Færslur: 2008 Janúar

31.01.2008 22:59

Þinganes SF 25


Þinganes SF 25 tók þessa mynd þegar ég fór 1 túr á Júliusi Havsteen ÞH 1 (Þeim sem að var smiðaður á Akranesi )en við fengum i skrúfuna og fengum kafara frá hornafirði til að skera úr henni hver getur frætt siðuritara um þennan bát og hvað varð af honum a

30.01.2008 21:50

KROSSANES RIFIÐ


Krossanesverksmiðjan i dag og er nú unnið að fullum krafti við niðurrif verksmiðjunnar
Tækjabúnaður tveggja loðnubræðslna á Norðurlandi hefur verið seldur til Marokkó í Afríku. Um er að ræða tækjabúnað verksmiðjanna á Raufarhöfn og í Krossanesi við Akureyri. Ríkisútvarpið greindi frá þessu.

Loðnubræðslur voru starfræktar víðs vegar um landið á árum áður með tilheyrandi peningalykt, en með breyttum vinnsluaðferðum hefur þeim fækkað verulega. Á Raufarhöfn var verksmiðjan burðarásinn í atvinnulífinu, en nú eru búið að fjarlægja allar vélar og sömu sögu er að segja um Krossanesverksmiðjuna á Akureyri.

 Á Raufarhöfn standa eftir ónýtt hús og mannvirki, en á Akureyri rís aflþynnuverksmiðja á athafnasvæði Krossanesverksmiðjunnar. Til Akureyrar kom í morgun flutningaskip, sem flytur tækjabúnað verksmiðjanna tveggja um langan veg, búnaðurinn hefur verið seldur til Marokkó. Heimild RUV.IS

30.01.2008 17:11

Helga Jóh VE 41


Helga Jóh VE 41 við bryggju i Vestmannaeyjum haustið 1983-84 hver er saga hennar

29.01.2008 21:23

Guðrún GK 37


Guðrún GK 37 á sildveiðum haustið 1984 hvað er vitaðum sögu þess var það ekki i einhverskonar hvalamerkingum fyrir hafró allvega var skipið gert út frá Vestmannaeyjum undir nafninu Guðrún VE 122  

28.01.2008 23:44

Stafnes KE 130

Oddur Sæmundsson og áhöfnin á Stafnesinu KE 130 sjást hér draga netin inná Faxaflóa skipið var svo selt i staðinn fyrir nýtt skip sem að var smiðað i Noregi

28.01.2008 22:59

Happasæll KE 94


Happasæll KE 94 við bryggju i Keflavik  um sumarið 1984 og var oft gaman að fylgjast með Rúnari og skipshöfinni þegar komið var i land oft i leiðindaveðri og með fullt skip af ufsa

28.01.2008 22:18

Albert Ólafsson KE 39 ssnr 256

Albert Ólafsson KE 39 á siglingu við hafnargarðinn i keflavik haustið 1985 hvað er vitað um bátinn

26.01.2008 01:23

FULLFERMI AF LOÐNU


Hólmaborg SU 11 á siglingu útaf skarðfjöru haustið 1997  á leðinni til Eskifjarðar aflinn um 2650 tonn af loðnu  núna er skipið á kolmunnaveðum við Færeyjar og hefur risjótt tiðarfar sett mikið strik i veiðarnar undanfarinn sólahring og mundu nokkur þeirra vera komin til hafnar i Suðurey

25.01.2008 00:12

rækjuveiðar á flæmingjagrunni


Þeir voru vigalegir Óskar Valgarðsson og Stefán Geir Jónsson við trolltöku um borð i Rauðanúp ÞH 160 þegar skipið var á rækjuveiðum hér á árum áður og átti skipið til að taka góðar fyllur innásig að aftan en skipið hefur nú verið selt Nesfiski H/F i Garði og fór til Póllands i styttingu og lagfæringum á mannaibúðum skipið mun koma i staðinn fyrir Sóleyju Sigurjóns GK 200

24.01.2008 22:56

Fiskistofa veiðieftirlit


Veiðieftirlitmaður Einar Guðmundsson  frá fiskistofu að störfum við ýsumæliningar um borð i Kaldbak  EA 1 i fyrstu veiðiferð 2008

24.01.2008 01:31

LEIST FRÁ POKANUM


Björn Ragnarsson skipverji á isfisktogaranum Kaldbak EA1 sést hérna leysa frá pokanum þegar skipið var að veiðum fyrir austan land nú skömmu eftir áramótin aflinn var rúm 2 tonn af ýsu og nokkrir þorskar og vegna niðurskurðar i þorskaflaheimildum þá hefur ýsunni verið landað i gáma og flutt erlendis en þorskurinn fluttur til Akureyrar i vinnslu i frystihúsi Brims H/F

01.01.2008 18:16

Ólafur Jónsson KE og Knarrarnes KE


Togarinn Ólafur Jónsson GK 404 á útleið frá Sandgerði og Knarrarnes KE 399 á landleð inn til Sandgerðis ef mig brestur ekki minni þá fóst Knarranesið á rækjuveiðum og 2 menn feðgar fórust

01.01.2008 15:08

Jón Trausti IS


Jón Trausti is hver er saga hans eigandi er BORG H/f i Hrisey hann er búinn að vera i slippnum á Akureyri i nokkur ár
  • 1

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1233
Gestir í dag: 74
Flettingar í gær: 824
Gestir í gær: 70
Samtals flettingar: 604052
Samtals gestir: 25436
Tölur uppfærðar: 24.4.2024 18:58:24
www.mbl.is