Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni hafa rannsóknarskip svonefndir heimskautafarar haft reglulegar viðkomur í Keflavíkurhöfn á undanförnum árum og munu nokkur þeirra koma fram eftir hausti, og önnur hafa þegar haft viðkomu. Með skipunum eru farþegar sem fara í land í Keflavík og taka flug frá landinu, en á móti koma aðrir sem fara um borð. Skip það sem kom í morgun heitir Antarctic Dream og er skráð á Panama. Var það með 80 farþega og var skipið að koma frá Svalbarða en það hefur verið á siglingu um norðurslóðir í sumar. Héðan fer Antarctic Dream til heimahafnar í Chile en sigling þangað tekur fjórar vikur. Meðan skipin stoppa í Keflavík tekur það vistir hér svo og eldsneyti, auk þess sem ýmis önnur þjónusta fer fram við skipin. Eins var með þetta skip, auk þess sem iðnaðarmenn voru að störfum í skipinu í dag. Antarctic Dream í Keflavíkurhöfn í dag © myndir Emil Páll 2008
Flokkar:
Eldra efni
Um mig
Nafn:
Farsími:
Tölvupóstfang:
Heimilisfang:
Staðsetning:
Um:
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is