20.03.2009 00:00Gert úr frá hafnlausri ströndinniTorup Strand á Jótlandi, Danmörku Nýverið birtum við hér mynd af dönskum brimbáti, sem við fengum að láni á síðu Gunnars Th. Í framhaldi af því bauð hann okkur ferðasögu og myndir sem teknar voru á sömu slóðum og þáðum við það og hér kemur frásögnin:
Sl. sumar leigðum við sumarhús í viku við Torup Strand á norðvestur- Jótlandi. (skoðaðu það á Google earth). Vesturströndin þarna er sendin og hafnlaus með öllu. Þó hafa danskir sjómenn stundað róðra þaðan allt frá því bátur snerti sjó í fyrsta sinn. Í tímans rás hafa bátarnir stækkað og þróunin kallað á meiri og flóknari sjósetningarbúnað en handaflið eitt. Á mörgum stöðum höfðu menn komið sér upp spilbúnaði til að draga báta á flot og síðan aftur á land. Samfara þeirri þróun varð til sérstök gerð báta sem notaðir voru á sandana, breiðir og belgmiklir súðbyrðingar sem voru sérstyrktir í skut til að mæta þungri undiröldu í sjósetningu. Súðbyrðingarnir voru léttari en plankabyggðir eikarbátar auk þess að vera seymdir bæði þvers og langs. Svo breiður var belgurinn að um miðjuna var botninn að kalla alveg flatur. Á þeim hluta var byrðingurinn klæddur aukalagi af borðviði og síðan voru festir nylonrenningar þar neðan á, nánast eins og skíði. Myndin sem ég sendi af spilinu er reyndar ekki tekin við Torup Strand heldur litlu sunnar, þar sem heitir Lild Strand. Þar er allur spilbúnaður enn uppistandandi en lítið eða ekkert notaður. Útgerð stærri báta er þar aflögð og einungis einn eftir sem sýningargripur. Aðallega eru þar brimbátar, ekki ólíkir gamla slippprammanum á Ísafirði, sem okkur púkunum þótti vera með tunnubotn í báða enda. Við Lild Strand eru notuð tvö spil en við Torup Strand er eitt gríðarstórt, tvöfalt. Tvær myndir eru teknar við Nörre Vorupör. Aðrar myndir eru teknar við Torup Strand.
Við Torup Strand lifir þessi útgerð enn góðu lífi, þó víðast annars staðar sé hún aflögð. Þó draga menn báta ekki lengur á land með spili þar heldur eru þeir einungis sjósettir á þann hátt. Þegar bátarnir svo koma að landi í eftirmiðdaginn er notuð gríðarstór jarðýta með ripper, Caterpillar tía. Undir henni aftanverðri er vökvaspil og er spilkróknum húkkað ofarlega á ripperinn. Allir bátarnir eru með nokkurra metra vírspotta lásaðan í stefnislykkjuna og er efri endinn hengdur í rekkverkið aftan við hnýfil. Þegar von er á bát er honum valinn staður í sandinum, báturinn siglir upp í sandinn og gefur vel inn síðustu metrana. Þá lyftist stefnið og rennur lengra upp í sandbakkan en ella. Þegar báturinn er stopp bakkar ýtan niður í flæðarmálið og fer eins nærri stefninu og mögulegt er. Einn úr áhöfn bátsins fer fram á stefni og krækir spilkrók ýtunnar til sín með krókstjaka. Lásar saman sinn stubb og krókinn, losar bindinguna við rekkverkið og lætur lásinn síga í sjóinn með festibandinu. Ýtan keyrir síðan upp sandfjöruna upp fyrir þann stað sem báturinn á að standa. Þar stöðvar hún og spilar bátinn viðstöðulaust upp sandinn, kjölréttan og fullan af fiski! Aflanum er svo landað á handafli í körfum niður á dráttarvélar með lyftanlega palla á beislinu. Raunar er mögulegt að nota vökvaspil bátanna við það einhverja stund, því vélarkælingin er lokað spíralkerfi, annað gengi ekki vegna sandrótsins.
Stærsti báturinn sem er í notkun við Torup Strand er á að giska 20 tonn en flestir eru á bilinu 8 - 15 tonn. Alls voru þarna 12-15 bátar og virtust ekki allir frá Torup, því skráningar voru nokkuð mismunandi. Tvo plastbáta sá ég, á að giska 6 -80 tonn, og einn álbát, trúlega 15 tonn. Þessir þrír voru með sérsmíðaða stokka undir síðunum, líka risavöxnum slingbrettum, og neðan á þá var klætt með næloni.
Tvisvar sinnum reyndi ég að sjá bátana sjósetta en þó ég kæmi fyrri daginn kl 05 að morgni og þann seinni kl. 04.45 tókst það ekki. Fyrri daginn var engan bát að sjá, þann seinni mátti sjá síðasta bátinn úti við sjóndeildarhring. Þeir vakna snemma í Torup Strand!
Nörre Vorupör (þessa mynd birtum við nýverið) Nörre Vorupör Spil við Lild Strand Hér má sjá spilbúnað við hliðina á einu af stærri bátunum í Torup Strand Torup Strand Með þessari ýtu eru bátarnir í Torup Strand, dregnir á land © myndir Gunnar Th. Skrifað af Emil Páli |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1080 Gestir í dag: 67 Flettingar í gær: 3437 Gestir í gær: 66 Samtals flettingar: 1019546 Samtals gestir: 49950 Tölur uppfærðar: 3.12.2024 18:38:04 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is