1321. Bjarmi BA 326 © mynd úr Flota Tálknfirðinga, Sigurður Bergþórsson

1321. Geir KE 1 © mynd Emil Páll 2009
Smíðanr. 314 hjá Brastad Shipsbyggeri í Vestnes, Noregi 1968. Yfirbyggður Sandgerði 1975. Lengur og endurbættur hjá Þorgeir & Ellert hf. Akranesi 1998. Lengdur og yfirbyggður hjá Ósey hf., Hafnarfirði 1998.
Átti að seljast til Kenýu í nóv. 1992, en skipið fór aldrei þangað, en lá þess í stað í Þorlákshöfn þar til það var selt til Keflavíkur í nóv. 1993. Fyrir mistök var númerið ÍS 207 málað á bátinn í Njarðvíkurslipp í lok sept. 1995, en átti átti að fara á bátinn við hliðina. Var það lagfært degi síðar. Eigendur fluttu með bátinn til Grænlands 2002, en hann kom fljótlega til baka.
Nöfn: Ben Senior N194Ö, Reynir GK 177, Júlíus ÁR 111. Júlíus ÁR 110, aftur Júlíus ÁR 111, Jóhannes Ívar KE 85, Jóhannes Ívar ÍS 207 (sjá hér fyrir ofan), Jóhannes Ívar ÍS 193, Bjarmi BA 326, Bjarmi, aftur Bjarmi BA 326 og Geir KE 1.