31.10.2007 18:17Norðurljós is 3Línuveiðin svipur hjá sjón í Ísafjarðardjúpi eftir tilraunaveiðar ÖrfiriseyjarEins og kunnugt er fékk eitt stærsta fiskiskip landsins, Örfirisey RE, leyfi fyrir stuttu til að skarka inn allt Ísafjarðardjúp í nafni tilrauna með nýjan botntrollsbúnað. Skipið var í rúma þrjá sólarhringa við þessar rannsóknir, en einu rökin sem heyrst hafa fyrir því að láta þær fara fram í Djúpinu voru og eru þau að svo stutt hafi verið á netaverkstæðið í landi. Til fróðleiks er ekki úr vegi að geta þess að 1000 tonna togarar eru allir með netaverkstæði um borð, þannig að þessi rök eiga betur við sem gamanmál á þorrablóti en annarsstaðar. Smábátaeigendur við Ísafjarðardjúp fengu ekkert af þessu að vita fyrr en þeir sáu Örfiriseyna komna lengst inní Djúp og langt frá netaverkstæðinu. Þetta eru þó þeirra heimamið, en það veldur greinilega engum svefntruflunum á Hafrannsóknastofnun. Áður en þessar tilraunaveiðar hófust voru smábátaeigendur að leggja línu í Djúpinu og það er athyglisvert að sjá hvernig veiðarnar gengu fyrir og eftir tilraunaveiðarnar. Hér eru aflatölur af Norðurljósi, ÍS 3, en báturinn var að línuveiðum í Ísafjarðardjúpi á þessu tímabili. Dagsetningarnar eiga við löndunardag: 4. okt. 28 balar, afli 2656 kg - 94,86 kg á bala Lögnin sem dregin var 13. október að morgni var lögð kvöldið áður, en tilraunaveiðar Örfiriseyjar hófust sama kvöld, á öðrum stað í Djúpinu og stóðu til 15. október þegar þeim var fram haldið á Hornbanka, en eins og kunnugt er, er mjög gott netaverkstæði þar á miðunum. Norðurljósið lagði aftur tveimur dögum síðar: 17. okt. 30 balar, afli 1539 kg - 51,30 kg á bala Varla þarf að taka fram að smábátaeigendum er lítt skemmt, aflasamdrátturinn er yfir 40%. Það var Hafrannsóknastofnun sem sóttist eftir því að Örfiriseyjan fengi að skarka í Ísafjarðardjúpi við þessar bráðnauðsynlegu rannsóknir. Það er því kaldhæðnislegt að sjá eftirfarandi standa á heimasíðu stofnunarinnar að nýlokinni ?haustkönnun Hafrannsóknastofnunarinnar á rækjumiðunum á Vestfjörðum":
Norðurljós ÍS 3 Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 526 Gestir í dag: 38 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 991947 Samtals gestir: 48545 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:27:28 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is