Færslur: 2009 Maí

17.05.2009 00:13

Skagaröst KE 34


                           762. Skagaröst KE 34 © mynd Snorri Snorrason
Byggður í Nykobing M. Danmörku 1958. Er hann var sjósettur í Limafirði bar hann nafnið Vörður, en áður en hann var afhentur varð nafnið Heimir orðið ofan á.
Nöfn: Heimur SU 100, Skagaröst KE 34, Skagaröst ST 34, Ingibjörn ST 37 og Ingibjörg BA 204. Úreltur í des. 1991.

17.05.2009 00:01

Sæborg KE 102


                           824. Sæborg KE 102 © mynd Snorri Snorrason
Bátur þessi er enn í útgerð og var m.a. birt mynd af honum hér á síðunni fyrir fáum dögum sem Fengsæll ÍS.
Annars er saga hans þessi: Hann var smíðaður í Fredrikssund, í Danmörku 1930 og endurbyggður í Keflavík 1971-1972. Síðustu níu árin fyrir endurbyggingu þótti hann nokkuð óhrjálegur og gekk þá undir nafninu, TORFBÆRINN. Árið 1989 var báturinn elsti bátur Suðurnesja og 4. elsti bátur landsins, 1993 var hann næst elsti bátur landsins og frá aldamótum eða frá árinu 2000 hefur hann verið elsti bátur landsins.
Nöfn þau sem báturinn hefur borið á þessum tæpu 80 árum eru: Huginn GK 341, Jón Dan GK 341, Farsæll SH 30, Sævorg GK 86, Sæborg BA 86, Sæborg RE 328, Sæborg SH 128, Sæborg RE 325, Sæborg KE 102, Bergþór KE 5, Ingólfur GK 125, Fengsæll GK 262 og Fengsæll ÍS 83.

16.05.2009 00:09

Haförn HU 4


                                    1470. Haförn HU 4 © mynd Birgir Karlsson

16.05.2009 00:01

Haförn ÞH 198


                                                  1186. Haförn ÞH 198


        1186. Haförn kominn að landi með góðan rækjufarm © myndir  Birgir Karlsson

15.05.2009 12:56

Rautt Portland VE 97 til Eyja

Benóný Benónýsson, yngri eða Binni eins og hann er kallaður, sendi okkur myndasyrpu sem tekin var af Portlandi VE 97, er skipið kom blátt að lit í Njarðvíkurslipp á dögunum og fór þaðan síðan í rauðum lit. Þá er ein mynd af Portlandi VE 97 komið til heimahafnar í Vestmannaeyjum. Sendum við Binna kærar þakkir fyrir.



      219. Portland VE 97 á leið inn í hús til litabreytinga hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur á dögunum


Svona leit Portland út er það kom út úr húsinu


  Hér er Portland VE 97 komið í rauða litnum til sinnar heimahafnar í Vestmannaeyjum © myndir Benóný Benónýsson í maí 2009

 

15.05.2009 00:12

Dísa GK 136


                          2110. Dísa GK 136 © mynd Emil Páll maí 2009

15.05.2009 00:07

Elín Kristín GK 83


                            7423. Elín Kristín GK 83 © mynd Emil Páll maí 2009

15.05.2009 00:01

Flugaldan ST 54


                          2754. Flugaldan ST 54 © mynd Þorgeir Baldursson maí 2009

14.05.2009 23:17

Rækjuveiðar frá Hvammstanga

Birgir Karlsson sem býr á Hvammstanga og hefur lengi verið á sjó þaðan svo fyrir sendi okkur slatta af skemmtilegum myndum, sumar algjörar perlur, af bátum sem gerður voru út þaðan og eins öðrum sem hann var á fyrir sunnan. Munum við birta þessar myndir næstu daga og vikur, en þarna má m.a. sjá mannskap við rækjuveiðar, humarveiðar og netaveiðar. Fyrstu myndirnar sýna mannskap á Glað HU 67 á rækjuveiðum.




            1065. Glaður HU 67 á rækjuveiðum © myndir Birgir Karlsson, Hvammstanga

14.05.2009 00:13

Eskifjörður


                                  Hákarlaverkandi

                                                     Lúðuhaus

          6983. Hólmanes SU 1 sl. mánudag © myndir Þorgeir Baldursson 2009

14.05.2009 00:06

Rýta ÍS 118

Gunnar Th. sendi okkur þó nokkrar myndir fyrir nokkrum dögum og höfum við nú birt þær allar. Með þessari fylgdi eftirfarandi lesning: Ég læt fljóta með mynd af RYTU hans Gunnsteins vinar míns í Bolungavík. Gunnsteinn hefur í tvö eða þrjú ár dundað við að koma bátnum í stand eftir langa lega á kambi. RYTA er fallegasta trilla, hét upphaflega Jón Formaður RE en var síðast í eigu Leifa Ingólfs í Víkinni (sem er pabbi Ingólfs Þorleifssonar)


                                  5239. Rýta ÍS 118 © mynd Gunnar Th. 2009

14.05.2009 00:01

Aðalsteinn Hannesson AK 35


                  5443. Aðalsteinn Hannesson AK 35 © mynd Þorgeir Baldursson 2009

13.05.2009 00:17

Besiktas Halland

Um þetta skip fræddi Óskar Franz okkur um og sagði: Basiktas Halland er smíðað 2008 hjá Karadeniz Gemi Insa í Tyrklandi sm.no.5.og mælist 7800 t. 122.66 m x17.20m.


                  Besiktas Halland í Örfirisey sl. mánudag © mynd Emil Páll  2009

13.05.2009 00:10

Frenger


                                           Frenger © mynd Emil Páll 2009
Þetta rúmlega 40 ára gamla norska skip var í Reykjavíkurhöfn sl. mánudag og benti margt til þess að verið væri að undirbúa það til slipptöku. Annars hefur Óskar Franz útvegað okkur þessar upplýsingar um skipið:
Frengen er smíðað 1967 hjá Frengen Slip & Motorverksted í Fevag í Noregi sm.no.3. og mælist 407 t. Upphaflega hét skipið Fengen,en árið 1982 fær það nafnið Frengoy,og svo aftur nafnið Fengen 2008.

13.05.2009 00:05

Egersund


  Egersund á Eskifirði sl. mánudag. Frekari upplýsingar um skipið eru ókunnar © mynd Þorgeir Baldursson 2009

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1348
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 2311
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 570886
Samtals gestir: 21607
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 11:58:39
www.mbl.is