Færslur: 2011 September28.09.2011 13:10Björgvin EA 311 heldur til veiða 1937 Björgvin EA 311 heldur til veiða © mynd þorgeir 2011 1937 Björgvin EA 311 © mynd þorgeir 2011 Björgvin EA 311 sem að er i eigu Samherja H/f hélt til veiða frá Dalvik um kl 11 i morgun eftir um mánaðar slipp þar sem að skipið var skverað hátt og látt og mun skipið fiska isfisk fyrir vinnslurnar bæði á Dalvik og Akureyri annað skip i samstæðunni kom inn i morgun kalbakur EA1 var með 140 tonn uppistaðan þorskur sem að var landað hjá ÚA á Akureyri Skrifað af Þorgeir 27.09.2011 21:561031 færður á milli Bryggja 1031 Alpha HF 32 © Mynd þorgeir Baldursson 2011 Eitt skipa Samherja Hf Alpha Hf 32 sem að var i eigu Sjólaskipa var i dag fært til i höfninni og sett utan á togarann Árbak Ea 5 og voru dráttarbátar Akureyrarhafnar fengnir i það verkefni og var mikið fjör á bryggjunni þvi að á meðan þessu stóð var verið að græja Björgvin EA311 á veiðar meira um það á morgn fleiri myndir af færslunni á Ölfu eru i myndaalbúmi hér efst á siðunni Skrifað af Þorgeir 26.09.2011 22:091020 Snæfugl Su 20 1020 á siglingu á Eyjafirði mynd þorgeir Baldursson Snæfugl Su 20 seiðaflutnigsprammi Ex Guðmundur Ólafur Óf 91 á siglingu á firðinum fagra fyrir nokkrum Árum hvar er þetta skip niðurkomið i dag og hvað heitir það Skrifað af Þorgeir 26.09.2011 12:53Athena brunarústir einar Athena við bryggju i Færeyjum mynd af Shippspotting Frettin eins og hún var þann 9 mai 2011 heimild www.mbl.is Togarinn Athena brennur enn í Høgabóli í Skálafirði í Færeyjum. Vindátt er að breytast og hefur lögreglan beðið íbúa á Glyvrum og Lambareiði að fara að heiman vegna hættu á reykeitrun, að sögn Dimmalætting. Færeyskar sjónvarpsmyndir sýna togarann skíðlogandi. Slökkviliðsstjórinn og yfirmaður lögreglu á staðnum mæla með því að togarinn verði dreginn í burtu. Ekki hefur verið talið óhætt að senda slökkviliðsmenn um borð vegna sprengihættu, að því er kemur fram í frétt Sosialurin. Mikil sprenging varð um borð í togaranum í morgu og óttast er að fleiri sprengingar geti orðið. Skrifað af Þorgeir 26.09.2011 07:13Mikil sala á Sjávarútvegssýninunni Anton og Sigtryggur á sýningunni um helgina © Mynd þorgeir "Þetta er eins og með öll verkefni, það hjálpar allt til," segir Anton Benjamínsson, framkvæmdastjóri Slippsins Akureyri ehf. Slippurinn gekk á laugardag frá samningum við útgerðarfyrirtækið Onward Fishing, dótturfyrirtæki Samherja í Skotlandi, um smíði vinnslulínu í togarann Norma Mary sem er um þessar mundir í lengingu og vélarskiptum í Póllandi. Segir Anton samningana skila fyrirtækinu um 50 milljónum króna, en um 145 starfsmenn vinna hjá Slippnum. Hafist verður handa við smíði vinnslulínunnar í dag og er áformað að ljúka verkinu í desembermánuði. Anton segir einnig færavindur hafa selst vel á sýningunni, eða fyrir um 25 milljónir króna, og þá sér í lagi hina nýju makrílvindu. "Þannig að við erum mjög ánægðir með sýninguna," segir Anton. Skrifað af Þorgeir 25.09.2011 17:47Pus á landleiðinni úr Hvalaskoðun Hvalaskoðunnarbáturinn Rósin © Mynd Þorgeir Baldursson 2011 Það var talsverður vindur þegar hvalaskoðunnar bátarnir sem að gera út frá Reykjavik voru að snúast i faxaflóa um hádegisbilið i gær Rósin var ein af þeim enda var keyrt grimmt á landleiðinni svo að gaf yfir fleiri myndir i myndaalbúmi hér efst á siðunni Skrifað af Þorgeir 25.09.2011 14:20Kátt á Hjalla á sjávarútvegssýninunni 2011 Básinn hjá Safir skipasölu © mynd þorgeir Baldursson 2011 Það var góðmennt á básnum hjá Safir skipasölu www.safir.is þegar ég átti leið um sjávarútvegssýninguna i kópavogi i gær fv Bjarni Eliasson Siguður Árnasson eigandi,Ingvar Hólmgeirsson,Guðmundur Halldórsson og Elias Bjarnasson en alls er talið að um 10000 gestir hafi komið á sýninguna sem að var góð að mati gesta sem að siðuritari spjallað við Fleiri myndir af sýningunni eru i myndaalbúmi hér efst á siðunni Skrifað af Þorgeir 25.09.2011 08:14Réttarball i Skagafirði i Gærkveldi Laufskálaréttatball i Gærkveldi © mynd Adam Smári Landslið söngvara á Réttarballi i Skagafirði i gærkveldi © mynd Adam Smári Magni fór á kostum © mynd Adam smári um 2000 manns voru á ballinu © mynd Adam Smári Allar myndir á ballinu tók Adam Smári Hermannsson Laufskálaréttarballið 2011 var haldið í Reiðhölinni Svaðastaðir við Sauðárkrók í nótt þar sem Hljómsveitin Von fór á kostum ásamt landsliði söngvara en með Von voru Matti Matt, Magni Ásgeirs, Sigga Beinteins og Jogvan Hansen ásamt því að Vignir Snær Vigfússon gítarleikari tróð upp með þeim, talið er að um rúmlega 2000 manns hafi verið á ballinu og fór allt friðsamlega framm og voru menn yfirhöfuð ánægðir með balli. Skrifað af Þorgeir 20.09.2011 20:39Hver er BáturinnÓþekkur Bátur © mynd þorgeir Baldursson Nu er spurt hvaða bátur er þetta og hvar er myndin tekin Skrifað af Þorgeir 15.09.2011 23:31Rækjuveiðar á Flæmska hattinumCanadiskir eftirlitsmenn á flæmska Hattinum © mynd Þorgeir Baldursson Myndin var tekin um borð i Eyborgu EA 59 þegar skipið stundaði veiðar þar i kringum aldarmótin siðustu og þarna má sjá islenskan eftirlitsmann fiskistofu fylgjast með vinnu félaga sinna Skrifað af Þorgeir 06.09.2011 22:092403-Hvanney SF 51 nýskveruð 2403- Hvanney SF 51 © Mynd þorgeir Baldursson 2011 Hvanney SF á siglingu á Eyjafirði i dag © mynd þorgeir Baldursson 2011 Haldið heimleiðis seinnipartinn i dag © mynd þorgeir Bakdursson 2011 Fjölveiðibáturinn Hvanney SF 51 sem að er i eigu Skinneyjar / þinganes á Hornafirði hélt frá Akureyri seinnipartinni dag eftir um tveggja vikna slipp á Akureyri þar sem að skipið var málað i einkennislitum fyrirtækisins ásamt ýmssum smærri verkum sem að tilheyra slippvinnu og var skipinu siglt til heimahafnar þar sem að veiðarfærin verða sett um borð áður en að haldið verður til veiða skipstjóri er Þorsteinn Guðmundsson Skrifað af Þorgeir 05.09.2011 21:521351-Snæfell EA 310 Með Mettúr Snæfell EA 310 © Mynd Þórhallur Jónsson Snæfell Ea við komuna til Akueyrar fyrir um viku siðan með um 17000 kassa af afurðum aflaverðmæti um 270 milljónir en mesta burðargeta þess er 22000 kasar þegar skipið var á úthafskarfa veiðum á Reykjaneshrygg skömmu áður en að Samherji keypti skipið og hefur reynst eigendum sinum vel öll þau á sem að það hefur verið á veiðum og eru skrokkar stellanna eins og þær voru kallaðar með fallegustu linurnar i flotanum Skrifað af Þorgeir 05.09.2011 18:13Aflaskipið Björgvin EA 311 i slipp 1937- Björgvin EA 311 © mynd Þorgeir Baldursson 2011 Björgvin EA i Flothvinna © mynd þorgeir Baldursson 2011 Seinnipartinn i dag var Björgvin ea tekin i slipp i flotkvinna þar sem að skipið verður yfirfarið eins og vant er þegar skip fara i svona skveringu starfmenn slippsins fyldust með þegar skipið var tekið upp en eins og sja eru gestir sem að koma til að fylgjast með beðnir að koma við a lagernum og biðja um hjalma ser til öryggis Skrifað af Þorgeir 05.09.2011 17:04155-Lundey NS 14 á landleið með góðan afla Lundey NS 14 © Mynd Þorgeir Baldursson 2011 Lundey NS er á leið til hafnar með um 380 tonn af afla. Áætlað er að um 220 tonn af síld og 160 tonn af makríl séu í afla skipsins. "Síldin og makríllinn eru á mjög mikilli ferð og til marks um það þá höfum við verið að veiða úr mjög góðum bletti sem við fundum við Glettinganesstotuna fyrir þremur dögum. Þarna voru gríðarlega góðar lóðningar og á þessum dögum eltum við torfuna um 100 sjómílna leið, fyrst í austur og síðan í suðaustur. Í gær toguðum við samfleytt 30 mílur í suðaustur og það var óhemjumikið að sjá. Í gærkvöldi var eins og allt gufaði upp. Fyrst héldum við að fiskurinn hefði skellt sér niður á 100 faðma dýpi eða þar um bil, sem ekki er óalgengt, en það var ekki reyndin," segir Stefán Geir Jónsson, sem er skipstjóri á Lundey NS í yfirstandandi veiðiferð, í samtali við vef HB Granda í dag. Stefán Geir segir að lítill afli hafi fengist í nótt sem leið og þegar ákveðið var að halda til hafnar hafi Lundey verið um 50 mílur frá miðlínunni milli Íslands og Færeyja og í dag séu flest skipin að veiðum um 30 til 40 mílur frá miðlínunni. Veiðisvæðið er því nú í 120 mílna fjarlægð beint austur frá Norðfirði. Svo virðist hins vegar sem veiðin hafi svo til þurrkast upp í Hvalbakshallinu og á Þórsbankanum, þar sem frystitogarar og uppsjávarveiðiskip hafa verið að makrílveiðum undanfarnar vikur. Skrifað af Þorgeir
|
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1859 Gestir í dag: 44 Flettingar í gær: 3977 Gestir í gær: 101 Samtals flettingar: 904715 Samtals gestir: 45722 Tölur uppfærðar: 11.10.2024 07:25:18 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is