Færslur: 2015 Apríl30.04.2015 20:40Nýr Hvalaskoðunnarbátur Eldingar á heimleið frá SviþjóðHvalaskoðunnarfyrirtækið Elding hefur fest kaup á nýju skipi i flota sinn sem að lagði af stað frá sviþjóð i dag og er væntanlegt innan viku til heimahafnar
Skrifað af Þorgeir 26.04.2015 14:25Ný flotbryggja á AkureyriI gær var vigð ný flotbryggja i smábátahöfninni á Akureyri sandgerðisbót það voru þeir Ivar Baldursson og Þórhallur Mattiasson sem að klipptu á borðan og var mikill fjöldi smábáta eiganda viðstaddir boðið var uppá heita kjötsúpu á islenskum sið og mæltist það vel enda kalt i veðri hérna fyrir norðan Pétur ólafsson Hafnarstjóri hélt tölu og taldi upp verktakana sem að komu að verkinu og siðan var gestum boðið að skoða bryggjuna sem að allmargir þáðu Bryggjan er 60 metra löng með plássi fyrir 32 báta. Bryggjan er keypt af Króla en einnig komu G.V. gröfur, Rafeyri og Þorgils Jóhannesson verktaki að heildarverkinu. Bryggjan kostar um 45 mkr.
Skrifað af Þorgeir 24.04.2015 17:597775 Amma Kibba úr Hvalaskoðunn á SkjálfandaÞað blæs ekki alltaf vel til hvalaskoðunnar á Skjálfanda eins og þessar myndir bera með sér þegar hvalaskoðunnar bátur Gentle Giants Amma Kibba kom til hafnar á Húsavik i vikunni undir öruggri stjórn Ingimars Eydal Óskarssonar skipstjóra sem að sagði túrinn hafa verið góðann þrátt fyrir smá kviku á heimleiðinni og farþegarninir himinlifandi með hnúfubakinn sem að þeir sáu
Skrifað af Þorgeir 24.04.2015 15:00Kallinn i Krókunum á Dalvik
Á Dalvík erum við að framleiða handfærakróka og makrílslóða og tengdar vörur. Mikil áhersla er lögð á vörugæði og góða þjónustu. Handfærakrókarnir eru Mustad krókar númer 12. Gúmmíið er latex gúmmi. Makrílslóðarnir eru með o-krókum og með mismunandi krókafjölda á slóða. Þeir eru rústfríir og hjálagðir. Einnig erum við með · Girni (alla helstu sverleika). · Handfærateygjur. · Sjóstangveiðikróka með latexgúmmí. · Sigurnaglar og hér að neðan eru upplysingar um hvernig hægt er að hafa samband við þau Guðmundur Jónsson og María Jónsdóttir Hjarðaslóð 4e, 620 Dalvík Símar: 893 1838 og 866 6210
Skrifað af Þorgeir 21.04.2015 21:12Aron ÞH 105 á landleiðÞað var ekki spennandi veðrið i morgun og frameftir deginum SV sperringur 14 -20 M/s svo að hvitnaði i báru skipverjarnir á Aron áttu nokkrar gráslepputrossur við Flatey sem að þeir fóru og sóttu en aflinn var fremur tregur og spáin er þannig að kanski gefst tækifæri á morgun til að sækja restina af netunum þvi að svo á að ganga i NV sem að ekki ser fyrir endan á
Skrifað af Þorgeir 16.04.2015 23:25Grásleppumyndir af skjálfandaflóa i dagBesti dagur Grásleppuvertiðarinnar veðurfarslega séð var i dag. En þá var þvilik bongóbiliða hérna koma nokkrar myndir úr afrakstri dagsins
Skrifað af Þorgeir 15.04.2015 21:43Grásleppukallarnir á Sigrúnu Hrönn þH 36Það var góð stemmig á Grásleppumiðunum við Tjörnes i dag eftir langvarandi kuldakast og leiðindi i veðurguðunum undanfarnar vikur en með hækkandi sól ætti þetta að fara að lagast Strákarnir á Sigrúnu Hrönn ÞH 36 voru að draga netin þegar við renndum framhjá þeim og var veiðin með þokkalegasta móti
Skrifað af Þorgeir 14.04.2015 22:25fyrir neðan bakkann á HúsavikÞað er oft gaman að fylgjast með mannlifinu fyrir neðan bakkann hérna koma nokkar myndir teknar i dag
Skrifað af Þorgeir 11.04.2015 14:34Sælgæti úr hafinuFyrirtækið Mánaðarins Það voru 4 ungir menn sem fóru af stað með þessa hugmynd að búa til harðfisk úr fiskmarningi fyrir ca. tveimur og hálfu ári síðan. Fyrstu prufur í þessa átt voru gerðar á Akranesi í aðsöðu sem þeir fengu hjá Bjarna Bjarnasyni kenndan við Súluna. Fyrirtækið heitir Arcticus Sea Products sem að heldur utan um framleiðsluferlið Það var síðan seinnipartinn síðastliðið sumar eða síðastliðið haust sem aðstaða var fengin á Hjalteyri til frekari uppbyggingar á þessari hugmynd. Það var þegar hafist handa við að undirbúa aðstöðuna þar fyrir þessa framleiðslu og nú er draumurinn orðinn að veruleika. Skömmu fyrir áramót fór tilraunaframleiðsla af stað og lofaði hún fljótt góðu. Það var síðan skömmu eftir áramót sem tekin var endanleg ákvörðun um hvaða framleiðsla færi í sölu hér á landi. Þessari vöru hefur nú verið dreift nokkuð víða hér á landi og fljótt flýgur fiskisagan eins og fyrirspurnir héðan og þaðan um framleiðslu okkar bera með sér. Hingað á Hjalteyri hafa komið aðilar frá Nígeríu og Kína, svo eitthvað sé nefnt og jafnvel þegar komin pöntun frá nággrönnum okkar Færeyingum. Sænsk verslanakeðja hefur einnig sýnt áhuga á að fá þessa vöru til prufu. Við förum rólega af stað og reynum að hafa báða fætur á jörðinni þrátt fyrir þessar góðu móttökur markaðarins, en í síðustu viku framleiddum við harðfisk úr rúmu tonni af marningi. og i næstu viku er áætlunin að framleða úr um 1680 kg sagði Friðrik Friðriksson en ásamt honum starfar Bróðir hans Rúnar Friðriksson sem að jafnframt er framkvæmdastjóri
Skrifað af Þorgeir 11.04.2015 14:02Húna kaffi i morgunÞað var létt yfir mannskapnum i Húnakaffinu i morgun látum myndirna tala sinu máli
Skrifað af Þorgeir 08.04.2015 22:562705 Sæþór EA 101Sæþór EA 101 sem að er Vikingur 1300 að koma til hafnar á Akureyri i dag en þér hafa verið á netaveiðum og voru að leggja skömmu fyrir Hádegi i dag
Skrifað af Þorgeir 01.04.2015 17:38Plankaskipti i Opal skútu Norðursiglingar i dagþað var ekki beint bliðuveður þegar ég kom i slippinn á Húsavik þar sem að tvær skútur Norðursiglingar voru uppi til viðhalds fyrir komandi sumar þvi að mikil aukning hefur verið i hvalaskoðun hjá fyrirtækinu önnur þeirra fór niður skömmu siðar en hin ekki allveg strax þar sem aðverið var að skipta um planka i siðunni ásamt þvi að rafvæðaskútuna en hér koma nokkar myndir
Skrifað af Þorgeir
|
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1859 Gestir í dag: 44 Flettingar í gær: 3977 Gestir í gær: 101 Samtals flettingar: 904715 Samtals gestir: 45722 Tölur uppfærðar: 11.10.2024 07:25:18 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is