© Mynd Ómar Garðarsson
GUÐMUNDUR VE-29 er á leið til Þórshafnar af miðunum austur af landinu og er aflaverðmæti hans um 100 milljónir. Sturla Einarsson, skipstjóri á Guðmundi segir að þetta sé mettúr hjá skipinu og sá langverðmætasti hingað til.á leið til Þórshafnar af miðunum austur af landinu og er aflaverðmæti hans um 100 milljónir. Aflinn er síld og makríll og er mestur hluti frystur um borð, um 750 tonn en lítill hluti fer í bræðslu. Skipið var um 10 daga á veiðum í ágætu veðri en heimferðin gengur hægar vegna leiðindabrælu og væntanleg koma til Þórshafnar er seinnipartinn á morgun, að sögn skipstjórans. Pláss fyrir frystar afurðir er feikinóg á Þórshöfn með tilkomu nýrrar frystigeymslu sem Ísfélag Vestmannaeyja byggði. HEIMILD MBL