Færslur: 2021 Maí

31.05.2021 23:16

Frá Öngli til maga klárast á morgun

 

                                  108 Húni 11 Ea 740 Mynd þorgeir Baldursson 28 mai 2021

                                       108 Húni 11 EA 740 Mynd þorgeir Baldursson 28 mai 2021

Nú er að ljúka verkefninu, “Frá öngli í maga” fyrir nemendur í öllum grunnskólum Akureyrar og Eyjafjarðar.

Verkefnið fellst í 3 klst veiði og fræðsluferð með bátnum Húna II. 

Samstarfsaðilar Hollvina Húna II er Auðlindadeild Háskólans á Akureyri sem hafa séð um fræðslu um lífríki sjáfar og krufið aflann sem nemendur veiða.

Um 400 nemendur hafa farið í ferðir þessar en þær frestuðust sl. haust vegan Covid. Alls var farið í 18 ferðir.  Þess má geta að enginn nemandi varð sjóveikur

Skipstjóri Húna er Aflaskipstjórinn Arngrimur Brynjólfsson  sem að lengi var skipst á Vilhelm Þorsteinssyni EA11 

            Arngrimur Brynjólfsson skipst mynd þorgeir Baldursson 

31.05.2021 06:45

Þórunn Sveinsdóttir VE 401 á Papagrunni

                                 2401 Þórunn Sveinsdóttir Ve 401 Mynd þorgeir Baldursson mai 2021

                                  2401 Þórunn Sveinsdóttir Ve 401 mynd þorgeir Baldursson  mai  2021

28.05.2021 10:12

Vitaleiðangur Varðskipsins þórs

          2761 Varðskipið Þór á Hörgárgrunni i gær en verið var að skipta um i duflinu mynd þorgeir Baldursson 

23.05.2021 00:25

 

 

18.05.2021 22:50

Sæþór Ea 101og Arnþór EA 102

    2705 SæÞór EA 101 og 2507 Arnþór EA 102 mynd þorgeir Baldursson  28.12 2006

18.05.2021 21:26

Hoffell Su 80

                                  2345 Hoffell Su 80 nýmalað á Eyjafirði mynd þorgeir Baldursson 

17.05.2021 20:29

Húmar að kvöldi í Eyjafirði

              skemmtiferðaskip leggur af stað frá Akureyri mynd þorgeir Baldursson 

17.05.2021 04:19

Hvalaskoðun Frá Akureyri

3

 Hvalaskoðunnarbátarnir Ambassador og Artic Cirkle á útleið frá Akureyri mynd þorgeir Baldursson

17.05.2021 02:18

Björg EA 7

                                       2894 Björg EA 7 mynd þorgeir Baldursson 

13.05.2021 20:09

þórunn Sveinsdóttir Ve 401

                2401 þórunn Sveinsdóttir Ve 401 á toginu í skeiðarardypi mynd þorgeir Baldursson 
 

13.05.2021 13:56

Gullver Ns12 mokfiskar

                 1661 Gullver Ns 12 á veiðislóðinni á Austfjarðamiðum í vikunni mynd þorgeir Baldursson 

Góður árangur Gullvers  Ns hefur vakið mikla athygli vegna þess að togarinn er af minni gerðinni 

og hann hefur fiskað mjög vel allt þetta ár og í morgun kom skipið með um 90 tonn uppistaðan þorskur og ufsi eftir aðeins 3 daga á veiðum sem að gera um 30 tonn á dag Gullver heldur til veiða eftir löndun í kvöld skipstjóri er Rúnar Gunnarsson 

11.05.2021 22:25

Bergur ve44

                                        2677 Bergur Ve 44 mynd Þorgeir Baldursson 

10.05.2021 10:59

ÝSAN ÞVÆLDIST ALLS STAÐAR FYRIR

 

                                            1902 Höfrungur 111 Ak 250 mynd þorgeir Baldursson 2020

,Það er óhætt að segja að okkur hafi gengið ágætlega. Alls vorum við með tæplega 800 tonna afla upp úr sjó eftir 27 daga á veiðum. Aflinn hefði þó örugglega verið meiri ef ýsan hefði ekki alls staðar verið að þvælast fyrir okkur. Það var reyndar bætt 8.000 tonnum við ýsukvótann á dögunum en mér skilst að sú aukning eigi að dragast af ýsukvóta næsta fiskveiðiárs.”

Þetta sagði Haraldur Árnason, skipstjóri á frystitogaranum Höfrungi III AK, er rætt var við hann um gang mála á heimasíðu Brims. Höfrungur III fór út 8. apríl sl. og kom til Reykjavíkur á fimmtudag. Haraldur segist hafa byrjað veiðar á Eldeyjarbankanum og þar var skipið lengst af túrnum.

,,Við vorum beðnir um að veiða sem mest af ufsa. Það gekk vel en hvar sem við dýfðum trolli kom ýsa með sem aukaafli. M.a.s. á þekktum gullkarfamiðum kom ýsan með og ég held ég fari rétt með það að ýsuaflinn hjá okkur hafi verið um 80 tonn en þó reyndum við að forðast ýsuna eftir megni. Það er víða mikið magn af gullkarfa en menn hafa orðið að draga úr veiðum vegna þess að þeir eiga lítinn ýsukvóta.”

Afla var millilandað eftir um 10 daga á veiðum og segir Haraldur að magnið hafi verið um 370 tonn upp úr sjó.

,,Við fórum svo aftur á suðvesturmið. Við vorum mest á Eldeyjarbankasvæðinu. Fórum ekkert á Selvogsbankann en þar var allt lokað þegar við hófum veiðar. Rétt skruppum út í Skerjadjúp en stöldruðum stutt við. Okkur var einnig uppálagt að veiða eitthvað af grálúðu og því fórum við norður á Vestfjarðamið. Grálúðuslóðin er út af Hampiðjutorginu og einnig fórum allt út á Geirastaði en það veiðisvæði er VSV af Halanum. Þetta svæði er svo langt frá landi að það er stutt í Dohrnbankann,” segir Haraldur en hann kveður að minna hafi orðið úr grálúðuveiðunum en vonir stóðu til vegna mikils hafíss á slóðinni.

,,Við náðum e.t.v. einum skaplegum degi en svo flæddi hafísinn yfir og kom í veg fyrir veiðar. Við fórum svo í Víkurálinn og fengum ágætan ufsaafla. Vinnslan var rekin á fullum afköstum í túrnum ef þessir dagar á grálúðuveiðum eru undanskildir,” segir Haraldur Árnason.

heimild Auðlindin.is

07.05.2021 01:13

Jón Hildiberg RE 60

      6856 Jón Hildiberg RE 60 mynd þorgeir Baldursson Apríl 2021

05.05.2021 12:04

kolmunnaalöndun á Fáskrúðsfirði

                             Trondur í Götu FD175 mynd þorgeir Baldursson 4 maí 2021

trondur í Götu er fyrsta erlenda skipið sem að landar kolmunna hjá loðnuvinnslunni á  þessari vertíð en skipið var með um 2300-2400tonn af fínum kolmunna eitthvað hefur dregið úr veiði 

og hafa skipin þurft að hafa meira fyrir veiðunum 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 805
Gestir í dag: 25
Flettingar í gær: 3321
Gestir í gær: 184
Samtals flettingar: 598323
Samtals gestir: 24946
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 04:52:03
www.mbl.is