29.06.2019 09:15

Birjunnarkvóti á makril

        Skipverjar á Hugin VE 55 mynd óskar Pétur Friðriksson 2019

                          Makrilveiðar mynd þorgeir Baldursson 2016

Íslend­ing­ar taka sér stærri hlut af mak­rílafl­an­um í Norður-Atlants­hafi en þeir hafa áður gert. Mak­ríl­kvóti ís­lenskra skipa verður 140 þúsund tonn í ár, sam­kvæmt reglu­gerð sjáv­ar­út­vegs­ráðherra. Er það rúm­lega 32 þúsund lest­um meira en fyrri viðmiðun­ar­regl­ur hefðu gefið.

Íslend­ing­um hef­ur ekki verið hleypt að samn­inga­borði strand­ríkja­hóps mak­ríls þrátt fyr­ir marg­ar til­raun­ir. Þess vegna hafa stjórn­völd tekið sér ein­hliða kvóta eft­ir að mak­ríll fór að veiðast á Íslands­miðum. Miðað hef­ur verið við 16,5% af kvóta strand­ríkj­anna sem hefði gefið 108 þúsund tonn í ár. Nú er miðað við sama hlut­fall en af áætlaðri heild­ar­veiði allra ríkja. Bú­ast má við að heild­arafl­inn fari um 80 þúsund tonn yfir ráðgjöf vís­inda­manna.

„Ég sé ekki ástæðu til þess að við verðum eitt ríkja að vera í þeirri stöðu að taka ábyrgð á þess­um sam­eig­in­lega deili­stofni okk­ar,“ seg­ir Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs­ráðherra. Afla­marki var út­hlutað í gær og fyrstu skip­in héldu til veiða síðdeg­is.

Heimild Mbl.is

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 851
Gestir í dag: 110
Flettingar í gær: 546
Gestir í gær: 102
Samtals flettingar: 557583
Samtals gestir: 20953
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 14:55:48
www.mbl.is