að lokum spurður hvernig honum líkaði svona langt úthald eins og verið hefur á rækjuveiðunum.

„Ég er búinn að vera svo lengi í þessu að bæði ég og fjölskyldan erum orðin vön því. Maður aðlagar sig bara að þessum aðstæðum og svo eru löng frí á móti.

Því er þó ekki að neita að hátt í 60 daga túrar eru æði langt úthald og mun lengra en tíðkast sem hámark á íslenskum togurum.

En það er dýrt á skipta um áhafnir alla leið frá Grænlandi og það hefur sjálfsagt áhrif á það hversu langar veiðiferðirnar eru,“ sagði Sigurður Þórðarson.

Heimild Fiskifréttir 

Myndir Þorgeir Baldursson 

     Gott Hal inná dekk Freyr og Hans leysa frá pokunum mynd þorgeir 2016

     Esmar Simonsen Vinnslustjóri með væna Rækju mynd þorgeir 2016

     Alexander Stiljarov tekur úr Frystitækjum mynd þorgeir 2016

 

 

 

21.04.2016 10:27

Akamalik GR 6-6 Nuuk

         Akamalik Gr 6-6 og Ontica EK 1502 Mynd þorgeir Baldursson 2016

19.04.2016 22:47

Kvalstein SF-2-V i Tromsö

                  Kvalstein SF-2-V Maloy mynd þorgeir Baldursson 2016

18.04.2016 21:54

Tveir Hornafjarðarbátar við Slippkantinn

 2618 Jóna Eðvalds SF 200 og 2780 Ásgrimur Halldórsson SF 250 mynd Þorgeir 

17.04.2016 22:52

Mira i Tromsö

                       Mira i Tromsö mynd þorgeir Baldursson 2016

17.04.2016 16:04

Taurus EK 9914 á Rækjuveiðum i Barentshafi

                        Taurus Ek 9914   mynd þorgeir Baldursson 2016 

16.04.2016 22:39

Svalbarð W 303

       Norska  Varðskipið Svalbarð W303  Mynd þorgeir Baldursson 2016

15.04.2016 20:59

6175 Magna EA 60

            6175   Magna EA 60 ex Bravo Ve 160 mynd þorgeir Baldursson 2016

        6175 Magna Ea 60 kemur til hafnar eftir reynslusiglingu í dag 

 

 

 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 761
Gestir í dag: 78
Flettingar í gær: 1506
Gestir í gær: 141
Samtals flettingar: 606471
Samtals gestir: 25655
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 13:41:14
www.mbl.is