Færslur: 2009 Mars

25.03.2009 00:17

Gissur hvíti SF 55


                             457. Gissur hvíti SF 55 © mynd Snorri Snorrason

25.03.2009 00:14

Glófaxi NK 54


                                    462. Glófaxi NK 54 © mynd Snorri Snorrason

25.03.2009 00:11

Grundfirðingur SH 124


                                467. Grundfirðingur SH 124 © mynd Snorri Snorrason

25.03.2009 00:07

Guðbjörg ÓF 3


                                     470. Guðbjörg ÓF 3 © mynd Snorri Snorrason

25.03.2009 00:04

Gullberg NS 11


                                 244. Gullberg NS 11 © mynd Snorri Snorrason

25.03.2009 00:01

Guðjón Einarsson GK 161


                             476. Guðjón Einarsson GK 161 © mynd Snorri Snorrason

24.03.2009 19:44

Wilson Skaw

Flutningaskipið Wilson Skaw beið af sér veður undir Vogastapa um síðustu helgi og voru menn að spá í hvað það væri að gera þar á einni af skipasíðunum. Þegar veðrið gekk yfir kom í ljós að skipið var á leið til Grindavíkur og kom þangað á mánudag og losaði salt. Nú heldur síðuritari að skipið sé á leið til Hafnarfjarðar til að losa þar einnig salt. En þessi mynd var tekin á mánudagsmorgun af skipinu í Grindavík.


                     Wilson Skaw í Grindavíkurhöfn sl. mánudag © mynd Emil Páll

24.03.2009 16:44

Aðalsteinn Jónsson su 11


            ©Aðalsteinn Jónsson SU 11 Mynd þorgeir
Aðalsteinn Jónsson SU með fullar frystilestar af kolmunna við komu til Neskaupsstaðar 2006

Skip Eskju hf, Aðalsteinn Jónsson og Jón Kjartansson, komu til hafnar um helgina með 3.200 tonn af góðum kolmunna. Aðalsteinn kom með fullar frystilestar af heilfrystum kolmunna til manneldis og Jón landaði um 2000 tonnum í fiskimjölsverksmiðjuna.
Í frétt á heimasíðu Esku segir að gengið hafi vel hjá skipum félagsins á kolmunnamiðunum þótt einstaka brælur hafi gert sjómönnunum erfitt fyrir. Langt er að sækja kolmunnann og tekur sigling á miðin um tvo sólarhringa.

Félagið á eftir um 8.500 tonn af kolmunnakvóta og stefnt er að kvótinn klárist í byrjun maí. Jón Kjartansson hefur fiskað um 9.000 tonn af kolmunna það sem af er ári og Aðalsteinn Jónsson um 4.700 tonn, þar af hafa um 2.200 tonn verið heilfryst til manneldis.

Strákarnir á Aðalsteini hafa verið að gera tilraunir með að hausskera og slógdraga kolmunna sem lofar góðu en útlit er fyrir að markaður sé til fyrir slíkar afurðir Heimild skip.is

24.03.2009 13:50

Siglunes SI 70

Hér sjáum við Siglunes SI 70, sem áður hafði sama nafn en nr. SH 36. Skipið var eins og sagt var frá hér á síðunni nýverið selt til Siglufjarðar og er kaupandi Ráeyri ehf. sem mun gera skipið út á rækjuveiðar.


                    1146. Siglunes SI 70 í Njarðvíkurslipp í dag © mynd Emil Páll

24.03.2009 00:00

Hvalur 8, Ontika, Magni og Gullborg

Gunnar th. tók þessa myndasyrpu á símann sinn og sýnir hún eftirfarandi, samkvæmt hans lýsingu: Þarna er Hvalur 8 í slippnum, verið að skipta um plötur í byrðingi. Þeir eru ekkert að setja fyrir sig hnoð og skörun, kallarnir á þessum bæ. Skera bara burtu það sem skemmt er og sjóða svo nýtt inní. Það er búið að öxuldraga en skrúfan hangir í stroffum undir skutnum. Það er dálítið sérkennilegt að virða fyrir sér svona hællausan skrokk, dálítið óvanalegt að sjá svona smíðalag. Það var verið að vinna við gatið á bakborðssíðunni og mátti heyra hávaða innan úr skrokknum. Svo var líka verið að vinna við Ontika, gamla Orra ÍS. Ég smellti mynd aftan á gamla Magna við safnbryggjuna, dálítið sérstakt sjónarhorn á skip við bryggju en uppfyllingin er komin svona langt út. Þarna stendur gamla Gullborgin líka og má muna sinn fífil fegurri. Kalföttunin er farin að hanga út á milli planka og skrokkurinn er allur að gliðna.





                                                               Hvalur 8

                                                     Ontika ex Orri ÍS

                                                       Magni og Óðinn

                                       Gullborg SH 338 © símamyndir Gunnar Th
                                           

23.03.2009 12:17

Erika farin á suðlægar slóðir

Samkvæmt heimildum síðunnar stóð til að uppsjávarveiðiskipið Erika sem legið hefur í Hafnarfirði færi þaðan í morgun til nýrra eiganda í suðlægari löndum. Hefur jafnvel verið talað um að skipið yrði gert út frá Chile.


                         Erika í Hafnarfjarðarhöfn í síðustu viku © mynd Emil Páll

23.03.2009 00:13

Þekkið þið þetta flak undir Vogastapa

Þó ég hafi oft farið um fjöruna fyrir neðan fiskeldisstöðina í Vogavík við Vogastapa, hef ég aldrei tekið eftir flaki því sem myndir birtast nú af og Þórarinn Ingi Ingason, flugstjóri benti mér á. Hugsanlegt er að þetta sé frá þeim tímum sem nokkrir Akurnesingar með Harald Böðvarsson í fararbroddi stofnuðu til útgerðarstöðvar í upphafi síðustu aldar á Vogahólma. Þetta getur líka verið mun yngra og því spyrjum við ykkur lesendur góðir hvort þið vitið eitthvað um málið. Þó margir bátar hafi verið brenndir undir Vogastapa, var það mikið nær Njarðvík sem það gerðist, en ekki þarna nánast við Voga. Sjáum við nú fjórar myndir sem Þórarinn Ingi tók úr lofti af flakinu og vonandi finnst einhver sem veit eitthvað um hvaða flak þetta sé.





                       Óþekkt flak undir Vogastapa © myndir Þórarinn Ingi Ingason

23.03.2009 00:08

Jón Helgason ÁR 150 á strandstað

 Hér sjáum við Jón Helgason ÁR 150 sem strandaði við Eyrarbakka í jan. 1965.


         666. Jón Helgason ÁR 150 á strandstað við Eyrarbakka © mynd úr safni Tryggva Sigurðssonar

23.03.2009 00:04

Kópanes RE 8 á strandstað

Hér sjáum við Kópanes RE 8 á strandstað við Grindavík, en það strandaði þar í lok febrúar 1973.


             1154. Kópanes RE 8 á strandstað við Grindavík © mynd úr safni Tryggva Sigurðssonar

22.03.2009 21:16

Guðmundur rauði

Gunnar Th. sendi okkur skemmtilega myndasyrpu sem tekin var í Reykjavíkurhöfn og í slippnum og munum við birta hana fljótlega. Þá smellti hann líka mynd af honum "Guðmundi rauða" í uppsátri við Kópavogshöfn.  Myndinni fylgdi eftirfarandi texti: Hann er nýkeyptur frá Akranesi og á nú að verða sportveiðiskip. Eigandinn var að mála hann og snyrta á dögunum, og miðað við handverkið er þar hagleiksmaður á ferð, enginn klíningur heldur nostrað við hvert smáatriði. Verulega falleg fleyta þetta.

Með myndinni er mynd sem síðuritari tók af bátnum fyrir nokkrum dögum en þá var verkið ekki komið svona langt, en engu að síður látum við þá mynd flakka einnig.


              7037. Guðmundur Rauði við Kópavogshöfn © símamynd Gunnar Th.

                             Sami bátur sl. þriðjudag © mynd Emil Páll

 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 831
Gestir í dag: 50
Flettingar í gær: 1385
Gestir í gær: 74
Samtals flettingar: 605035
Samtals gestir: 25486
Tölur uppfærðar: 25.4.2024 09:50:13
www.mbl.is