Flokkur: Linubátar18.03.2010 22:35Tjaldur SH 270 ný vinnslulinaTjaldur SH 270 ©Mynd þorgeir Baldursson Aðgerðar aðstaðan um borð i Tjaldi © mynd Fiskifréttir Nýtt vinnslukerfi um borð í Tjaldi SH
Snigiltankar tryggja rétta og jafna meðhöndlun
Nýtt vinnslukerfi var sett upp í beitningarvélabátnum Tjaldi SH milli jóla og nýárs. Kerfið kemur frá 3X Technology. Búnaðurinn er hannaður fyrir vinnslu á línuveiddum fiski og tryggir að allur fiskur fái rétta og jafna meðhöndlun í gegnum vinnslukerfið. Snigiltankar sjá um að það hráefni sem fer fyrst inn í þá er það sem kemur fyrst út úr þeim. Hámarksafköst kerfisins eru 1.500 kg á klst. Blóðgunarkar og kælikar hafa bæði stjórnskáp þar sem hægt er að festa inni tiltekna blóðgunar- og kælitíma (snúningshraði snigla). Kæling alla leið Mögulegt er að safna allt að 3.500 kg af fiski í kælikarið ef þannig stendur á. Með þessu er tryggt að fiskurinn kælist um leið og búið er að slægja hann og hefur það afgerandi áhrif á endanleg gæði. Kælikarið er tengt við krapaískerfi sem er um borð. Kælitanknum er stýrt með hitamælingum sem ráða innflæði kælimiðils. Í kerfinu eru færibönd og með þeim stjórnskápur. Einnig er þrískipt meðaflakar og aðstaða til slægingar á þremur stórum slægingarborðum. Snigilkör eru rafdrifin og eru ræst frá einum stað í skipinu. Blæfallegri fiskur ,,Vinnslulínan sem fyrir var í skipinu var barn síns tíma og fullnægði ekki kröfum okkar í dag. Það var því kominn tími á endurbætur," sagði Hjálmar Kristjánsson framkvæmdastjóri KG fiskverkunar ehf. sem gerir Tjald SH út, í samtali við Fiskifréttir. ,,Mér leist sérstaklega vel á hugmyndina að snigilkarinu. Sá fiskur sem fer fyrstur inn kemur fyrstur út. Með því er hægt stjórna hraða fisksins í gegnum kerfið og kælingu hans mjög nákvæmlega," sagði Hjálmar. Hann bætti því við að vinnuaðstaðan um borð hefði einnig batnað til mikilla muna. ,,Vinnslukerfið hefur verið í notkun í nokkrar vikur og reynslan af því er mjög góð. Við sjáum mun á því að fiskurinn er blæfallegri og við ráðum betur við að stýra hitastiginu í honum," sagði HjálmarHeimild Fiskifréttir Kjartan Skrifað af Þorgeir
|
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1859 Gestir í dag: 44 Flettingar í gær: 3977 Gestir í gær: 101 Samtals flettingar: 904715 Samtals gestir: 45722 Tölur uppfærðar: 11.10.2024 07:25:18 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is