573. Hólmsteinn GK 20, í innsiglingunni til Sandgerðis, eins og hann leit út áður en skipt var um stýrishús á honum og settur á hann hvalbakur © mynd Emil Páll
Um fimmleitið í dag var slökkviliðið í Sandgerði kallað út þar sem að eikarbáturinn Hólmsteinn GK 20 sökk í Sandgerðishöfn.
Þegar slökkviliðið kom á staðinn gátu þeir lítið aðhafst þar sem að Hólmsteinn sökk á innan við 3 mínútum eftir að Ásdís GK 218 keyrði utan í hann, en gírinn á Ásdísi bilaði þegar þeir voru að koma að bryggju með þessum afleiðingum.
Það er sveitarfélagið Garður sem er eigandi Hólmsteins og hafa þeir ráðið Köfunarþjónustu Sigurðar til að koma bátnum á þurrt land.
Sigurður Stefáns sem er eigandi Köfunarþjónustun Sigurðar sagði að hann væri þegar byrjaður að undirbúa þá vinnu að koma bátnum upp.
Hólmsteinn er smíðaður í Hafnarfirði 1946 úr eik og mælist hann 43 brúttólestir. Engan sakaði við áreksturinn né þegar báturinn sökk.
573. Hólmsteinn GK 20 við bryggju í Sandgerði, fyrr á árum og fyrir breytingu © mynd Emil Páll
Báturinn er smíðaður hjá Dröfn hf. í Hafnarfirði árið 1946 og hefur ekki verið gerður út í nokkur ár, en eins og stóð til að varðveita hann sem safngrip á Garðskaga.
Nöfn: Hafdís GK 20 og Hólmsteinn GK 20 (frá 1958)
Myndir og frásögn af atburðum dagsins er fengnar frá
245.is