Á línuveiðum
Á rækjuveiðum
Borðað úti á dekki
Á sjómannadaginn
1100. Siglunes ÞH 60 í slipp á Húsavík © myndir Svafar GestssonSmíðanr. 22 hjá Þorgeir & Ellert hf. á Akranesi 1970. Vorið 2003 var skipið selt ævintýramanni á uppboði, sem kom því í slipp í Njarðvik og þar stóð það nafnlaust fram á haustið 2004.Ekkert varð úr breytingum á skipinu og eignaðist slippurinn skipið. Í júní 2008 dró það 973. Jón Steingrímsson RE 7 með sér til Esbjerg í Danmörku, en báðir fóru þeir þá í pottinn.
Nöfn: Siglunes SH 22, Siglunes HU 222, Siglunes ÞH 60, aftur Siglunes SH 22, Siglunes HF 26, Erlingur GK 212, Erlingur GK 214, Sigurbjörg Þorsteins BA 65, Strákur ÍS 26 og Strákur SK 126.