Færslur: 2016 Nóvember11.11.2016 14:421281 Múlaberg Si 22
Skrifað af Þorgeir 11.11.2016 08:51155 Lundey NS 14
Skrifað af Þorgeir 11.11.2016 08:321661 Gullver Ns 12 Skipstjóraskipti
Afli Gullvers NS í októbermánuði var góður. Skipið kom með 524 tonn að landi í mánuðinum, þar af var 284 tonn þorskur og 115 tonn karfi. Drjúgur hluti aflans fór til vinnslu hjá frystihúsi Gullbergs á Seyðisfirði og þar hefur verið nægt hráefni.
Um þessar mundir lætur Rúnar Gunnarsson af störfum sem skipstjóri á Gullver en hann hefur fengið ársleyfi og mun taka við störfum hafnarvarðar á Seyðisfirði. Í stað Rúnars mun Þórhallur Jónsson gegna starfi skipstjóra ásamt Jónasi P. Jónssyni. Þórhallur hefur verið 1. stýrimaður á skipinu undanfarin ár.
Það eru ákveðin tímamót fólgin í því að Rúnar skuli láta af störfum eftir farsælan feril á skipinu. Þeir Rúnar og Jónas hafa verið á Gullver frá því að skipið kom nýtt til Seyðisfjarðar í júlímánuði 1983, fyrst sem stýrimenn og síðan sem skipstjórar. Nú er það bara spurningin hvort Rúnar snúi aftur á sjóinn að loknu ársleyfinu eða hvort hann festir rætur í hafnarvarðarstarfinu.
Að sögn Jónasar P. Jónssonar eru þeir Rúnar ekki þeir einu sem hafa verið í áhöfn Gullvers frá því að skipið hóf veiðar. Magnús Stefánsson bátsmaður hefur einnig fylgt Gullver frá fyrstu tíð.
Jónas P. Jónsson skipstjóri er ánægður með aflabrögðin í októbermánuði. „Það er búin að vera góð veiði á okkar hefðbundnu miðum. Við erum venjulega fjóra daga í viku á sjó en liggjum í landi í tvo til þrjá daga. Það er því ljóst að unnt væri að fiska enn meira á skipið. Hver veiðiferð hjá okkur er annarri lík. Við byrjum á því að veiða karfa í Berufjarðarál og Lónsdýpi en síðan er farið í þorsk og ufsa í Hvalbakshallinu eða norður á Fæti. Reyndar fórum við alla leið á Tangaflakið í síðasta túr. Í lok hvers túrs nú í haust hefur venjulega verið lögð áhersla á að ná í 10-15 tonn af ýsu. Almennt má segja að þetta fyrirkomulag hafi gengið vel,“ sagði Jónas. Skrifað af Þorgeir 11.11.2016 08:161525 Hólmaborg Su 11
Skrifað af Þorgeir 11.11.2016 08:081277 Ljósafell SU 70
Skrifað af Þorgeir 09.11.2016 17:482158 Tjaldur SH 270 landar á Akureyri i dagUm miðjan dag kom linubáturinn Tjaldur SH 270 i eigu KG fiskverkunnar á Rifi til hafnar á Akureyri landað var úr skipinu tæpum 70 tonnum uppistaðan þorskur sem að hefur verið unnin i fiskverkun KG á Rifi Það er flutninga fyrir tækið Ragnar og Ásgeir sem að sjá um Akstur á aflanum vestur og i dag var flotinn þeirra mættur og að þessu sinni var splukunýr bill i flotanum sem að kom út tolli gær svo að þetta var Jónfruarferðin skipið hefur mest verið að veiðum i Húnaflóa þar sem að hefur verið vænn og mjög góður fiskur að sögn skipstjórans Jónasar Jónassonar og hefur lögnin verið að skila frá 40 til 80 Körum og er uppistaðn i þvi þorskur en ásamt þvi litilræði af Hlýra og öðrum tegundum alls hefur þvi Tjaldurinn fiskað um 700 tonn i haust sem að telst ásættanlegt að sögn skipverja
Skrifað af Þorgeir 09.11.2016 09:341468 Sylvia i kompásstillingu á Eyjafirði1468 Sylvia Hvalaskoðunnarbátur GG á húsavik hefur verið i slipp á Akureyri sl 4 vikur þar sem að mart var gert að sögn Stefáns Guðmundsonar Eiganda GG báturinn fór i Kompásstillingu og siðan var haldið ti heimahafnar á Húsavik kanski kemur miði frá Hauki Sigtryggi hver veit
Skrifað af Þorgeir 06.11.2016 11:22Bræluskot af sjónum
Skrifað af Þorgeir 05.11.2016 21:58Bátasmiðjan Seigla GjaldþrotaBátasmiðjan Seigla ehf. á Akureyri hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta. Fyrirtækið var stofnað árið 1991 en er nú rekið á annarri kennitölu í eigu stofnanda Seiglu. Skuldir þess námu um 450 milljónum króna í árslok 2014. Stofnandinn og eigandi bátasmiðjunnar, Sverrir Bergsson, segir fall norsku krónunnar og kröfur Samgöngustofu um breytingar á plastbátum fyrirtækisins hafa leitt til gjaldþrotsins. „Á miðju ári 2013 var norska krónan 23 íslenskar. Í dag er hún rétt rúmlega um þrettán krónur. Þessi þróun hafði gríðarleg áhrif og hér verða þau verkefni sem eftir eru kláruð en menn eru að meta hvort hægt sé að standa í þessu,“ segir Sverrir í samtali við DV. Heimild DV Myndir Þorgeir Baldursson
Skrifað af Þorgeir
|
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1652 Gestir í dag: 34 Flettingar í gær: 3977 Gestir í gær: 101 Samtals flettingar: 904508 Samtals gestir: 45712 Tölur uppfærðar: 11.10.2024 06:43:16 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is