03.09.2016 10:15

Góð Sildveiði i Grænlensku lögsögunni

Grænlenski frystitogarinn Ilivileq kom til hafnar á Akureyri í gær- morgun með alls um 800 tonn af heilfrystri síld.

Togarinn er í eigu Arctic Prime sem er dótturfélag Brims hf.

Veiðin tók skamman tíma og var að sögn skipverja þokkaleg,

en að- eins eru tæpar tvær vikur síðan skipið landaði rétt tæplega þúsund tonnum af síld eftir stuttan tíma úti á miðunum.

Skipstjórinn er Þorvaldur Svavarsson og í áhöfn eru 28 menn.

Skipið hét áður Skálaberg RE 7 og var smíðað í Noregi árið 2003 fyrir færeyska útgerð.

Útgerðarstjórinn Guðmundur Gunnar Símonarson

segir að auk síldar veiði togarinn einnig þorsk, grálúðu, karfa og makríl. Á Græn- landsmiðum sé þó veiðin ekki jafn- einföld.

„Þeir skipta þessu upp í veiði- svæði. Við megum veiða á fjórum svæðum og þeir deila kvótanum okkar á þau svæði.

Þannig að þetta er ekki alveg eins og heima, þar sem þú færð þúsund tonna kvóta af þorski og mátt veiða hann hvar sem er.

  Heimild Morgunblaðið “ sh@mbl.is 

Myndir Þorgeir Baldursson 

    Góð sildveiði i Grænlensku lögsögunni Mynd þorgeir Baldursson 

     Landað úr Ilivileq á Akureyri i Gærmorgun  mynd þorgeir Baldursson

       Ilivileq GR-2-201 við bryggju á Akureyri mynd þorgeir Baldursson 

          Skipstjórinn Þorvaldur Svavarsson i brúnni mynd þorgeir Baldursson 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 779
Gestir í dag: 259
Flettingar í gær: 1007
Gestir í gær: 202
Samtals flettingar: 620990
Samtals gestir: 26778
Tölur uppfærðar: 6.5.2024 17:40:44
www.mbl.is