11.10.2009 08:06Íslandsmet í skötuselsveiði- Útgerðarmaðurinn fékk þó ekki veiðikvóta árið eftir og fór í mál við ríkið og vann málið og fékk 25 milljónir í skaðabætur Hér segjum við frá sérstöku máli sem snýst um skötuselsveiðar á Hafnarröst ÁR árið 2000, en meðal skipverja þar um borð voru sem vélstjórar vinirnir og sveitungarnir frá Húsavík, Svafar Gestsson og Þorgeir Baldursson. Skipstjóri var Jónas Sigmarsson og útgerðarmaðurinn Lúðvík Börkur Jónsson. Samkvæmt lönduðum afla var um íslandsmet að ræða og í fyrri hlutanum fjöllum við um veiðarnar og birtum myndir sem Þorgeir tók, fyrir utan eina sem er af Þorgeiri og Svafar tók. Í síðari hluta greinarinnar birtum við frétt um dóminn sjálfan. Íslandsmetið á Skötuselsveiðum á Hafnarröst ÁR 250 árið 2000 Íslandsmetið snýst um eina veiðiferð, sem tók 5 daga og voru þeir með 1100 net og var afraksturinn 5.034 fiskar (skötuselur) sem þeir lönduðu frosnum í land. Lúðvík Börkur Jónsson, útgerðarmaður Jónas Sigmarsson, skipstjóri Jón Ólafur við netadráttinn Greitt úr netunum og aðgerð Magni Árnason með einn góðan Auðvitað tók þessi mikla aflahrota á menn og hér sjáum við vin okkar Þorgeir Baldursson taka sér smá dúr Frosnum skötusel landað Hvert karið á fætur öðru var híft í land Að sjálfsögðu fengu menn tertu að launum er komið var í land © myndir Þorgeir Baldursson, nema myndin af honum sem Svafar Gestsson tók. Til að forðast allan misskilning, þá er myndin af Þorgeiri, birt með samþykki hans og því ekki um skot að ræða. Nú skildu menn halda að miðað við þetta úthald, hefði það verið leikur einn að fá kvóta til áframhaldandi veiða, en öðru nær og því fór útgerðarmaðurinn í mál og vann það eins og áður segir. Birtum við hér umfjöllun mbl.is af málinu, daginn sem málið féll í sl. viku. Fær 25 milljónir í bætur Hæstiréttur dæmdi í dag íslenska ríkið til að greiða útgerðarmanni rúmlega 25 milljónir kóna í skaðabætur, þar sem sjávarútvegsráðuneytið notaði ekki rétt viðmiðunartímabil við úthlutun aflaheimilda í skötusel. Útgerðarmaðurinn keypti bát árið 2000 en með í kaupunum fylgdi skötuselsúthald af af öðru skipi. Maðurinn áformaði að hefja veiðar á skötusel og löngu, en þessar tegundir voru á þeim tíma utan kvóta. Hann ætlaði sérstaklega að einbeita sér að veiðum á skötusel í net, enda taldi hann að sú tegund hefði verið vannýtt og að möguleikar til að vinna sér inn veiðireynslu áður en tegundin yrði færð inn í kvótakerfið væru miklir. Útgerðarmaðurinn var frumkvöðull að því að gera skip sérstaklega út til veiða á skötusel. Hann hóf skötuselsveiðar í maí 2000 og gerði út frá Þorlákshöfn. Veiðarnar gengu mjög vel og skötuselsafli hans var samtals tæplega 360 tonn frá maí til ársloka. Maðurinn hélt áfram veiðum veturinn 2001, sem hann segir að hafi gengið sæmilega. 5. júní 2001 gaf sjávarútvegsráðherra út reglugerð um aflamark fyrir fiskveiðiárið 2001/2002 en þá var ekki sett aflamark á skötusel. Með fréttatilkynningum frá sjávarútvegsráðuneytinu sama dag kom fram að ráðuneytið teldi ekki ástæðu til þess að verða við tilmælum Hafrannsóknarstofnunar um að setja aflamark á keilu og löngu. Ný reglugerð var svo gefin út af sjávarútvegsráðuneytinu 16. ágúst 2001 um aflamark fyrir fiskveiðiárið 2001/2002, sem kom í stað hinnar fyrri. Með nýju reglugerðinni var gerð sú breyting að takmörkun á veiðum tók til nýrra tegunda, keilu, löngu og skötusels, sem ekki höfðu áður verið bundnar ákvæðum um leyfilegan heildarafla. Í ákvæði til bráðabirgða var kveðið á um það að fiskiskipum, sem höfðu veiðileyfi með almennu aflamarki og veiðireynslu á tímabilinu 1. júní 1998 til 31. maí 2001, skyldi úthlutuð aflahlutdeild í þessum tegundum á grundvelli veiðireynslu. Við úthlutun aflaheimilda í skötusel var ekki tekið tillit til veiðireynslu mannsins sumarið 2001. Útgerðarmaðurinn gerði athugasemdir við þetta og taldi að taka hefði átt tillit til þeirra sem hefðu hafið sérstaka sókn í skötusel og í því skyni fjárfest í tækjum og búnaði til veiðanna. Þar sem það var ekki gert taldi maðurinn að ekki væri lengur grundvöllur fyrir útgerðinni. Því lagði hann skipinu og höfðaði síðan skaðabótamál. Bæði Héraðsdómur Reykjavíkur og síðan Hæstiréttur töldu að brotið hefði verið gegn rétti mannsins og reglugerðin, sem sett var í ágúst 2001 hefði ekki verið í samræmi við lög um stjórn fiskveioða. Ríkissjóði ber því að greiða rúmar 25 milljónir króna í skaðabætur, með vöxtum frá 21. nóvember 2003 til 27. janúar 2007 en með dráttarvöxtum frá þeim degi til greiðsludags. Einnig þarf ríkið að greiða málskostnað. Skrifað af Emil Páli |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 2587 Gestir í dag: 45 Flettingar í gær: 4478 Gestir í gær: 133 Samtals flettingar: 1253716 Samtals gestir: 55030 Tölur uppfærðar: 12.3.2025 12:01:42 |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is