Björgvin EA 311 Mynd þorgeir Baldursson 2010
Björgvin EA 311 skip Samherja kom úr Barentshafi með góðan afla alls er aflinn um 735 tonn uppúr sjó aflaverðmætið um 200 milljónir túrinn mun vera um 34 dagar og er uppistaðan þorskur
Oddeyrin EA 210 kom einnig til hafnar i morgun með góðan afla 205 tonn uppúr sjó uppistaðan Grálúða aflaverðmæti um 130 milljónir túrinn tók 29 daga
Kleifaberg, frystitogari Brims hf., er á leiðinni
heim úr Barentshafi eftir velheppnaðan túr. Að sögn eins skipverjans
nam aflinn um 1.000 tonnum upp úr sjó, þar af voru um 700 tonn unnin í
roðlaus og beinlaus flök. Taldi hann í samtali við Fiskifréttir nokkuð
víst að aldrei áður hefði svo mikill afli farið í slíka vinnslu í
íslenskum togara í einum túr.
Að minnsta kosti er víst
að gríðarleg vinna liggur að baki slíkum afköstum. Aflaverðmæti úr
túrnum er áætlað um 300 milljónir króna. Veiðarnar fóru fram í
rússneskri lögsögu Barentshafs, austan við Gráa svæðið svokallaða.
Búist er við skipinu heim nú í vikulokin og hefur túrinn þá tekið
rúma 28 daga, þar af tekur siglingin fram og til baka tæpa 10 daga í
heild. Aflinn var nær eingöngu þorskur.
Því má svo bæta við til gamans að áhöfnin á Kleifaberginu hefur
lengi haldið úti hljómsveitinni Roðlaust og beinlaust og gert garðinn
frægan bæði með tónleikahaldi og útgáfu geisladiska með tónlist sinni.