Færslur: 2021 Apríl

21.04.2021 23:57

Snekkjan A i Krossanesi i kvöld

                                  Snekkjan A á Eyjafirði i Kvöld Mynd þorgeir Baldursson 21 april 

Ein stærsta snekkja í heimi sigldi inn Eyjafjörð í kvöld og verður í Krossanesvíkinni á næstunni. Hún kallast einfaldlega A, er í eigu rússnesks viðskiptajöfurs, Andrey Melnichenko, og verður hér um tíma – jafnvel nokkrar vikur, eftir því sem næst verður komist. Snekkjan er 142 metra löng og möstrin ná 100 metra hæð, sem er ástæða þess að A siglir ekki inn á Pollinn; möstrin gætu truflað flugumferð. Til gamans má geta til samanburðar að Hallgrímskirkjuturn er 75 metra hár!

                                      Snekkjan A á Eyjafirði i Kvöld Mynd þorgeir Baldursson 21 april 

Andrey Igorevich Melnichenko er 49 ára milljarðamæringur. Samkvæmt viðskiptaritinu Forbes var hann 95. ríkasti maður heims í síðasta mánuði og sjöundi ríkasti Rússinn. Hann er ekki um borð í A skv. heimildum Akureyri.net en er sagður væntanlegur.

Melnichenko á aðra snekkju sem hann kallar A; til aðgreiningar er þessi nefnd seglsnekkjan A, þótt hún gangi einnig fyrir vélarafli, en hin vélsnekkjan A. Sú síðarnefnda kom til Akureyrar 2016 og var á Pollinum um tíma. Vakti hún mikla athygli fyrir óvenjulegt útlit.

Heimild Akureyri.net 

20.04.2021 11:11

Grásleppuveiðar i Skjálfandaflóa

                   Skipverjar á Ásdisi Þh 136 draga netin i vikunni mynd þorgeir Baldursson 2021

 

 

Afli á grásleppuvertíðinni sem hófst 23. mars sl. var kominn í 1.396 tonn eftir löndun í gær 14. apríl.  Góðar gæftir hafa verið undanfarna daga og mokveiði.  

105 bátar eru byrjaðir veiðar og má búast við að þeim eigi eftir að fjölga töluvert en á síðustu vertíð stunduðu veiðar 201 bátur, um 50 færri en í meðalári.

 Ástæður þess voru að um mánaðamótin apríl / maí var leyfilegum heildarafla náð og veiðar því stöðvaðar.

Veiðidagar á vertíðinni eru 40, sem taka mið af tillögu Hafrannsóknastofnunar að veiði fari ekki umfram 9.040 tonn.  Miðað við metveiði í fyrra kom mælingin ekki á óvart þó fæstir hafi búist við 74% sveiflu milli ára.

 Meðaltal ráðgjafar stofnunarinnar á átta ára tímabili [2013-2020] er 5.386 tonn.  

                Allflestir skera grásleppuhrognin i tunnur mynd þorgeir Baldursson 19 april 2021

 

Það þarf því ekki að koma neinum á óvart að markaðurinn hiksti við slíkum tíðindum og ekki hefur Covid-19 haft áhrif til góðs.  

Kaupendur tilkynntu um eitt hundrað króna verðlækkun á hvert kíló og greiða nú 130 kr/kg fyrir óskorna grásleppu.

 Ekki liggur fyrir hversu mikið magn verður hægt að selja á því verði.  Að óbreyttu er ekki markaður fyrir þann heildarafla sem nú er leyfilegt að veiða.

Samanburður nú við síðasta ár sýnir að met verður slegið á yfirstandandi vertíð.  

                                                   Grásleppa 19 april 2021 Mynd þorgeir Baldursson  

Vertíðin í fyrra skilaði dagsveiði upp á 995 kg, en sambærileg tala á vertíðinni nú þegar staðan var tekin 14. apríl var fjórðungi hærri - 1.258 kg. 

 

18.04.2021 23:11

Skipverjar á Aþenu Þh 505 draga netin

                2436 Aþena ÞH 505 að draga Grásleppunetin við Tjörnes Mynd þorgeir Baldursson 17 april 

05.04.2021 09:32

Þinganes SF 25

                         2970  Þinganes SF 25 á toginu á Selvogsbanka mynd þorgeir Baldursson 2021

04.04.2021 09:04

Gamli Börkur og Vilhelm Þorsteinsson EA11

       Janus Ex Birtingur og Börkur NK OG 2892 Vilhelm Þorsteisson EA11 mynd þorgeir Baldursson 3 april 2021

03.04.2021 20:56

Nýr Vilhelm þorsteinsson EA11 kom til Akureyrar i dag

                                                       2892 Vilhelm Þorsteinsson EA11  á siglingu við slippkantinn i dag   mynd þorgeir Baldursson 3 april 2021 

Vilhelm Þorsteinsson EA 11, nýtt skip til uppsjávarveiða sem var smíðað sérstaklega fyrir Samherja, sigldi inn Eyjafjörðinn í fyrsta sinn í gær.

Vilhelm Þorsteinsson er stórt, glæsilegt og fullkomið skip, 89 metrar á lengd og 16,6 metrar á breidd.

Burðargetan er vel yfir þrjú þúsund tonn í þrettán lestartönkum þar sem aflinn verður kældur niður til að sem best hráefni komi að landi.

Karstensens skipasmíðastöðin í Skagen Danmörku hannaði og smíðaði skipið eftir þörfum Samherja og naut ráðgjafar starfsfólks Samherja við verkið.

Beðið hefur verið eftir skipinu með nokkurri eftirvæntingu en samningar um smíði þess voru undirritaðir 4. september 2018.

Þann dag hefðu tvíburarnir Baldvin og Vilhelm Þorsteinssynir orðið 90 ára.

             2410 Vilhelm Þorsteinsson EA11  mynd þorgeir Baldursson 

Nýsmíðin leysir af hólmi eldri Vilhelm Þorsteinsson EA 11 sem kom nýr til landsins um síðustu aldamót.

Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, segir að allur aðbúnaður í nýja skipinu sé eins og best verður á kosið.

„Skipið er stórt og það er mjög vel útbúið. Um borð er öll sú nýjasta tækni sem er fáanleg við meðferð afla og besta gerð af veiðarfærum sem við þekkjum.

Skip af eins og þetta, sem er bæði með troll og nót, er með breytilega notkun á vélarafli. Þannig að við erum með tvær vélar í skipinu.

Á heimasiglingunni notuðum við aðeins aðra þeirra og við þær aðstæður eyðir skipið mun minna,“ segir Kristján.

Í skipinu eru klefar fyrir fimmtán manns auk sjúkraklefa. Þá er skipið einstaklega rúmgott og má þar nefna borðsal og tvær setustofur.

Um borð er einnig líkamsræktaraðstaða og gufubað fyrir skipverja.

                            2892 Vilhelm Þorsteinsson EA11 á siglingu á pollinum mynd þorgeir Baldursson

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, sigldi með skipinu heim til Íslands frá Skagen. „Þetta er þriðja kynslóð uppsjávarskipa sem maður tekur þátt í að reka.

Við ákváðum að fela Karstensens skipasmíðastöðinni þetta verkefni. Aðalhönnuðir skipsins starfa hjá stöðinni en starfsfólk Samherja hefur komið að þessu ferli með sínar hugmyndir, meðal annars varðandi orkunýtingu.

Þannig má segja að skipið sé afrakstur samstarfs stöðvarinnar og okkar starfsfólks.

Ég held að útkoman sé mjög góð og það var frábært að sigla með skipinu heim. Tímanum var vel varið með áhöfninni,“ segir Þorsteinn Már.

Endurnýjun er forsenda samkeppnishæfni

              Frystihús Samherja á dalvik og Nýji Vilhelm Þorsteinsson EA 11 mynd þorgeir Baldursson 

Samherji hefur lagt höfuðáherslu á að fjárfesta eins og kostur er í nýjum skipum, búnaði og tækni.

Á síðustu árum hefur skipafloti Samherja verið endurnýjaður mikið.

Á síðasta ári var nýtt hátæknivinnsluhús á Dalvík tekið í notkun og þá hafa húsnæði og tæki bolfiskvinnslunnar á Akureyri verið endurnýjuð.

                              Hátækni frystihús Samherja á Dalvik mynd þorgeir Baldursson des 2019

 

Samherji ræðst í slíka fjárfestingu til að tryggja að fyrirtækið sé ávallt í stakk búið að mæta ýtrustu kröfum viðskiptavina sinna en einnig svo starfsfólk Samherja vinni við bestu mögulegu aðstæður hverju sinni.

Endurnýjun af þessu tagi þarf reglulega að eiga sér stað í íslenskum sjávarútvegi svo fyrirtæki í greininni séu samkeppnishæf.

Guðmundur Þ. Jónsson, skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni EA 11, segir að skipið sé framúrskarandi vel hannað.

„Á siglingunni heim prófuðum við að lesta skipið með sjó og prófuðum að snúa því á fullri ferð og hallinn var mjög lítill.

                      2892 Vilhelm Þorsteinsson EA11 að snúast á Eyjafirði  mynd þorgeir Baldursson 

Skipið kom einstaklega vel út úr þessari siglingu heim.

Ég hef verið skipstjóri í um þrjátíu ár og ég held að það sé óhætt að fullyrða að þetta er eitt besta skip sem ég hef stýrt á mínum ferli,“ segir Guðmundur.

            Guðmundur Jónsson Skipstjóri á Vilhelm mynd þorgeir Baldursson 

Dagskrárgerðar- og kvikmyndatökumenn frá sjónvarpsstöðinni N4 sigldu með Vilhelm Þorsteinssyni EA 11 frá Skagen og tóku upp efni um borð.

Vegna sóttvarnarráðstafana var ekki mögulegt að bjóða Akureyringum og öðrum gestum að líta um borð eins og venjan er þegar ný skip koma heim

en Ásthildur Sturludóttir, bæjarstóri Akureyrarbæjar, færði Guðmundi Jónssyni skipstjóra blómvönd við látlausa athöfn eftir komuna til heimahafnar í morgun.

Öll áhöfn skipsins og gestir um borð fóru í skimun vegna Covid-19 áður en lagt var af stað frá Skagen og svo að nýju þegar komið var til landsins í gær.

Áætlað er að skipið haldi til veiða á fimmtudaginn í næstu viku.

Mun N4 sýna sérstakan þátt um skipið sem verður á dagskrá stöðvarinnar á annan í páskum, mánudaginn 5. apríl kl. 20:00.

Í þættinum verður fjallað ítarlega um skipið, tæknina um borð og aðbúnað skipverja.

Frétt af heimasiðu Samherja 

www.samherji.is

myndir Þorgeir Baldursson 

01.04.2021 23:29

Stubbarnir mokfiska á Selvogsbankanum

                                        Harðbakur EA3 mynd þorgeir Baldursson 2021

                        Þinganes  SF Bergey  og Vestmannaey VE mynd þorgeir Baldursson 2021

Heldur betur búið að vera mokveiði hjá togbátunum núna í mars.

 

flestir togaranna hafa verið á veiðum á svæðinu frá Þorlákshöfn og að Reykjanesvita og þar utan við

 

t.d á Selvogsbankanum,

 

29 metra bátarnir eða togarnir sem mega veiða upp að 3 sjómílum hafa ekki farið varhluta af þessu moki

 

og hafa náð að fylla bátanna sína á einum til 2 dögum,

 

einn af þeim er Harðbakur EA.

 

þegar þetta er skrifað þá er Harðbakur EA komin með yfir 900 tonna afla í mars og á möguleika á að ná yfir 1000 tonnin í mars

 

á síðustu 7 dögum þá hefur Harðbakur EA heldur betur mokveitt

 

því samtals hefur hann landað 378 tonnum í 5 löndunum á aðeins um 6,5 dögum.  það gerir um 58 tonn á dag

 

bestu túrinn var 92 tonn eftir aðeins rúman einn sólarhring á veiðum,

 

Mest öllum þessum afla er síðan ekið til vinnslu á Dalvík og þetta eru gríðarlega margir flutningabílar,

 

um 36 trukkar þarf til þess að keyra um 900 tonnum af fiski norður til Dalvíkur.

 

  • 1

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1429
Gestir í dag: 106
Flettingar í gær: 1506
Gestir í gær: 141
Samtals flettingar: 607139
Samtals gestir: 25683
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 21:22:55
www.mbl.is