12.03.2009 17:40Heimir í AlaskaF/T Alaska Ocean © myndir Heimir Tomm Nýverið fékk Þorgeir eftirfarandi bréf frá Heimi Tomm sem staddur er í Alaska ásamt myndum þeim sem hér birtast. Birtum við bréfið allt saman, en það var svohljóðandi. Sæll og blessaður.
Ég sendi þér póst fyrir nokkru síðan og þú svaraðir, sagðist gjarnan vilja fá einhverjar myndir og ferðalýsingu frá mér, svo hér er það.
Ég er þjónustustjóri hugbúnaðarsviðs hjá Carnitech, dótturfélagi Marel í Seattle í Bandaríkjunum. Við setjum upp Marelkerfin bæði til sjós og lands og í vetur setti ég upp kerfi í stærsta "Catcher/Processor" í Bandaríkjunum. Cather/Processors eru hreinlega eins og frystitogararnir heima, má ekki rugla þeim saman við processors sem veiða ekki en taka bara við afla til vinnslu.
F/T Alaska Ocean var smíðaður í Bandaríkjunum 1991. Reyndar var skrokkurinn smíðaður í Noregi en skipið svo klárað í USA. Þetta er vegna reglna um nýsmíði í USA, megnið af skipinu verður að vera smíðað í USA til þess að það fái leyfi til veiða innan Bandarískrar lögsögu. Þessi regla veldur því reyndar að bátar og skip hér eru oft mjög gömul og hefur verið breytt alveg gríðarlega. Oft eru þessar breytingar til hins verra, enda sökkva hér bátar alveg unnvörpum á vertíðunum.
Helstu tölur um AO eru:
Lengd.............................. 114 metrar
Afl aðalvélar...................... 6,250 hestöfl Hámarkshraði................... 14 hnútar / 26 km/klst Rafmagnsframleiðsla.......... 4,500 KVA Þyngd............................... 7,419 tonn Þyngd lestaður.................. 10,200 tonn Eldsneyti.......................... 450,000 gallon / 1.703.435 lítrar Áhöfn .............................. 150 manns Þetta er alvöru dallur og öll aðstaða um borð til fyrirmyndar. Veiddur er Pollock, sem nota bene á ekkert skylt við hinn Íslenska Ufsa. Pollockinn hérna er um 1200 grömm að meðaltali og er magnið sem veitt er alveg hreint ótrúlegt. Það þykir lélegt hal sem fer undir 100 tonnin eftir 4 tíma! Skipið er með lestir fyrir um 2800 tonn af frosnum og unnum afurðum. Afurðirnar eru frosin flök, fiskmjöl og Surimi, sem er eiginlega allt kjöt sem ekki er fryst, tekið og hakkað og unnið á margvíslegan máta. Þetta Surimi er notað t.a.m. sem allrahanda fiskfylling. Meira má lesa um surimi hér.
Allt er veitt í flottroll. Botntroll þekkjast varla þarna, er það bæði útaf reglugerðum, sem og náttúruverndarsjónarmiðum. Hinsvegar er þarna eiginlega bara drullubotn í öllu Beringshafinu og þeir draga nokkuð neðarlega. Reyndar svo neðarlega að það koma upp 1 - 2 krabbapottar í hverju hali (þeir sem hafa séð Deadliest Catch á Discovery vita hvað það er).
Vitanlega fer það eftir fiskeríi hvað túrarnir eru langir. Í mínu tilfelli fór ég með skipinu frá Seattle þann 18 janúar, sigldum sem leið lá upp til Dutch harbor og lönduðum þar birgðum. Svo beint á miðin sem voru ekki nema 12 tíma sigling. Til stóð að ég yrði bara um borð fyrstu dagana til að vera vissir um að allt virkaði, en örlögin höguðu því svo að ýmist var ekki veður til að koma mér yfir á annað skip eða hreinlega ekkert far reyndist vera fyrir mig inn til Dutch. Því var ég um borð í 36 daga.
Það fór ekkert illa um mann, síður en svo, það er svona ráðstefnuherbergi um borð og svaf ég þar, sökum þess að nýlega var búið að fjölga í áhöfninni og var skortur á herbergjum. Það er einnig barborð í herberginu þannig að þegar ég sagði bróður mínum að ég svæfi á barnum fékk ég bara framan í mig að það væri ekkert nýtt.
Ég læt fylgja með nokkrar myndir en ef menn vilja frekari lýsingar og fleiri myndir er hægt að fara á bloggið mitt og skoða meira þar.
Ég vona að menn hafi einhvern áhuga á þessu. Þess má geta að ef Íslenskir sjómenn hafa atvinnuleyfi í USA þá eru þeir algerlega öruggir með pláss í Barentshafinu, verkþekkingin og vinnumátinn hjá Íslendingum er eitthvað sem hvaða útgerðarmaður sem er vildi feginn fá og borga vel fyrir. Menn geta sent mér póst ef þeir vilja fá einhverjar upplýsingar, ég hefði bara gaman af að aðstoða ef ég get.
------------- Heimir Tomm (206) 669 6807 F/T Alaska Ocean © myndir Heimir Tomm Skrifað af Þorgeir og Emil Páli |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 608 Gestir í dag: 38 Flettingar í gær: 538 Gestir í gær: 59 Samtals flettingar: 997347 Samtals gestir: 48683 Tölur uppfærðar: 23.11.2024 09:19:07 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is