31.03.2010 12:11

Góður gangur hjá Samherja


                             2410- Vilhelm Þorsteinsson EA 11 ©Mynd Þorgeir Baldursson
Vilhelm Þorsteinsson EA 11 á siglingu fyrir utan Grindavik með fullfermi af loðnu um 2800 tonn
skipstjóri var Sturla Einarsson Núverandi skipst á Guðmundi VE 29

Fréttir

Velta Samherja 56 milljarðar króna á síðasta ári

miðvikudagur 31.mar.10 09:39
Húsfyllir var á kynningarfundi Samherja á Hótel KEA.
Húsfyllir var á kynningarfundi Samherja á Hótel KEA.
Samherji hf. er með starfsemi víða um heim og fer 70% af starfsemi fyrirtækisins fram erlendis og 30% hér á landi. Velta Samherja nam 56 milljörðum króna á síðasta ári, efnahagur fyrirtækisins er sterkur og það hefur verið rekið með  hagnaði frá upphafi. Samherji gerir út 28 skip, rekur 6 landvinnslur og 5 eldisstöðvar. Skip fyrirtækisins veiða samtals um 400 þúsund tonn af fiski.
 

Þetta var á meðal þess sem fram kom í máli Þorsteins Más Baldvinssonar forstjóra Samherja, á fundi sem haldinn var á Akureyri fyrir helgi. Þar gerði hann m.a. grein fyrir rekstri fyrirtækisins og hvaða áhrif það hefði á samfélagið hér á Eyjafjarðarsvæðinu. Starfsmenn Samherja á Íslandi eru 600 og eru 70% þeirra  búsettir á Eyjafjarðarsvæðinu. Á skrifstofu Samherja á Akureyri starfa 35 manns og sagði Þorsteinn Már að helmingur þeirra starfa sé til komin vegna starfsemi fyrirtækisins erlendis. "Þá höfum við haft eina reglu frá því að við fórum að starfa erlendis, sem er sú að það eru Íslendingar sem stjórna öllum okkar fyrirtækjum og skipum erlendis."

Til að sýna umfang Samherja hér svæðinu, nefndi Þorsteinn Már, að fyrirtækið hefði greitt 74 fyrirtækjum á Akureyri fyrir þjónustu í febrúar sl., samtals 133 milljónir króna. Þá greiddi Samherji 21 fyrirtæki á Dalvík samtals 24 milljónir króna í síðasta mánuði.  Einnig greiddi fyrirtækið 282 milljónir króna í laun. Fyrirtækið keypti þjónustu á Akureyri á síðasta ári fyrir 1.340 milljónir króna af rúmlega 200 fyrirtækjum.  Alls greiddi Samherji 5.000 milljónir króna á síðasta ári til starfsmanna, fyrirtækja og félaga í Eyjafirði. Þar af eru laun 3,2 milljarðar, kaup á vöru og þjónustu 1.730 milljónir og styrkir 70 milljónir króna. "Þannig að við, sem oftast er talað um sem þiggjendur, erum að koma með um 5.000 milljónir króna inn á Eyjafjarðarsvæðið. Fyrirtækið Samherji er því að skapa ýmislegt hér á þessu svæði," sagði Þorsteinn Már.

Hann sagði að Samherji hefði lagt sitt af mörkum til að draga verkefni inn á svæðið í gegnum árin. Fyrirtækið hefur komið að endurskipulagningu og endurreisn fyrirtækja og nefndi sem dæmi Kælismiðjuna Frost og Slippinn Akureyri en Samherji er hluthafi í báðum fyrirtækjunum. Þorsteinn Már sagði að sjávarútvegur við Eyjafjörð væri þýðingarmikil grein og hefði einnig áhrif á aðrar starfsgreinar. Hann sagði að tilfærsla aflaheimilda hefði áhrif á starfsemina í Eyjafirði. Nauðsynlegt væri að búa við stöðugleika, svo hægt væri að ráðast í fjárfestingar, auk þess sem þjóna þyrfti viðskiptavinum með afhendingaröryggi.

"Það eru erfiðir tímar á Íslandi í dag og mikið gengur á. Það er von mín að það sem okkur hefur tekist að byggja upp á Dalvík, með stöðugleika í hráefnisöflun í áratug, verði ekki öllu kastað burt með illa ígrunduðum breytingum á rekstrarumhverfi sjávarútvegsins í landinu. Það er allt of mikið í húfi til þess að við getum leyft okkur slíkt verklag. Sjávarútvegur og fiskvinnsla munu eiga stóran þátt í að skapa okkur gjaldeyri í framtíðinni og vinna þannig þjóðina út úr þeim ólgusjó sem hún siglir í um þessar mundir. Mikilvægasta verkefni Íslendinga næstu mánuði er fyrst og fremst að vinna áfram saman af krafti, dugnaði og þrautseigju," sagði Þorsteinn Már.
 Heimild www.vikudagur.is



Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1365
Gestir í dag: 105
Flettingar í gær: 1506
Gestir í gær: 141
Samtals flettingar: 607075
Samtals gestir: 25682
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 20:39:30
www.mbl.is