Færslur: 2021 Desember

25.12.2021 14:39

Héldu jólin í skjóli á íslenskum firði

         Franska Herskipið Bretagne D655 á Pollinum á Akureyri i morgun25 des 2021 mynd þorgeir Baldursson 

                         Bretagne D655 við ankeri á Pollinum i morgun mynd þorgeir Baldursson 25 des 2021

                       Bretagne D655 á pollinum og Kaldbakur i bakgrunni mynd þorgeir Baldursson 25 des 2021

Franska her­skipið Bretagne er nú statt á Poll­in­um inn á Eyjaf­irði, en það var í Reykja­vík á dög­un­um þar sem áhafn­ar­skipti fóru fram.

Hélt skipið svo áfram för sinni norður fyr­ir land og fékk áhöfn­in að halda jól í  skjóli inn á Eyjaf­irði. enda var 10 stiga frost og pollurinn isilagður 

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Land­helg­is­gæsl­unni er gert ráðfyr­ir að skipið muni halda för sinni áfram í kvöld og sigla þá út Eyja­fjörðinn.

Frétta­rit­ari mbl.is á Ak­ur­eyri tók þess­ar mynd­ir af skip­inu stuttu fyr­ir há­degi í dag.

24.12.2021 00:04

Jólakveðja

Minar allra bestu jóla og nýárskveðjur til allra þeirra sem að hafa heimsótt siðuna og sent mér myndir til birtingar

sem að er mjög ánæjulegt og þá verður hún mjög lifandi og skemmtileg aflestrar 

Góðar stundir kv  þorgeir Baldursson 

 

                                                            Rex Ns 3 mynd þorgeir Baldursson 

23.12.2021 23:07

Nýsmíði frá Skipasmíðastöð Njarðvíkur eftir 30 ára hlé

 

Stakkavík í Grindavík hefur pantað bát

Stakkavík hf. í Grindavík hefur samið við Skipasmíðastöð Njarðvíkur um smíði á 29,9 bt línubát sem veiða mun úr krókaaflamarkskerfinu. Báturinn verður fyrsti stálbáturinn sem smíðaður hefur verið fyrir íslenska útgerð í þessum flokki í yfir 20 ár. 

Stakkavík var fyrsta sjávarútvegsfyrirtækið á Íslandi til að láta smíða bát í krókaaflamarkskerfið sem fullnýtti allar reglugerðir þ.e.a.s báturinn er eins stór og mögulegt er miðað við gildandi reglugerð um smíði báta undir 30 brúttótonnum. 

Minna kolefnisspor 

Aftur ætlar Skakkavík að vera brautryðjandi í smíði báta í krókaaflamarkskerfinu því þessi bátur er sérstaklega hannaður með það í huga að minnka kolefnisspor. Með smíðinni er verið að stíga fyrstu alvöru skref í átt að minna kolefnisspori í smíði fiskibáta. Er það gert með því að stækka skrúfuna og minnka skrúfuhraða. Þá eru tvær 214 kw aðalvélar í bátnum sem báðar eru með áföstum 46kw rafal og áfastri vökvadælu sem knýja skrúfuna. Þannig verða vélarnar alltaf keyrðar á besta mögulega álagi sem gefur u.þ.b 25% minni eldsneytiseyðslu en bátur með hefðbundinni skrúfu og hefðbundnum vélbúnað. Aðeins önnur vélin mun vera í notkun á veiðum en báðar á stími. 

Báturinn verður smíðaður á hefðbundinn hátt. Skrokkurinn er úr stáli og yfirbyggingin úr áli. 

Fjölþætt samstarf tæknifyrirtækja 

Smíði skipsins er upphafið að samstarfi Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur og Akkan-Maritime í Tyrklandi. Skrokkurinn verður smíðaður þar en öll önnur vinna unnin hér heima í samstarfi við íslensk tæknifyriræki. Báturinn verður vel búinn búnaði, s.s beitningavélabúnaði frá Mustad og krapakerfi frá Kælingu. Vinnslubúnaður á dekki verður frá Mikro og siglingatæki í brú eru frá Sónar. Vélarnar eru frá Mitsubishi. Vökvakerfið er frá Landvélum/Rexroth. Þá er í bátnum 20kw landvél og tvær öflugar 16“ hliðarskrúfur. 

Skipasmíðastöð-Njarðvíkur mun afhenda Stakkavík bátinn fullbúinn  til veiða 10. nóvember á næsta ári. 

Siðasta nýsmiði Stakkavikur var 

Óli á Stað GK 99 var smíðaður á Akureyri, í Seiglu, og afhentur vorið 2017. Hann er 14,8 metra langur og mælist 29.95 BT að stærð.

Það er Stakkavík ehf. í Grindavík sem á bátinn og gerir út.

                                        2842 óli Á stað Gk 99 mynd þorgeir Baldursson 2017 

23.12.2021 11:00

"Gamall kunningi" að hefja loðnuveiðar

22. desember 2021 kl. 12:40

 

Polar Ammasak bar nafnið Beitir á árunum 2013-2015. Hér er hann við að leggjast að bryggju Hampiðjunnar í Neskaupstað. Mynd/Jón Einar Marteinsson

Polar Ammasak kom til Neskaupstaðar í fyrrinótt til að taka veiðarfæri hjá Hampiðjunni en það mun halda til loðnuveiða á morgun

 Skipið var áður í eigu Síldarvinnslunnar og bar nafnið Beitir á árunum 2013-2015.

Grænlenska skipið Polar Ammasak kom til Neskaupstaðar í fyrrinótt til að taka veiðarfæri hjá Hampiðjunni en það mun halda til loðnuveiða á morgun. Grænlenska félagið Polar Pelagic festi nýverið kaup á skipinu en fyrir gerir það út uppsjávarskipið Polar Amaroq.

Frá þessu segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar sem á 33% eignarhlut í Polar Pelagic. Skipið var keypt af danska útgerðarfélaginu Gitte Henning A/S og bar nafnið Gitte Henning.

Í fréttinni segir að Polar Ammasak sé gamall kunningi því skipið var í eigu Polar Pelagic og bar nafnið Polar Amaroq á árinu 2013. Í lok þess árs festi Síldarvinnslan síðan kaup á því og fékk það þá nafnið Beitir.

Skipið var í eigu Síldarvinnslunnar fram á árið 2015 en þá gekk það upp í kaupin á núverandi Beiti sem keyptur var af danska útgerðarfélaginu Gitte Henning og hafði einmitt borið það nafn. Þegar danska útgerðarfélagið hafði tekið við skipinu í skiptum fékk það nafnið Gitte Henning.

Polar Ammasak bar nafnið Beitir á árunum 2013-2015. Ljósm. Hákon Ernuson

Polar Ammasak var smíðað árið 1997 og er 2.148 brúttótonn að stærð. Skipið er búið tveimur aðalvélum og er hvor þeirra 3.260 hestöfl. Burðargetan er 2.200 tonn. Skipið hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum. Skipstjóri á Polar Ammasat verður Geir Zoëga. Geir segist vera afar ánægður með þessi skipakaup og spenntur fyrir komandi loðnuvertíð.

Polar Amaroq kemur til Neskaupstaðar í nótt og er ráðgert að bæði skipin veiði loðnu um hátíðirnar, segir í fréttinni.

                                                   2862 Beitir Nk 123 mynd þorgeir Baldursson  2015 

23.12.2021 10:41

Góður túr hja Arnari Hu 1

                                             2265 Arnar Hu 1 mynd þorgeir Baldursson 2021

Frysti­tog­ari FISK Sea­food, Arn­ar HU-1, er nú skammt frá Sauðár­króki en þangað stefn­ir hann með 646 tonna afla, þar af um 194 tonn­um af ufsa og 175 tonn­um af þorski.

Fram kem­ur á vef út­gerðar­inn­ar að verðmæti afl­ans er talið vera um 295 millj­ón­ir króna.

„Við vor­um 24 daga á veiðum og við vor­um frá Víkurál að Skaga­grunni. Veiðarn­ar hafa gengið nokkuð vel og við lönd­um um 18.400 köss­um.

Veðrið hef­ur verið gott miðað við að það er des­em­ber,“ er haft eft­ir Guðjóni Guðjóns­syni skip­stjóra.

22.12.2021 23:22

Morgunkaffi um borð i Húna

Það var góð og notalega stemming i Húnakaffinu i morgun og við fengum góðan gest Pétur Sigurgeir Sigurðsson 

Sölustjóri hjá Skeljungi kom i kaffi og við buðum honum uppá kaffi og Rúgbrauð ásamt hátiðarsild frá Neskaupstað 

og luku menn miklu lofi á þetta framtak og fóru allir saddir og ánægðir frá borði þennan morguninn 

    Pétur ,Tryggvi,Baldur, Þórður, Pétur, Steini Pé,og Gunni Gisla Mynd þorgeir Baldursson 22des 2021

                                                 Vélstjóranir Þórður og Pétur mynd þorgeir Baldursson 

                                   Pétur ,Tryggvi Ingimars ,og Þórður  mynd þorgeir Baldursson 22des 2021

       Pétur Skálar, Pétur Sigurgeir,Steini Pé ,Baldur ,og Siggi Bergþórs mynd þorgeir Baldursson 22 des 2021

         Baldur Siggi Bergþórs og Tryggvi Ingimars fær sér rúgbrauð og hátiðarsild mynd þorgeir Baldursson 2021

                  Þórður, Valur ,Pétur, Steini Pé, og Siggi Bergþórs .mynd þorgeir Baldursson  2021

22.12.2021 14:42

Lerkur og Rókur FD við bryggju á Akureyri

                           Lerkur FD1206 og Rókur FD 1205 mynd þorgeir Baldurssonn 21 des 2021

21.12.2021 20:39

Sólberg ÓF 1 á leið i jólafri

I morgun kom Frystitogarinn Sólberg ÓF1 i eigu Ramma Á siglufirði  i oliutöku i krossanes við Akureyri og var afli 

Togarans um 30000 kassar ásamt 60 tonnum af mjöli og 35 tonn af lýsi Áhöfn Trausta Kristinssonar fer nú i jólafrii

og næst tekur Sigþór Kjartansson og hans gengi við keflinu þann 2 janúar 2022 

                               2917 Sólberg ÓF 1 Mynd Þorgeir Baldursson 21 des 2021 

         Viðir már Hermannson hafnarvörður tekur á móti Springnum mynd þorgeir Baldursson 21 des 2021

          Viðir Benidiktsson  Hafnarvörður biður komu Sólbergs ÓF1 mynd þorgeir Baldursson 21 des 2021

20.12.2021 23:03

Bótin i kvöld jólastemming

                                                            6761 Sunna mynd þorgeir Baldursson 

                                                    7209 Jólaskip mynd þorgeir Baldursson 20 des 2021

                                 Verbúð og Sunna mynd þorgeir Baldursson 20 des -2021

20.12.2021 22:48

Cuxhaven Nc 100 af Grænlandsmiðum

                                                  Cuxhaven NC 100 Mynd þorgeir Baldursson 

 

20.12.2021 11:27

Vilhelm Þorsteinsson EA11 i jólabúning

I morgun kom til Akureyrar uppsjávarveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson EA 11 i eigu Samherja og þá voru þessar myndir teknar 

skipverjar eru nú komnir i jólafri og verður ekki farið aftur á sjó fyrr en eftir Áramót 

 

                  2982 Vilhelm Þorsteinsson EA11 mynd þorgeir Baldursson 20 des 2021 

                              2982 Vilhelm Þorsteinsson EA11 mynd þorgeir Baldursson 20 des 2021

               Viðir Már Hermannson hafnarvörður  tekur á móti endanum mynd þorgeir Baldursson 20des 2021

20.12.2021 00:50

Bjarni ólafsson Ak 70

                                      2909 Bjarni Ólafsson AK 70 Mynd þorgeir Baldursson 2021 

                             Landað Úr Bjarna Ólafssyni AK 70 mynd þorgeir Baldursson 2021

                                         Loðnu landað úr Bjarna Ólafssyni Ak 70 mynd þorgeir Baldursson 2021
 

19.12.2021 08:39

Lausir endar hnýttir i Krossanesi

Það er alltaf næg verkefni hjá Hafnarstarfsmönnum Hafnarsamlags Norðurlands þegar kemur að taka á móti skipum og bátum 

i siðustu viku var verið að draga Janus ex Börkur NK til hafnarfjarðar og þá þurftu starfsmenn hafnarinnar og hnýta lausa enda 

um borð i Eyborgu EA 59 sem að hefur þvælst á milli bryggjukanta á Akureyri undanfarin misseri

en að sögn Birgis Sigurjónssonar útgerðarmans eru engin verkefni i sjónmáli fyrir skipið sem að hefur verið á söluskrá nokkuð lengi 

                       Viðir Benidiktsson  og Jóhannes Antonsson mynd þorgeir Baldursson 2021

                         Steinn Karlsson og Guðmundur Guðmundsson mynd þorgeir Baldursson 2021

                    Viðir Jói og Steinn Græja enda fyrir Eyborgu EA mynd þorgeir Baldursson. 2021

                                        Landganginum komið fyrir mynd þorgeir Baldursson 2021

19.12.2021 08:23

Remoy M-99-HQ á veiðum i Barentshafi

                             Remoy M-99-HQ á veiðum i Barentshafi 15 mars 2018 mynd þorgeir Baldursson 

 

IMO: 9660451

Name: REMOY

Vessel Type - Generic: Fishing

Vessel Type - Detailed: Trawler

Status: Active

MMSI: 258984000

Call Sign: LDSF

Flag: Norway [NO]

Gross Tonnage: 3909

Summer DWT: 1500 t

Length Overall x Breadth Extreme: 74 x 16 m

Year Built: 2013

Home Port: FOSNAVAAG

 

19.12.2021 02:30

Skipin hans Magga

Hann Maggi á Isleifi Ve 63 er magnaður skipstjóri enda ættaður frá Þórhöfn á Langanesi hérna koma tvö af þeim skipum 

sem að hann hefur verið skipstjóri á Sighvatur Bjarnasson Ve 81 og Isleifur ve 63 sem að er að koma til eyja i jólafri

              Magnús Jónasson Skipstjóri Mynd þorgeir Baldursson 2021

                                  2388 Isleifur Ve 63 ex Ingunn Ak Mynd þorgeir Baldursson 2020

                                             2281 Sighvatur Bjarnasson Ve 81 mynd þorgeir Baldursson 

 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1883
Gestir í dag: 279
Flettingar í gær: 911
Gestir í gær: 264
Samtals flettingar: 624001
Samtals gestir: 27378
Tölur uppfærðar: 8.5.2024 18:22:54
www.mbl.is