2462. Gunnar Bjarnason SH 122, í höfn á Ólafsvík © mynd Emil Páll í ágúst 2009
Smíðaður í Dalian Shipyard í Dalian í Kína 2001. Eitt af níu raðsmíðaskipum sem smíðuð voru í Norður-Kína fyrir íslendinga hjá þessari skipasmíðastöð. Komu öll skipin saman til landsins með þýska vöruflutningaskipinu Wiebke og til Hafnarfjarðar 10. júlí 2001 eftir 80 daga siglingu frá Kína. Lengdur í Skipavík hf. í Stykkishólmi 2007. Auk lengingarinnar voru sett skjólborð aftast á bátinn svo áhöfnin verði laus við ágang sjávar.
Nöfn: Rúna RE 150, Ósk KE 5 og Gunnar Bjarnason SH 122.