Bátur þessi hljóp af stokkum 26 maí 1999 í Grófinni í Keflavík, hann var samstarfverkefni þriggja fyrirtækja í Sandgerði og Njarðvík, en Plastverk hf. í Sandgerði og Sólplast ehf., Innri-Njarðvík voru aðalverktakarnir. Hann hefur borið tvö nöfn hérlendis þ.e. Selma ÍS 200 og Selma EA 212, en hefur að ég held nú verið seldur til Noregs.
2355. Selma EA 212 © mynd Þorgeir Baldursson 2007