K. Arctander frá Lofoten © Mynd þorgeir Baldursson
K Arctander © mynd þorgeir Baldursson 2010
K. Arctander frá Lofoten Kom til Akureyrar i dag um kl 14/30
Slippurinn Akureyri ehf. í samstarfi við Kælismiðjuna Frost ehf. hafa gert samning um talsvert miklar endurbætur á togaranum K. Arctander frá Lofoten í Noregi. Skipið er í eigu Norland Havfiske A/S sem er hluti af Aker Seafoods ASA samsteypunni, sem auk þess að hafa aðalstöðvar sínar í Osló og gera út frá Noregi er einnig með starfsemi í Danmörku, Bretlandi, Frakklandi og Spáni.
Helstu verkefnin verða að skipta um allan frystibúnað í skipinu, bæði vélbúnað og frysta.
Freon-kerfið verður tekið í burtu og ammoníak-kerfi sett upp í stað þess. Einnig verður hluti vinnslubúnaðar endurnýjaður ásamt hefðbundinni slipptöku með tilheyrandi viðhaldsverkefnum.
Helstu Mál skipsins eru eftirfarandi
K. Arctander
Frysetråler, hvitfisk og reke
Bygget: 1995
Verft: Slipen Mek. Verksted AS i Sandnessjøen
Mål: Lengde 53,1 meter x bredde 12 meter, bt: 1199
Hovedmotor: Wärtsilä Wichmann 3.600 hk fra 1995
Ombygget til dobbeltrål i 2000