29.07.2009 00:06

Bátarnir í Grandavör

Við Suðurströndina er skemmtilegt bátasafn, þar sem bátar liggja við bryggju í vör sem nefnist Grandavör. Málið er hinsvegar það að höfnin er á þurru landi og því bátarnir líka. Til að forvitnast um hvað hér væri á ferðinni birtum við upplýsingar af vefsíðu fyrirtækisins Grandavor.net, svo og myndir sem Jóhann Þórlindar tók fyrir okkur.

Grandavör er staðsett á landnámsjörðinni Hallgeirsey í Austur - Landeyjum í Rangárþingi eystra. Sigursæll ehf rekur Grandavör sem er fyrst og fremst tjaldsvæði sem  er opið á  tímabilinu  Júní - Sept. Svæðið býður upp á ýmiskonar afþreyingu m.a. fjöruferðir á sérstökum hertrukk. Grandavör er hægt að leiga til einkaafnota s.s. ættarmóta yfir helgi einnig er hægt að taka á móti hópum í fjöruferðir alla daga vikunnar.

Grandavör var vígð við hátíðlega athöfn 24.júlí.2004 að viðstöddu margmenni  á árlegu sumarvinnuhjúamannavinamóti í Púkapytti.

 "Fornar heimildir greina frá því að í Hallgeirsey hafi verið stunduð sjósókn af miklum krafti. Aldrei hvarflaði það að  mönnum að það væri hægt að koma upp bryggju á þessum slóðum.  En nú er öldin önnur og komin bryggja í Hallgeirsey.  Grandavör heitir hún og er á þurru landi og stendur við Púkapytt, í gamla kartöflugarðinum."

Í fyrstu voru tveir bátar við bryggju Auður HF 8 og Hlíf GK 250.



                                                1239. Auður HF 8


                                                    663. Hlíf GK 250

Ári síðar bættist Hafbjörg ÁR 15 í hópinn og fór hún í lýtaaðgerð og frískaðist öll upp.

 
       Hafbjörg ÁR 15 eftir lýtaaðgerðina. Um borð í Hafbjörgu er setustofa og eldhúskrókur

Árið 2006 kom Skúli fógeti fulllestaður í heimahöfn.  Hann er stjórnstöð svæðisins og afdrep
fyrir áhafnir skipanna.


                                               Skúli fógeti


                    Auður og Hafbjörg í Grandavör © myndir Jóhann Þórlindar 2009

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1394
Gestir í dag: 106
Flettingar í gær: 1506
Gestir í gær: 141
Samtals flettingar: 607104
Samtals gestir: 25683
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 21:01:29
www.mbl.is