Færslur: 2011 Maí

12.05.2011 13:27

Viktor Hvalaskoðunnarbátur


                                 1153 Viktor © mynd Þorgeir Baldursson 2011

                          1153 Viktor i prufusiglingu © mynd þorgeir Baldursson 2011

                             1153 Viktor á siglingu á Eyjafirði © mynd þorgeir Baldursson

                1547-Draumur og 1153 Viktor við slippbryggjuna mynd þorgeir Baldursson 2011
Sami eigandi og á Viktor mun vera að kaupa Draum af fyrri eiganda og mun hann væntanlega
verða gerður út i hvalaskoðun frá Dalvik á sumri komanda enda mjög góður til svoleiðis brúks

11.05.2011 23:09

Vesturvon VA 200


                                    Vesturvon  VA 200 © mynd þorgeir Baldursson

                           Vesturvon Va 200 á Eyjafirði © mynd Þorgeir Baldursson

                              Vesturvon á útleið © mynd þorgeir Baldursson

       Eydun Á Bergi Skipstjóri á Vesturvon Va 200 © mynd þorgeir Baldursson
Hún er glæsileg Vesturvon Va 200 sem að er i eigu Framherja sem að er dótturfélag
Samherja i Færeyjum og var verið a'ð gera skipið klárt til úthafsveiða á Reykjaneshrygg
Þegar þessar myndir voru teknar haustið 2009 en eins og fram kemur i fréttum hérna neðar á siðunni er fremur dræm veiði á slóðinni enn sem komið er en talið að það muni lagast
nú skömmu fyrir Mánaðarmótin mai-Júni annað skip Samherja Snæfell EA 310 hélt frá
Akureyri seinnipartinn i dag áleiðis á Hrygginn undir stjórn Ásgeirs Pálssonar

11.05.2011 16:16

Ási ÞH 3


           Haförn ÞH 26 sem að nú hefur fengið nafnið Ási ÞH 3 mynd þorgeir Baldursson
 er hér á siglingu á heimaslóðum Hafþórs á skjálfandaflóa fyrir mart löngu siðan þega báturinn var gerður út á rækju og net til skiptis

10.05.2011 18:48

Úthafskarfaveiðar hófust i dag


      Úthafskarfaveiði hóft i dag © mynd þorgeir Baldurson

  Ragnar Guðjónsson stjórnar krananum © mynd þorgeir Baldursson

         Karfanum ýtt niður i Móttökuna mynd þorgeir Baldurson

  Almar Björnsson tekur Prufur úr aflanum mynd þorgeir Baldursson
 úthafsveiði birjaði á Reykjaneshrygg  i dag og er þó nokkur skip kominn slóðina
aðallega Rússnesk þó munu nokkur islensk vera farin að hugsa sér til hreyfings en
 veiðin hefur verið um 500-700 kg á togtimann

10.05.2011 17:51

Áhöfnin um borð i Húna 2


                   Áhöfnin um borð i Húna 2   7 mai  © mynd þorgeir Baldursson 2011
      
            Talið frá vinstri Þorsteinn Pétursson,Lúðvik Gunnlaugsson,Ingi Pétursson,
     Sigtryggur Gislasson og Ellert Guðjónsson en eins og sumir vita sem að komið hafa
        um borð hefur verið unnið ómetanlegt starf i varðveislu þessa aldna trébáts
 og hefur verið vaxandi áhugi á varðveislu gamalla báta af þessari gerð þvi að þeim hefur fækkað ört á undanförnum árum nánari upplýsingar um bátinn eru á heimasiðunni www.huni.muna.is 
 

09.05.2011 22:42

Frosti ÞH 229 Til Sölu

                                        Frosti þh 229 © Mynd Þorgeir Baldursson 
         I siðustu Fiskifréttum var flakafrystiskipið Frosti ÞH229 auglýstur til sölu 
 skipið er smiðað i Póllandi1990 og var smiðað sem isfisktogari en breytt i frystiskip 1996
 þá var einnig sett ný brú á skipið árið 2ooo ásamt þvi að ibúðir voru stækkaðar 
 og gerðar voru fleiri endurbætur 
  skipið er skráð 303 brl ML 39,3  og BR 9,4 
  Aðalvél skipsins er Sulzer Cegielski 1740 HP 
  Sem að var tekin upp á þessu ári
Spurnigin er sú hvað ætlar Steini að gera er hann að hætta eða fara i isfisktogara sem að kemst uppað 4 milum eins og vörður ÞH  og þessi minni skip og togbátar hver veit þessar spurning verðu kanski svarað hér en við sjáum hvað setur 

09.05.2011 12:34

Bruni i Athenu i Færeyjum


          Athena brennur  mynd af vef © Færeyska Útvarpsins

Færeyska fiskiskipið Athena stendur í ljósum logum inni á Skálafirði í Færeyjum. Enginn slys hafa orðið á mönnum. Eldsins varð vart snemma í morgun en slökkvilið hefur ekki getað komist um borð í skipið enn, að því er segir í frétt á vef færeyska útvarpsins. Af þeim sökum er ekki vitað um eldsupptök.

Þess má geta að Athena komst í heimsfréttirnar í október síðastliðnum þegar eldur kviknaði í skipinu vestur af Frakklandi. Þá voru 111 manns um borð og bjargaði nærstatt flutningaskip 98 mönnum úr björgunarbátum. Enginn slasaðist heldur þá.

Heimild Fiskifréttir Kjartan

08.05.2011 23:57

Komið til hafnar með góðan túr


                1395 Sólbakur EA 1 siglir inn Eyjafjörð i morgun © Mynd Þorgeir Baldursson 2011

                           Með góðan Afla i lestinni © mynd þorgeir Baldurson 2011

                              Komið til hafnar á Akureyri © mynd þorgeir Baldursson 2011

07.05.2011 17:29

Nýr Ferðaþjónustubátur til Húsavikur

 Stefán Guðmundsson Skipstjóri © mynd Þorgeir Baldursson 2011
 
                  7695  Amma Sigga á siglingu á Eyjafirði i dag  ©  mynd þorgeir Baldursson 
 Ásamt hópnum sem að sigldi frá Akureyri til húsavikur i dag báturinn er harðbotnagúmibátur hann er 11,5 metrar á lengd 3 metrar á breidd með 2x300 hp Susuki utanborðsmótora eigandi hans er hvalaskoðunnarfyrirtækið Centle Ciants Nánar á heimasiðunni hér fyrir neðan

                         Sagan á bak við nafnið  á  Bátnum  Fréttatilkynning 

Gentle Giants á Húsavík fagnar 10 ára starfsafmæli í ár og heldur um leið uppá 150 ára sögu fjölskyldunnar á Skjálfandaflóa og nágrenni; notar tækifærið og kynnir með stolti nýjustu viðbót í flotann sem kom til heimahafnar á laugardag. Um er að ræða nýsmíði - harðbotna slöngubát (RHIB) með 2 x 300 hestafla utanborðsmótorum, sem mun verða sá hraðskreiðasti og flottasti á norðurlandi.

Báturinn hefur fengið nafnið Amma Sigga, eftir ömmu Stefáns Guðmundssonar, eiganda og framkvæmdastjóra, en hún bjó alla sína tíð við Skjálfandaflóa; fædd 1913 og sjö barna móðir. Saga hennar hefur löngum verið sögð í ferðum um Skjálfandaflóa sem og í Stikkluþáttum Ómars Ragnarssonar. Þegar hún var átta ára gömul og átti heima í torfbæ á Vargsnesi í Náttfaravíkum þá setti faðir hennar fram árabát og réri til Húsavíkur, sótti handa henni orgel og réri til baka yfir flóann og tók land undir Vargsnesi. Spenningur dótturinnar var þvílíkur að þegar báturinn lenti í fjörunni þá var orgelið tekið úr umbúðunum í fjöruborðinu og dóttirin, Sigríður Sigurbjörnsdóttir (Amma Sigga), lék fyrstu tónana á orgelið - áður en faðir hennar og annar til - settu það á bakið og báru upp í torfbæinn þeirra.

Með tilkomu þessa hraðskreiða harðbotna slöngubáts opnast fjölmörg ný og spennandi tækifæri í sjóferðum - bæði fyrir ferðafólk sem og fyrir heimamenn. Báturinn mun verða í áætlunarferðum í nýrri lundaskoðunarferð til Lundeyjar og stórhvalaskoðun.

Einnig eru möguleikarnir endalausir fyrir klæðskerasaumaðar ferðir þar sem siglingatímar styttast verulega. Má t.d. nefna starfsmanna- og fjölskylduferðir út í Flatey, Grímsey, Siglufjörð eða Hrísey og þjónustu við gönguhópa, kvikmyndatökufólk, ljósmyndara, kafara og annað ævintýrafólk sem leitar að nýjum áskorunum á sjó. Frekari upplýsingar á heimasíðu Gentle Giants www.gentlegiants.is.

Eftir gagngerar breytingar á flota fyrirtækisins er Amma Sigga vel búin til farþegaflutninga, samkvæmt reglum Siglingastofnunnar. Fyrir á Gentle Giants tvo eikarbáta, einn plastbát og svokallaðan Zodiac bát, sem notaðir eru í hvalaskoðun, sjóstöng og öðrum útsýnisferðum frá Húsavík.

,,Það er kominn tími fyrir nýjungar í Skjálfandaflóa og ljóst er að Amma Sigga muni vera algjör bylting fyrir starfsemi fyrirtækisins. Við fögnum 10. sumrinu okkar og bjóðum "hraðskreiðustu ömmunni í heimi" velkomna í flotann!" segir Stefán Guðmundsson.

AMMA SIGGA RHIB

Smíðaár: 2011 Lengd: 11.5 m Vélar: 2 x 300 hestöfl Hámarkshraði: 56 mílur

06.05.2011 20:22

3 X Technology á sjávarútvegssýningunnini Brussel 2011


                                Bás 3X I Brussel á Dögunum © mynd Jóhann Jónasson 
                            Básinn Hjá 3X var mjög flottur © mynd Jóhann Jónasson   
                       Sýningarsvæðið i Brussel © mynd Jóhann Jónasson 
                 Starfsmenn 3X á sýningunni standandi i básnum © mynd Jóhann Jónasson    

 Jóhann Jónasson, Albert Högnason, Karl Ásgeirsson, Kristján K. Aðalsteinsson,
 og Páll Kristjánsson

 
 

Sýningin gekk vel í alla staði og fengum við mikla aðsókn á básinn alla sýningardagana. Myndirnar eru teknar áður en hleypt var inn einn morguninn og skýrir það mannfæðina á myndunum. Við kynntum það nýjasta í okkar vörulínum m.a. skipakerfi, marningskerfi og vörulínur okkar í uppþíðingu sjávarfangs og nýjustu lausnir í laxaslátrun frá 3X Technology.

nánar upplýsingar eru á www.3xtechnology.is











04.05.2011 17:51

Einhugur i Bæjarstjórn Akureyrar

Gumundur Kristjánsson forstjóri Brims og Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja 
 Handsala samninginn fyrir framan veginn með skipamyndum i höfuðstöðvum Útgerðarfélags Akureyringa

Einhugur í bæjarstjórn

Bæjarstjórn Akureyrar fagnaði með 11 samhljóða atkvæðum kaupum Samherja á starfsemi Brims á Norðurlandi á fundi sínum þriðjudaginn 3. maí.  Þetta kemur fram í sérstakri ályktun sem samþykkt var á fundinum.

Bæjarstjórnin leggur áherslu á að með kaupunum sé ljóst að rekstur fiskvinnslu í bænum standi áfram á traustum grunni. Hið nýja félag, sem stofnað sé um reksturinn, fái nafnið Útgerðarfélag Akureyringa og lýsa bæjarfulltrúarnir þeirri von sinni að það muni bera nafn með rentu.

Í ályktuninni er einnig krafist lausnar í deilum um fiskveiðistjórnina í ljósi vandans sem fyrir liggur í atvinnu- og kjaramálum. Orðrétt segir í samþykkt bæjarstjórnar:

"Mál er að deilum um fiskveiðistjórnunarkerfið ljúki með samkomulagi og málamiðlun. Úrbætur í atvinnu- og kjaramálum við núverandi aðstæður þola ekki bið.
Bæjarstjórn hvetur stjórnvöld til þess að skapa sjávarútvegnum traustan rekstrargrundvöll og öryggi til framtíðar. Það er ein af mikilvægum forsendum sóknar í atvinnumálum við Eyjafjörð og í sjávarbyggðum landið um kring."

Heimild Samherji .is

03.05.2011 18:54

Bryggjurúntur i bliðunni i dag


          Skipaljósmyndarinn Brynjar Arnarsson i essinu sinu i dag © Mynd þorgeir Baldursson

                         1279-Brettingur KE 50 © Mynd þorgeir Baldursson 2011

                      Börkur Nk 122 á leið i Flotkvinna i dag © mynd Þorgeir Baldursson

                           Hinn Norski Havtind i slippnum © Mynd Þorgeir Baldursson 2011

     Grettir BA, Ásdis EA ,Havtind, Aðalsteinn Jónsson SU © Mynd þorgeir Baldursson 2011

                                    Regina C Nuuk © Mynd þorgeir Baldursson 2011

                      Friður EA botnmáluð © Mynd þorgeir Baldursson 2011

                Póseidon og Neptune ásamt Eið Ea © mynd Þorgeir Baldursson 2011

02.05.2011 23:58

Samherji h/F Kaupir Brim


   I dag var gengið frá kaupum Samherja H/f á landvinnslu Brims H/F á Akureyri ásamt  tveimur isfisktogurum þeim  Sólbak EA 1 og Mars EA 205 ásamst Hausaþurkunni  Laugafisk i Reykjadal
og um 5900 þorskigildistonna kvóta
hér að ofan Má sjá þá Kristján Vilhelmsson Útgerðarstjóra Samherja
Guðmund Krisjánsson Forstjóra Brims h/f og Þorstein Má Baldvinsson Forstjóra Samherja þegar þetta var tilkynnt i morgun  
Fleiri myndir i Myndaalbúmi hérna á siðunni

01.05.2011 22:05

Nýr Bátur i Grimsey

                          7183- Maria EA 77  © Mynd Þorgeir Baldursson 2011

                    Maria EA 77 Á siglingu á Eyjafirði © Mynd þorgeir Baldursson 2011
Nýr bátur kom til heima hafnar i Grimsey i dag þann 1 mai hann hefur fengið nafnið Maria EA 77 og er i eigu Óla Bjarna Ólasonar báturinn hét áður Ástþór RE og Gugga og er 5,6 brl og var smiðaður i Hafnarfirði 1989 Ganghraði er um 27 milur og kemur þessi bátur i stað Óla Bjarnassonar EA sem að hefur verið seldur kaupandi hans er Guðmundur Eiriksson á Hornafirði sem að lengi gerði út Haukafell SF og mun hann verða gerður út á strandveiðar við snæfellsnes i sumar

01.05.2011 02:31

Rússarnir Þjófstarta Á Úthafkarfamiðunum á Reykjaneshrygg


                                Novaspaský © Mynd þorgeir Baldursson 2000
 Einn hinna svokölluðu Rússatogara þessi mun vera um 20 metrar á breidd og 108 metrar á lengd

Við eftirlitsflug Sifjar, flugvélar Landhelgisgæslunnar í gær  var komið að sex rússneskum og einum spænskum togara að veiðum á Reykjaneshrygg á úthafskarfaveiðisvæði en samkvæmt reglum Norðaustur Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar-NEAFC (North East Atlantic Fisheries Commission),  mega úthafskarfaveiðar ekki hefjast fyrr en 10 maí.

Með greiningarbúnaði flugvélar Landhelgisgæslunnar sást greinilega að togararnir voru allir með veiðarfæri í sjó. Eitt skipanna var auk þess með slökkt á ferilvöktunarbúnaði.

Á heimasíðu sjávarútvegsráðuneytisins segir að á fundi nefndarinnar í mars sl. náðist samkomulag um veiðar úthafskarfa á Reykjaneshrygg milli Íslands, Grænlands, Færeyja,  Evrópusambandsins og Noregs en fulltrúar Rússlands mættu ekki til fundarins. Viðræður hafi staðið yfir árum saman en samkomulagið sem gert var gildir út árið 2014.

Málið verður kannað nánar, segir í frétt frá Gæslunni.

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 2118
Gestir í dag: 154
Flettingar í gær: 1762
Gestir í gær: 168
Samtals flettingar: 596315
Samtals gestir: 24891
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 17:25:24
www.mbl.is