Færslur: 2016 Júlí

11.07.2016 18:26

2265 Arnar Hu 1

                           2265 Arnar HU 1 Mynd Þorgeir Baldursson 2015

11.07.2016 18:15

1999 Fram ÞH 62

                      1999 Fram ÞH 62 mynd þorgeir Baldursson 2013

10.07.2016 19:27

2594 Raggi Gisla Si 73

               2594 Raggi Gisla Si 73 mynd þorgeir Baldursson 2016

10.07.2016 02:49

1487 Máni Hvalaskoðunnarbátur

   1487  Máni kemur til Dalvikur mynd þorgeir Baldursson 2016

09.07.2016 15:25

Tveir á Sigló i Vikunni

               Tveir Linubátar á siglufirði i vikunni Mynd þorgeir Baldursson 

08.07.2016 00:53

1452 Steini Vigg Si 110

       1452 Steini Vigg SI 110 við bryggju á siglufirði Mynd þorgeir 6 júli 2016

05.07.2016 14:33

Komið til Klakksvikur Korter fyrir leik

     Áhöfnin á Húna 11 EA 740 Skömmu fyrir Brottför Mynd þorgeir Baldursson 

       Skipstjórinn Viðir Benidiktsson i Brúnni Mynd þorgeir Baldursson 

     Lagt af stað til Færeyja á Strandmenningarhátið mynd Þorgeir Baldursson 

Heimild Morgunblaðið 

Myndir Þorgeir Baldursson

Norrænni Strandmenningu hampað i Færeyjum 

Áhöfnin á Húna II er nú stödd í Færeyjum, þar sem norrænir strandmenningardagar verða haldnir í vikunni.

Ákvað áhöfnin að koma til hafnar fyrr en áætlað var svo hægt væri að horfa á leikinn mikilvæga við Frakka

og munaði litlu að áhöfnin næði upphafssparkinu.

„Við komum til Klakksvíkur kortéri fyrir leik og var boðið í heimahús hjá vini til að horfa á leikinn,“ segir Þorsteinn Pétursson,

betur þekktur sem Steini Pje, en hann er varaformaður Hollvinasamtaka Húna II.

Steini segir að Færeyingarnir hafi allir verið á bandi Íslands.

„Það er gaman að koma hingað til Færeyja, þeir eiga svo mikil tengsl við Ísland, og greinilega mikill hlýhugur gagnvart Íslendingum.

“ Hann bætir við að við sem þjóð getum staðið stolt upp frá leiknum þó að úrslitin hafi ekki verið okkur hliðholl.

„Auk þess sem við áttum inni eitt víti!“ segir Steini og hlær.

Þéttskipuð dagskrá

Dagskráin hjá Húna II er þétt skipuð næstu daga, en áhöfnin stóð í gærkvöldi fyrir kaffisamsæti í Klakksvík,

þar sem á boðstólum var íslenska mjólkurkexið, kleinur og annar þjóðlegur matur.

Með í för eru þau Þorvaldur Skaftason og Erna Sigurbjörnsdóttir, en þau forðuðu Húna á sínum tíma frá því að enda á áramótabrennu.

Þau munu syngja og spila íslensk sjómannalög og segir Steini að þeir sem geti muni taka undir, og kannski líka hinir.

„Það yrði lítill söngur í skóginum ef bara bestu þrestirnir myndu syngja!“

Í dag verður svo lagt af stað til Fuglafjarðar, þar sem aftur verður slegið upp í veislu áður en lagt er af stað til Þórshafnar,

en þar verður efnt til hópsiglingar með Færeyingum og öðrum Norðurlandaþjóðum.

Hin eiginlega strandmenningarhátíð hefst síðan á föstudaginn í Vogum.

Norræna strandmenningarhátíðin er árviss viðburður, sem haldinn var í fyrsta sinn í Húsavík árið 2011,

en Norðurlandaþjóðirnar skiptast á að halda hana. Þetta er í annað sinn sem Húni II tekur þátt í hátíðinni,

en báturinn sigldi til Óslóar fyrir tveimur árum og tók þátt í hátíðinni þar.

Mættum horfa til Færeyja

„Þarna hittist áhugafólk um strandmenningu, skip og báta og siglingar,“ segir Steini,

en Íslenska vitafélagið hefur haft veg og vanda af þátttöku Íslands í hátíðunum. „Þarna verður fólk að kynna breiðfirska menningu,

meðal annars bátasmiður frá Breiðafirði, og ýmislegt fleira verður um að vera,“ segir Steini, sem á von á því að hátíðin verði vel sótt.

„Það er mikill áhugi á öllu svona í Færeyjum, þeir lifa mikið í gegnum þessa strand- og bátamenningu

og við mættum horfa til þess hvernig þeir viðhalda stoltir sögunni og menningunni,“ segir Steini að lokum.

04.07.2016 09:15

Hvalaskoðun á Skjálfanda

Það var lif og fjör á Skjálfanda flóa i siðustu viku þegar ég skrapp i hvalaskoðun með Faldinum 

hérna koma nokkrar myndir úr ferðinni 

   

   7790  Amma sigga i návigi við hnúfubak mynd þorgeir Baldursson 2016

                    Hnúfubakur sýnir sporðinn  Mynd þorgeir Baldursson 2016

    Fjöldi Hvalaskoðunnarbáta á skjálfanda mynd þorgeir Baldursson 2016

      7800 Amma Helga nýjasti rib bátur GG mynd þorgeir Baldursson 2016

           Opal skúta Norðursiglingar við hval mynd þorgeir Baldursson 2016

      1468 Sylvia eikarbátur GG á siglingu mynd þorgeir Baldursson 2016

03.07.2016 23:57

Ilivileq GR 2-201 Heldur til makrilveiða i Grænlensku lögsögunni

                                      Ilivileq Gr 2-201    Mynd Jósef Ægir 2016

Af vef Fiskifretta 

Á vef grænlensku landsstjórnarinnar er frá því skýrt að makrílveiðar séu hafnar í grænlenskri lögsögu.

Ilivileq, sem Arctic Prime Fisheries gerir út og er að hluta í eigu Brims, er eina skipið sem komið er á miðin.

Í gær var skipið komið með 146 tonna afla. og landaði i Reykjavik þeim afla og hélt svo til veiða

er á miðin var komið þá slitnað togvir svo að skipið þurfti að leita hafnar þar sem að trollið hafði óklarast 

að kvöldi 3 Júli var svo haldið af stað i makriltúr no 2 sem að vonandi gengur betur 

Eins og fram hefur komið er makrílkvótinn við Grænland 85.000 tonn,

 sem skiptist þannig að 35.000 tonn ganga til grænlenskra skipa, 20.000 tonn til erlendra skipa

sem útgerðir sem eiga grænlensk skip taka á leigu, og loks 30.000 tonn til grænlenskra útgerða sem ekki eiga fiskiskip. 

Fram kemur á vefnum að hingað til hafi verið gefin út 13 makrílleyfi þar sem um 20 skip koma við sögu í veiðum. 

02.07.2016 00:00

Skemmtiferðaskip á Eyjafirði i dag

    Tvö skemmiferðaskip og Lóðsbátur á Eyjafirði i dag mynd þorgeir 2016

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 2610
Gestir í dag: 171
Flettingar í gær: 1762
Gestir í gær: 168
Samtals flettingar: 596807
Samtals gestir: 24908
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 20:29:23
www.mbl.is