Færslur: 2008 Maí

19.05.2008 00:00

Maggi Jóns og Hafborg


                  1787. Maggi Jóns KE 77 og 1587. Hafborg KE 12 © Emil Páll

18.05.2008 07:06

Moby Dick

                                                        46. Moby Dick © Emil Páll
Þeir eru efalaust margir sem kannast við þennan norskssmíðaða bát, því hann var upphaflega smíðaður sem Fagranesið og þjónaði í tæp 30 ár sem djúpbátur Ísfirðinga. Eftir það varð hann Fjörunes og gerður út til útsýnisferða og stangaveiða fyrst frá Hafnarfirði og síðan með sama nafni frá Akranesi. Eftir það tóku Húsvíkingar við skipinu og gáfu núverandi nafn og þaðan fór skipið suður með sjó og eins og á Húsavík var það notað frá Keflavíkurhöfn til hvalaskoðunar. Samkvæmt einni af skipasölunum hefur það nú verið selt en ekki er vitað hvert.

17.05.2008 23:33

1069 Loftur Baldvinsson EA 24


Þessi var smíðaður 1968 hjá Hommelvík Mek. Verksted A/S sm.no 110.

17.05.2008 00:03

Ígull HF 21


                                                 1499. Ígull HF 21  ©  Emil Páll

16.05.2008 21:23

973 Ljósfari ÞH 40


Hér kemur mynd af einum sem liggur á dauðadeildinni í dag.

16.05.2008 08:22

Allt of margir


                                                      Hér eru fjórir upp á bryggju   © Emil Páll
Í höfnum landsins hefur á undanförnum árum safnast saman mikið að bátum sem eru
ekki lengur í útgerð. Tökum sem dæmi Sandgerðishöfn er þar eru átta þilfarsbátar sem bíða ýmist það hlutverk að fara á bálið, í safn eða í sumum tilfellum jafnvel rætt um að varðveita ýmist á söfnum eða jafnvel við sumarbústaði. Þar er ekki þó um að ræða neina stóra báta, heldur minni báta, þó einn 74 tonna sé þar í hópnum. Hér birtast tvær myndir þar sem sjö af þessum bátum sjást. Sá áttundi er uppi á bryggju, þar sem viðgerð var hafin á honum, en ég held að hætt sé við hana.

 Hérna bak við litlu bátanna sjáum við þrjá gamla vertíðarbáta sem ekki eru lengur í útgerð © Emil Páll

Nú hefur verið tekin ákvörðun að á næstu dögum verða eikarbátarnir fjórir sem eru uppi á bryggjunni myljaðir niður, þar sem þeir eru með öllu ónýtir. Þessir bátar eru 1237 Una SU 89, 1390 Jón Guðmundsson ÍS 75, 1232 Gunnhildur ST 29 og 1294 Hafrós KE 2. Uppi höfðu verið áform um að fara með þá þrjá fyrst nefndu annað, en það er úr sögunni. Uppi á bryggju annarstaðar er  1764 Anton  GK 68 sem verður trúlega fargað einnig og við bryggjuna eru 573 Hólmsteinn GK 20 sem verður varðveittur, 450 Eldey GK 74 sem fer í pottinn og  923 Röstin GK 120 sem ekki er vitað hvað gert verði við.

 

15.05.2008 21:45

201 Hólmanes SU 120.


Hér kemur mynd af gömlum jálk sem var smíðaður 1959 í Stralsund í Þýzkalandi.

15.05.2008 18:39

Nýtt skip Fiskkaupa ehf. í Rvík.


Nýtt skip Fiskkaupa ehf. er væntanlegt til landsins um mánaðarmótin,skip þettað hét upphaflega Stalbjörn M-49-F frá Molde,selt 1997 til Álasund en heitir þar Stalbjörn M-99-A,sama ár er skipið skráð í Cape Town í S-Afríku og heitir þar Eldfisk,árið 2002 er skipið skráð í Brisbane í Ástralíu en heitir áfram Eldfisk,svo árið 2004 er skipið skráð í St,Johns á Nýfundnalandi (Canada) og fær nafnið Appak.
Skipið er smíðað 1988 hjá Solstrand í Noregi og mælist 764 t.skipið var lengt 1997 um 10 m.

15.05.2008 08:06

Keflvíkingur KE 50


                                                    1767. Keflvíkingur KE 50 © Emil Páll
Þessi litli stálbátur er smíðaður hjá Vélsmiðju Ol. Olsen í Njarðvík 1989, síðan lengdur og breikkaður í Kópavogi 1993 og hefur borið nöfnin: Stekkjarhamar GK 207, Stekkjarhamar GK 37, Vikar KE 121, Bára SH 27, Grímsey ST 3, Grímsey ST 2 og nú er það Keflvíkingur KE 50.

14.05.2008 23:58

Sunna KE 60


                                            2061.  Sunna KE 60  ©  Emil Páll
Skip þetta var smíðað á Spáni og kom hingað fyrst til þáverandi heimahafnar á Reyðarfirði 1. apríl 1991. Um er að ræða tæplega 1000 tonna frystitogara.Það var upphaflega byggt sem fjölveiðiskip, en síðan breytt í rækju-frystitogara. Var það lengi gert út til rækjuveiða á Flæmingjagrunni, en eftir að rækjuveiðarnar urðu óarðbærilegar lág það töluverðan tíma við bryggju. Skip markaði á sínum tíma viss tímamót, því það var fyrst skipa til að hefja veiðar með tveimur trollum samtímis. Þennan tíma sem liðin er hefur það þó aðeins borið þrjú nöfn, en fyrst var það Vaka SU 9 frá Reyðarfirði, þá Sunna SI 67 frá Siglufirði og nú er það Sunna KE 60 frá Reykjanesbæ.

14.05.2008 21:52

252 Jón Kjartansson SU 111


Þessi er smíðaður 1963 hjá Kaarbös Mek. Verksted A/S í Harstad sm.no.41.Hét upphaflega Jón Kjartansson SU 111, bar svo nöfnin Guðrún Þorkellsdóttir SU 211 Sæberg SU 9 og Eskfirðingur SU 9,sökk 14.07.1988.

14.05.2008 00:42

Bláfell HU 179


                                                 2207. Bláfell HU 179  ©  Emil Páll
Þetta er ekki vörubíll eins og halda mætti, heldur bátur sem nú hefur verið skráður Bláfell HU 179 með heimahöfn á Hvammstanga. En eins og sést á merkingunni hefur hann lengi borið nafnið Völusteinn ÍS 89. Þarna er búið að saga af honum raunar allt ofan þilfars aftar við hús. Er það gert þar sem nánast á að byggja nýjan bát úr þeim gamla og hafa hann einnig lengri.

14.05.2008 00:11

228 Jón Kjartansson SU 111

Hér kemur mynd af einum gömlum sem var smíðaður hjá J.V. Brooke & Co. í Lowestoft í Englandi 1949 og var sm. no.175.

13.05.2008 19:59

1062 Óskar Magnússon AK 177


Í kvöld höfum við það skip smíðað á Íslandi. Menn hljóta að geta tjáð sig um þennan.

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 761
Gestir í dag: 78
Flettingar í gær: 1506
Gestir í gær: 141
Samtals flettingar: 606471
Samtals gestir: 25655
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 13:41:14
www.mbl.is