Ingólfur Þorleifsson, Golli var nýlega með mynd af Halldóru Jónsdóttur ÍS-99, sknr. 939 á síðunni sinni. Þar upplýsti ég að bátnum hafði verið fargað 1990, en það eru opinberar skýringar á endalokum bátsins. Nú hefur hinsvegar komið annað í ljós, en Jón Páll var í áhöfn varðskipsins Óðins sem átti eftir að koma síðar við sögu umrædds báts, er hann hét Magnús SH-11, er þeir dróu hann frá Brjánslæk til Bíldudals 12/10 1993. Gefum Jóni Páli orðið: Báturinn var þá allur í niðurníðslu og búinn að liggja þar í fjörunni í einhver ár að sagt var. Það var búið að draga hann úr fjörunni og dælt úr honum sjó að ég held og var hann við bryggjuna þar. Við komum svo og drógum hann inn á Arnarfjörð í nánd við Bíldudal.
Það tók einhver bátur við honum fyrir utan Bíldudal, ég man ekki hver. Hann var síðan að ég heyrði dreginn á land í grennd við Bíldudal og eitthvað hirt úr honum og hann síðan brenndur. Ég held vélin.
Ég sendi mynd með sem ég tók 12. október 1993 fyrir utan Brjánslæk þegar við vorum að gera hann kláran fyrir drátt.
939. Magnús SH 11 © mynd Jón Páll Ásgeirsson 1993