Færslur: 2010 Febrúar

14.02.2010 16:48

Nýr Bátur á Patreksfjörð


                         Geirseyri Ba 29  EX (Lárus EA 77)© Mynd þorgeir Baldursson 2010

                           Eigandi Geirseyri BA 28 ©mynd þorgeir Baldursson 2010

                    Gert klárt til Flutnings vestur ©Mynd þorgeir Baldursson 2010
I dag var fluttur frá Akureyri Lárus EA 77 en hann hefur verið seldur vestur á Patreksfjörð
Báturinn mun fá nafnið Geirseyri BA 28 og mun stunda veiðar i strandveiði kerfinu

14.02.2010 15:49

Góður Gangur i loðnuveiðum


                                          Erika GR-18-119 ©mynd svafar Gestsson 2010

                         Vilhelm þorsteinsson EA 11© mynd Svafar Gestsson 2010

Góður gangur hefur verið i loðnuveiði siðasta sólahringinn og hafa skipin verið að fylla sig i þremur  til 5 köstum Jóna Eðvalds er að koma til hafnar á Hornafirðið i dag  Við tókum skammtinn okkar 700 tonn í 3 köstum vestan við Reykjanes í gær. Gáfum þeim á Eriku 40-50 tonn og Vilhelm Þorsteins 100 tonn.

 

13.02.2010 16:04

Loðnufréttir


                                    Guðmundur VE 29 ©Mynd Áhöfn

               Eddi Grétars  og Konstantín koma loðnunni í tækin ©Mynd Áhöfn 
     
           Peskallinn kemur frosnum blokkum á færibandið áleiðis í pökkun ©mynd Áhöfn

              Guðmundur VE við Bryggju i Eyjum ©Mynd Óskar P Friðriksson
.

Guðmundur VE 29 mun landa i Eyjum i kvöld eða i fyrramálið aflinn er mjög góður  eða á
niunda hundrað tonn sem að er fullfermi af frosinni loðnu einnig mun vera von á Vilhelm Þorsteinssyni inn til löndunnar annaðhvort i Helguvik eða Hafnarfjörð hann mun vera með fullfermi af frostnu  Norðborgin KG 689sem að fjallað er um hérna að ofan eu nú fyrir utan helguvik og spurning
hvað hún gerir

13.02.2010 10:20

Norðborg KG 689 I Eyjum


                                  Norðborg KG 689 ©Mynd Óskar P Friðriksson

                                    Við Bryggju i Eyjum ©mynd Óskar P Friðriksson

                                           Nótin tekin ©mynd Óskar P Friðriksson

                                        Nótin tekin um borð ©mynd Óskar P Friðriksson

                             Horft frammeftir dekkinu ©mynd Óskar P Friðriksson

                                   18 metra Breiður ©mynd Óskar P Friðriksson

                                       Nótinn sett i Kassan ©mynd Óskar P Friðriksson

                                          Vinnslan ©mynd Óskar P Friðriksson

                                           Lestin ©mynd Óskar P Friðriksson

                                        Gúanó ©Mynd Óskar P Friðriksson

                                           Brúin ©Mynd Óskar P Friðriksson

                                            Borðsalurinn ©mynd Óskar P Friðriksson

                                          Setustofan ©mynd Óskar P Friðriksson
Óskar Pétur Friðriksson Ljósmyndari Eyjafrétta sendi mér nokkar myndir frá komu skipsins
til Eyja og hérna biritast þær BESTU ÞAKKIR Óskar fyrir afnotin


Stórt og mikið uppsjávarskip frá Færeyjum kom við í Eyjum í nótt, Norðborg að nafni.  Skipið var að taka nót um borð en nokkrir Eyjamenn notuðu tækifærið, fóru á fætur klukkan þrjú í nótt og fengu að fara í skoðunarferð um skipið undir leiðsögn skipstjóra þess, Jóns Rassmundsen.  Meðal þeirra var Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari en eftir skamma stund verða settar fleiri myndir hér inn frá ferðinni.

Ekkert skip er jafn stórt og Norðborg og má gera ráð fyrir því að ekki hafi stærra fiskveiðiskip lagt að bryggju í Eyjum.  Eins og áður sagði er skipið gríðarstórt, 83 metrar að lengd og 18,3 metrar á breidd.  Til samanburðar má geta þess að Herjólfur er 70,5 metra langur og 16 metra breiður.  Um borð í Norðborg er pláss fyrir 1350 tonn af frystivöru og kælitankar skipsins bera 1100 tonn.  Um borð er mjölbræðsla og er hægt að geyma 350 tonn af mjöli í skipinu.  29 eru í áhöfn Norðborgar og um borð eru þrír lyftarar en skipið er svo til nýtt, var tilbúið í maí 2009.  Þannig að það má með sanni segja að Norðborg sé ekkert minna en fljótandi fiskvinnsla.
 
 
Heimld www.eyjafrettir.is




11.02.2010 22:30

Klakar i Wiskyið


                                          Við strönd Grænlands ©mynd Jóhannes Sigurðsson 2009

                               Siglt að ismolanum ©mynd Jóhannes Sigurðsson

                                     Kraninn gerður klár ©mynd Jóhannes Sigurðsson

                               kominn með fyrstu færuna ©mynd Jóhannes Sigurðsson

                                      og innfyrir með klakann ©mynd Jóhannes Sigurðsson

                                         Kallarnir að græja ©mynd Jóhannes Sigurðsson

                                        Þá birtist selur ©mynd Jóhannes Sigurðsson

                              Dagurinn á enda ©mynd Jóhannes Sigurðsson 2009
Jóhannes Sigurðsson skipstjóri Sikuk GR ex(Sunnuberg Gisli Árni) hefur verið við strendur
Grænlands og farið á milli fjarða til að ná i ismola sem að eru svo settir ofan i lest með þessum krabba og siðan er klakinn seldur veitingahúsum i Canada og Bandarikjum fyrir dágóða upphæð

11.02.2010 10:48

Hábergið EA 299 selt úr landi


                                            Háberg EA 299 ©Mynd þorgeir BALDURSSON 2009
Dótturfélag Samherja H/f Hjalteyrin EHF hefur selt til Noregs tog og nótaskipið Háberg EA 299
skipið mun fá nafnið Ostanger og mun skipið verða skráð i Bergen það er fyrirtækið
Ostanger A/s i Torangsvag sem að kaupir skipið og mun það verða afhennt innan tveggja
vikna ástæða sölunnar mun vera þverrandi kvótastaða i uppsjávarveiði sem að ekki sjái fyrir endan á komandi árum

10.02.2010 10:59

Loðnuveiðar 2010


                                    Bjarni Ólafsson AK 70 ©Mynd Svafar Gestsson

                                          Börkur NK 122 ©Mynd Svafar Gestsson

                                       Súlan EA 300 ©Mynd Svafar Gestsson

                           Á Dekkinu á Jónu Eðvalds SF 200 ©Mynd Svafar Gestsson

                       Matti kokkur og Óli löndunnarstjóri ©mynd Svafar Gestsson
Hérna koma nokkrar myndir af loðnuveiðum 2010 þar sem að skipin voru stödd útaf Þorlákshöfn seinnipartinni gær myndirnar tók  Svafar Gestsson vélstjóri á Jónu Eðvalds SF 200 og kann ég
honum bestu þakkir fyrir myndaafnotin

10.02.2010 01:27

Hvanney SF kemur til löndunnar


                               Hvanney SF 51©Mynd Andri Snær Þorsteinsson  2010

                   Þorsteinn Guðmundsson skipstjóri ©Mynd Andri Snær Þorsteinsson

                               Löndun úr Hvanney SF 51 ©Mynd Andri Snær Þorsteinsson
Mjög góð aflabrögð hafa verið hjá hornfirskum bátum það sem af er árinu og ekki hægt að segja annað en að nóg sé af þeim gula i sjónum meðfylgjandi myndir voru teknar i dag þegar Hvanney kom úr róðri

08.02.2010 21:54

Vilhelm með fullfermi af frostnu


       Guðmundur Jónsson skipstjóri ©mynd þorgeir Baldursson

              Vilhelm Þorsteinsson EA 11 ©mynd þorgeir Baldursson
Fjölveiðskip Samherja H/F Vilhelm Þorsteinsson EA 11 er nú á leið til Norðfjarðar með
góðan afla 540-570 tonn af frosinni loðnu hrognainnihald er um 19% auk vilhelms er
Súlan EA 300 að landa um 600 tonnum á Norðfirði aflabrög hafa verið með besta
móti eftir að hún fór að gefa sig og vonandi sér nú sjávarútvegsráðherra að sér og
gefur út allmennilegan kvóta svo að eitthvað fari nú að koma i kassann

07.02.2010 23:31

Rækjustrið um Flæmska Hattinn


                                 Ocean Prawns © mynd þorgeir Baldursson

Ocean Prawns landar rækju i Harbore Grace á Nýfundalandi og var aflinn um 700 tonn iðnaður og suða

Rækjustríð við Kanada

 
Grænlensk og færeysk rækjuskip fá ekki að koma til hafnar í Kanada frá 15. febrúar nema þau dragi verulega úr afla sínum.

Kanadísk stjórnvöld saka Grænlendinga og Færeyinga um ofveiði á Flæmingjagrunni, alþjóðlegu hafsvæði út af austurströnd Kanada. Þeir hafa sjálfir skammtað sér 3100 tonna kvóta. Kanadíska sjávarútvegsráðuneytið segir að kvóti þeirra sé 334 tonn eins og NAFO hafi ákveðið. Danir, sem semja fyrir hönd Grænlands og Færeyja, telja ríflega 3100 tonna kvóta eðlilegan. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem rækjuveiðarnar valda deilum. Grænlensk og færeysk rækjuskip fengu ekki að landa í Kanada frá því í desember 2004 og fram í mars í hitteðfyrra. Fyrir Grænlendinga skiptir löndunarbannið litlu máli en þeim mun meira máli fyrir Færeyinga. Færeysku skipin, sem eru mun stórtækari í veiðunum, verða nú að landa í Reykjavík eða sigla heim til Færeyja.


frettir@ruv.is

07.02.2010 11:57

Svipmyndir úr siðasta túr


                                    Stroffan sett á belginn © mynd þorgeir Baldursson

                                              Trollið yfirfarið ©mynd þorgeir

                                  Lásað i upphalarakeðju ©mynd þorgeir

                                     Lásað i hlerann ©mynd þorgeir Baldursson
Sólbakur EA 1 kom til hafnnar á Akureyri um kl 21/30 i gærkveldi með góðan afla um 90 tonn
hérna kemur smá myndasyrpa úr siðasta túr

02.02.2010 08:12

Rækjuveiðar á Dornbanka


                                               Nökkvi HU 15 ©Mynd Brói Alla

                                      Guðmundur Guðjónsson BA ©Mynd Brói Alla

                                         Sunna SI ©mynd Brói Alla

                           Áhöfnin á Júlla Havstein ÞH 1 ©Myndasafn Bróa Alla 1991
Svipmyndir af Rækjuveiðum á Dornbanka i kringum 1990 allar myndirnar eru úr safni Guðmundar Aðalsteinssonar og vil ég þakka honum Kærlega fyrir Afnotin á myndunum

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 192
Gestir í dag: 25
Flettingar í gær: 1506
Gestir í gær: 141
Samtals flettingar: 605902
Samtals gestir: 25602
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 04:59:14
www.mbl.is