Vestri BA er 200 brúttólesta dragnóta- og togskip í eigu Vestra ehf. á Patreksfirði. Bæjarins Besta
Innlent | mbl.is | 1.11.2008 | 19:45
Stærsta slökkviliðsaðgerð ársins í Vesturbyggð
Davíð Rúnar Gunnarsson slökkviliðsstjóri segir þetta stærstu slökkviliðsaðgerð í Vesturbyggð það sem af er árinu. Fimm slökkviliðsbílar voru kallaðir á vettvang, frá Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal. Reykur í skipinu var mikill, en eldurinn kom upp á milli þilja í rými undir brú skipsins, þar sem mikið er af raflögnum og rafgeymar eru einnig. Hann reiknar með því að verða á vettvangi í einn eða tvo klukkutíma til viðbótar, þar til búið verður að komast fyrir eldinn endanlega.
Þá reiknar Davíð með því að vakt slökkviliðs verði höfð við skipið í alla nótt, enda glóðin á milli þiljanna mjög lífseig og óaðgengileg.
Reykkafarar byrjuðu á því að fullvissa sig um að enginn væri í skipinu. Davíð segir að menn hafi skipst á því að kafa, en allt að sextán reykkafarar fóru inni í skipið til skiptis.