Færslur: 2008 Júlí

18.07.2008 01:11

Eyrarfoss

Hét áður Mercadian Import, smíðaður í Danmörku 1978, keyptur hingað til lands 1981 og lengdur 1984. En vitið þið um sögu hans eftir það? Jú, Óskar Franz var fljótur að hafa upp á því og er hún eftirfarandi: 1978 Mercandian Importer II. 1980 Eyrarfoss 1989 South Coast 1990 Cala Fustan, 2000 Lucia B og 2007 Jigawa II og er frá Panama.

                1593. Eyrarfoss, mynd úr bókinni Ísland 1990, ljósm. ókunnur?

18.07.2008 01:03

Sandra GK 25

Bátur þessi er smíðaður á Skagaströnd 1979 og var opinn bátur til 1994, þá skráður þilfarsbátur en síðan aftur skráður sem opinn bátur frá 1994. Hann var lengdur 1997. Hann hefur borið langann nafnalista s.s. Jökull RE 139, Var AK 39, Siggi Villi NK 17, Búi SU 174, Búi GK 230, Búi ÍS 56, Gísli á Bakka BA 25, Jökulberg SH 398, Dagur RE 10, Draupnir GK 122, Víðir KE 101, Víðir KE 301 og Sandra GK 25.

                                   1560. Sandra GK 25 © mynd Emil Páll 2008

 

18.07.2008 00:57

Eldeyjar Hjalti GK 42

Um þennan bát hefur verið ritað mikið hér á síðunni, en nú stendur hann uppi í Njarðvíkurslipp sem Gerður ÞH 110 og hefur gert í mörg ár, en hann var seldur úr landi, en fór aldrei og þó búið sé að taka hann af íslenskri skipaskrá, er enn verið að reyna að selja hann þar sem hann er í slippnum.

           1125. Eldeyjar Hjalti GK 42, mynd úr bókinni Ísland 1990, ljósm. ókunnur.

17.07.2008 21:10

Björgunarskip

 
SK 30 - Record Breaking Self Righting Test at Fassmer
Hér er hægt að skoða video af björgunarskipi sem smíðuð eru hjá sömu skipasmíðastöð og snekkja sem sagt er frá hér að neðan.
Video

The prototype of the new rescue cruiser for the German Search and Rescue Organisation (DGzRS) has successfully completed the self righting test.

As far as we know, it is the first time that a fully equipped boat with the length of 20 meter was tested bottom up. That means that we have established a world record!

For the DGzRS it was not only important to proof the calculated but also the practical righting ability of the fast rescue cruiser. As a matter of fact, it was able to demonstrate the theoretical pre-calculated righting lever arm with the test.

17.07.2008 19:03

Hanse Explorer í Keflavík

Þessi litla en fallega snekkja, Hanse  Explorer kom til Keflavíkur í gærkvöldi og fór í dag í skemmtisiglingu út á Faxaflóa, en kemur aftur að bryggju í Keflavík fyrir kvöldið. Fer snekkjan síðan af landi brott í kvöld. Um er að ræða 48 metra snekkju, sem verið hefur á siglingu um Atlantshaf með eiganda þess, en skipið mun vera hægt að fá leigt til skemmtisiglinga, samkvæmt upplýsingum er komu á vf.is

                                        Hanse Explorer © mynd Emil Páll 2008.

17.07.2008 18:50

Nýr Víkingur KE sjósettur

Í dag var sjósettur í Grófinni í Keflavík nýr bátur að gerðinni Gáski 1000d sem á þegar nokkuð óvenjulegan feril. Ástæðan er sú að Mótun ehf. í Njarðvík afhenti skokk bátsins haustið 2001 og síðan hefur smíði staðið yfir hægt og rólega og farið víða milli húsa í Keflavík og Njarðvík á þeim tíma, en nú hefur semsé tekist að ljúka smíði hans og gerðist það í húsnæði á vegum Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur.

                2426. Víkingur KE 10 kominn á flot í Grófinni © mynd Emil Páll 2008.

17.07.2008 08:34

ex Jökulfell nú Green Atlantic

Hér fyrir neðan var spurt hvað hefði orðið um Jökulfellið og svarið er komið og mynd með. Skipið er í dag skráð á Bahamas og ber nafnið Green Atlantic.

                                 Green Atlantic ex Jökulfell © mynd Kevin Blair

17.07.2008 00:21

Gissur hvíti SF 55

Þessi bátur á þó nokkra sögu hér á landi og hefur hún verið rakin áður hér á síðunni. Þó svo að báturinn sé nú gerður út frá Kanada, er útgerð hans í samvinnu við útgerðarfyrirtæki sem gerði hann út hér á landi, meðan hann var íslenskur. Hér er átt við útgerðarfyrirtækið Vísir hf. í Grindavík.

                    1626. Gissur hvíti SF 55 © mynd Þorgeir Baldursson 2000.

17.07.2008 00:13

Jökulfell

Skipadeild Sambands íslenskra samvinnufélaga eða SÍS fékk í febrúar 1985 nýtt vöruflutningaskip sem gefið var nafnið Jökulfell. Það var smíðað Bretalandi, en þið þarna úti vitið þið eitthvað meira um skipið svo og hvað varð síðan um það?

                  1683. Jökulfell, mynd úr bókinni Ísland 1990, ljósmyndari ókunnur.

17.07.2008 00:07

Einar Sigurjónsson

Björgunarsveit Hafnarfjarðar fékk árið 2003 enskt björgunarskip sem gefið var nafnið Einar Sigurjónsson. Síðan þá hefur skipið verið notað til björgunarstarfa frá Hafnarfirði.

                            2593. Einar Sigurjónsson  © mynd Emil Páll 2008

16.07.2008 23:02

Breki nú frá Murmansk

 Frá því að togarinn Breki KE 61 var seldur til Noregs á síðasta ári, hefur hann að mestu legið við bryggju í Melbú í Noregi. Í dag mun skipið vera skráð í Murmansk,og heitir Breki þar, fyrirtækið Breki Ltd. í Murmansk er skráður eigandi en gert út af Breka A/S í Strömmen í Noregi, Virðist því vera samstarf þarna á milli norsarans sem gerir út skipið nema það hafi með heimildir að gera þetta fyrirtæki í Rússlandi.
 
                Breki við bryggju í Melbú í Noregi © mynd Thomas  K. Petersen

16.07.2008 20:43

Mikið af erlendum skútum

Það sem af er sumri hefur verið mikið um að erlendar skútur hafi viðkomu í höfnum landsins. Hvað Suðurnesin varðar, hefur vart frá því í vor svo liðið dagur að ekki hafi verið erlend skúta í einhverri Suðurnesjahöfn. Hér birtum við myndir af tveim þeirra er höfðu smá viðdvöl í höfnum Reykjanesbæjar og eru myndirnar teknar af handahófi, án þess að nokkur lýsing sé með skútunum.

          Þessi hafði viðdvöl í Keflavíkurhöfn á dögunum © mynd Emil Páll 2008

Hér sjáum við aðra, er hafði viðkomu í Njarðvíkurhöfn © mynd Emil Páll 2008.

16.07.2008 19:21

Skútustrand við Ísafjörð

Lady Anne dregin á flot.
Lady Anne dregin á flot.

bb.is | 16.07.2008 | 14:04
Skúta strandaði í Sundunum

Breska skútan Lady Anne strandaði á grunninu austan við Skipeyri í morgun. Guðmundur M. Kristjánsson hafnarstjóri segir að flutningaskipið Jaxlinn hafi strandað á sama stað fyrr nokkrum árum. Lóðsbáturinn Sturla Halldórsson fór á strandstað og taug var komið yfir í skútuna og hún dregin á flot.

smari@bb.is

16.07.2008 08:12

Mettúr hjá Guðmundi VE 29



                            © Mynd Ómar Garðarsson
 GUÐMUNDUR VE-29 er á leið til Þórshafnar af miðunum austur af landinu og er aflaverðmæti hans um 100 milljónir. Sturla Einarsson, skipstjóri á Guðmundi segir að þetta sé mettúr hjá skipinu og sá langverðmætasti hingað til.á leið til Þórshafnar af miðunum austur af landinu og er aflaverðmæti hans um 100 milljónir. Aflinn er síld og makríll og er mestur hluti frystur um borð, um 750 tonn en lítill hluti fer í bræðslu. Skipið var um 10 daga á veiðum í ágætu veðri en heimferðin gengur hægar vegna leiðindabrælu og væntanleg koma til Þórshafnar er seinnipartinn á morgun, að sögn skipstjórans. Pláss fyrir frystar afurðir er feikinóg á Þórshöfn með tilkomu nýrrar frystigeymslu sem Ísfélag Vestmannaeyja byggði.  HEIMILD MBL

16.07.2008 00:12

Guðni Ólafsson VE 606


                             © Mynd Þorgeir Baldursson
          © myndir Þorgeir Baldursson
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var skipi stórt og glæsilegt en það var ekki lengi i rekstri hérna heima og var selt úr landi eftir skamman tima og heitir i dag  San Aspiring ex. Guðna Ólafssyni VE 606.en þessi útgerð gerir út fjögur skip hin skipin heita.  San Waitaki  San Enterprise og San Discovery en þessi síðarnefndu þrjú skip eru öll systurskip Þerneyjar RE.

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 736
Gestir í dag: 89
Flettingar í gær: 1683
Gestir í gær: 115
Samtals flettingar: 608129
Samtals gestir: 25781
Tölur uppfærðar: 27.4.2024 06:05:39
www.mbl.is